blaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 24
blaðið
LAUGARDAGUR26. MAI 2007
xm
Fjölsótt kirkja með
merka sögu
menning@bladid.net
9¥\m
wmM
Kaupa
kvikmyndarétt
Djass í kvöld
Djasstríó Esbjörns Svenssonar, eða E.S.T., frá Svíþjóð
heldur sína aðra tónleika á Nasa í kvöld, en fyrri tónleikar
sveitarinnar voru á sama stað í gærkvöldi. Tónleikarnir eru
liður í Listahátíð í Reykjavík sem lýkur um helgina.
1
Unglingaleikrit
Nokkrir nemendur í unglingadeild Digranesskóla hafa tekið sig
til og samið og sett upp leikritið Eitthvað er í loftinu, sem verður
sýnt í sal skólans á þriðjudagskvöld klukkan 20.30.1 leikritinu
eru flutt nokkur lög eftir hljómsveitina Á móti sól.
Reykjavík Films hefur nú undir-
ritað samning við Viktor Arnar
Ingólfsson og Eddu útgáfu um
kvikmyndaréttinn að bókinni Aft-
ureldingu, en til stendur að þróa
þáttaröð fyrir sjónvarp úr bókinni
sem fjallar um æsilega viðureign
lögreglu og raðmorðingja.
Viktor er einn vinsælasti spennu-
sagnahöfundur landsins, en
fyrsta bók hans, Engin spor, var
fyrsta íslenska glæpasagan sem
tilnefnd var til Norrænu glæpa-
sagnaverðlaunanna.
Goðsögnin
Kjarval
Einar Garibaldi Eiríksson verður
með sýningarstjóraspjall á Kjar-
valsstöðum á morgun, sunnu-
daginn 27. maí klukkan 15. Á
sýningunni K-þátturinn - Málarinn
Jóhannes S. Kjarval leitast sýning-
arstjórinn Einar Garibaldi við að
svipta hulunni af goðsögninni Kjar-
val og hleypa áhorfandanum beint
að verkum meistarans. Að sögn
Einars eru verk Kjarvals á þessari
sýningu tekin til endurskoðunar
án listfræðilegra útskýringa, stað-
reynda um lífshlaup hans, lýsinga
á líkamsburðum eða sögum af
sérstæðu lundarfari hans. Einar
Garibaldi býður gestum að ganga
með sér um sýninguna þar sem
hann leitast við að láta rödd Kjar-
vals hljóma beint til áhorfenda.
Einnig stendur yfir hönnunarsýn-
ingin Magma/Kvika á Kjarvals-
stöðum sem upplagt er að skoða
í leiðinni.
Óperan Hel
Menningarfélagið Hr. Níels og
Landsbankinn hafa gert með
sér samning um gerð óperu eftir
sögu Sigurðar Nordal, Hel.
Sviðslistahópurinn Hr. Níels
samanstendur af Ingólfi Níelsi
Árnasyni óperuleikstjóra, Sigurði
Sævarssyni tónskáldi, Sigurði
Eyberg Jóhannessyni handritshöf-
undi og Siguringa Sigurjónssyni,
handritshöfundi og framkvæmda-
stjóra. Samningur hópsins við
Landsbankann var undirritaður
í aðalbanka Landsbankans við
Austurstræti á uppstigningardag
og fluttu Ágúst Olafsson barítón
og Hulda Björk Garðarsdóttir
sópran brot úr óperunni við góðar
undirtektir gesta.
Mynd/Guímundur Rúnor
Krýsuvíkurkirkja Kirkjan lætur
ekki mikið yfir sér en þykir afar heill-
andi í einfaldleik sínum.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Sérstök hátíðarmessa verður hald-
in í Krýsuvíkurkirkju á hvítasunnu-
dag klukkan 14, en tilefhið er 150
ára afmæli kirkjunnar. Afar vönd-
uð dagskrá verður í messunni sem
og í messukaffinu í Sveinshúsi í
Krýsuvík að henni lokinni, en sæta-
ferð verður frá Hafnarfjarðarkirkju
klukkan 12:45.
Séra Gunnþór Ingason, sóknar-
prestur í Hafnarfjarðarkirkju, er
umsjónarmaður helgihalds í Krýsu-
víkurkirkju og mun þjóna í afmæl-
ismessunni ásamt séra Þórhalli
Heimissyni, sr. Þórhildi Ólafs og dr.
Gunnari Kristjánssyni prófasti sem
prédikar. „Það verður mjög falleg
dagskrá," segir Gunnþór. „Frum-
flutt verður magnað ljóð sem Matt-
hías Johannessen hefur ort af þessu
merka tilefni. Atli Heimir Sveins-
son hefur samið tónlist við það
en hann semur einnig tónlist við
messuliði. Krýsuvík er forn kirkju-
staður. Áður fyrr var kirkjan nær
ströndinni, en í kjölfar eldgosa var
kirkjustaðurinn færður til. Núver-
andi kirkja var byggð árið 1857, og
um tíma var þarna blómleg byggð
með einum 18 reisulegum bæjum,
sem síðar lögðust af. Árið 1929
var kirkjan aflögð sem helgidóm-
ur, en um miðja öldina kom fram
merkur maður, Björn Jóhannesson,
fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í
Hafnarfirði, og lagði eigið aflafé í
að lagfæra og endurreisa kirkjuna.
Hún var síðan endurvígð árið 1964
af herra Sigurbirni Einarssyni bisk-
upi en ekkert varð um reglulegt
helgihald í kjölfarið, líkast til vegna
þess að Björn lést skömmu síðar. En
kirkjan eignaðist síðar annan góð-
an bandamann sem vildi aftur gera
hana að virkum helgidómi. List-
málarinn Sveinn Björnsson tengd-
ist Krýsuvík náið og lét sig varða
kirkjuna og vildi taka upp merki
Björns sem hann mat mikils. Þegar
Sveinn var orðinn alvarlega veikur
af krabbameini gerðist ýmislegt og
meðal annars gerði Erlendur, sonur
Sveins, kvikmynd um föður sinn
sem nefnist „Málarinn og sálm-
urinn hans um litinn”. Þar koma
glöggt fram tilfinningar Sveins
gagnvart kirkjunni, og í myndinni
málar hann sérstaka altaristöflu
fyrir Krýsuvíkurkirkju, en á sama
tíma sendi hann ítrekað til mín
og sóknarnefndar Hafnarfjarðar-
kirkju óskir um að helgihald hæfist
þar að nýju. í því skyni gaf hann
kirkjunni þessa altaristöflu. Sveinn
var síðan jarðsettur í garði kirkj-
unnar vorið 1997 og í framhaldi af
því blessaði ég altaristöfluna og síð-
ar um haustið var messað á ný eftir
langan tíma í Krýsuvíkurkirkju," út-
skýrir Gunnþór.
Áltaristaflan er höfð í vörslu Hafn-
arfjarðarkirkju á veturna og flutt í
Krýsuvíkurkirkju fyrir vormessu
þar, sem jafnan fér fram á tímabil-
inu frá uppstigningardegi og fram
að hvítasunnu. „Auðvitað er kirkj-
an líka opin að vetri til þó svo að þá
fari ekki fram eiginlegt helgihald
þar. Þetta er ein fjölsóttasta kirkja
landsins og traffíkin þangað er
jafnan mikil á sumrin. Heilu gesta-
bækurnar fyllast hvað eftir annað
enda hafa þúsundir manna skrifað
í þær nafn sitt og margir þeirra lát-
ið fallegan vitnisburð fylgja. Ég hef
óskaplega gaman af því að skoða
það sem fólk hefur skrifað í þær
á tugum tungumála, til dæmis
kínversku, færeysku, japönsku og
finnsku,” segir Gunnþór og bætir
því við að gestabækurnar staðfesti
það hvað kirkjan er heillandi í ein-
faldleik sínum. „Hún lætur ekki
mikið yfir sér svona þegar maður
sér hana að utan en um leið og mað-
ur kemur þarna inn er eins og mað-
ur finni fyrir mjög góðum andblæ
og það er nokkuð sem allir tjá sig
um. Ég held að kjarni trúarinnar
komi alveg sérstaklega vel fram í
þessari litlu kirkju."
Vor- og haustmessur eru fastir
liðir í helgihaldi kirkjunnar en
þar fara einnig fram fleiri athafn-
ir. „Hún er nú lifandi helgidómur
og þar fara fram giftingar og fleiri
kirkjuathafnir, auk þess sem stund-
um hefur messum verið fjölgað
K' * t*
1
þar, eins og t.d. árið 2000 þegar
Kristnihátíð fór fram. Krýsuvík-
urkirkja heyrir nú undir Þjóð-
minjasafn íslands sem lilúir vel
að henni, tjargar hana og sinnir
almennu viðhaldi og mun vænt-
anlega brátt gera það enn betur,“
segir Gunnþór að lokum.
Orlög Miniks
Kvikmyndahátíðin Reykjavík
Shorts&Docs var opnuð í gær og
stendur til 28. maí. Opnunarmynd
hátíðarinnar var heimildarmynd-
in „The Price of the Pole“ eftir
Staffan Julén. Staffan er sérstakur
gestur hátíðarinnar ásamt sögu-
manni myndarinnar, Robert E. Pe-
ary II, barnabarni hins fræga land-
könnuðar Roberts E. Pearys sem
fyrstur manna steig fæti á norður-
pólinn. Myndin verður aftur sýnd
í Tjarnarbíói á morgun, sunnudag,
klukkan 15:30.
Hér er á ferðinni heimildar-
kvikmynd um feril Pearys, sem
var þekktur fyrir þráhyggju sína.
Hann dvaldist í 23 ár á norður-
slóðum í tilraunum sínum til að
verða fyrstur manna til að komast
á norðurpólinn. Hann ferðaðist
á milli tveggja heima; milli þess
sem hann dvaldist meðal brodd-
borgara í New York bjó hann á
norðurhluta Grænlands þar sem
hann giftist inúítakonu með leynd.
Stuðningsaðilar Pearys þrýstu á
um að hann færði þeim dýrgripi
úr norðrinu og hann brá á það
ráð að flytja sex inúíta til Náttúru-
gripasafns í New York. Allir inúít-
arnir dóu á skömmum tíma nema
einn drengur, hinn sex ára gamli
Minik.