blaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007
blaðið
Bandaríkin:
Kynlífsfíkill
lögsækir IBM
Fyrrum starfsmaður IBM í
Bandaríkjunum hefur krafið
fyrirtækið um 5 milljónir dollara
fyrir ólögmæta uppsögn. Hann
hafði verið rekinn fyrir að eyða
of miklum tíma á spjallsíðum
fyrir fullorðna. Maðurinn segist
vera kynlífsfíkill og telur að fyr-
irtækið hefði frekar átt að veita
honum aðstoð í stað þess að segja
honum upp.
írak:
Sadr snýr aftur
Róttæki
sjítaklerkurinn
Moqtada Sadr
er kominn aftur
fyrir sjónir
almennings
eftir að hafa
farið huldu höfði frá því í janúar.
Birtist hann í bænastund í
bænum Kufa í austurhluta lands-
ins, umkringdur lífvörðum og
aðstoðarmönnum.
Bandarískir embættismenn
töldu að hann hefði farið í felur
til írans þegar Bandaríkjaher
gerði stórsókn gegn uppreisnar-
hópi hans í ársbyrjun. Stuðnings-
menn segja að hann hafi hins
vegar aldrei farið úr landi.
Fíkniefnaneysla reykvískra ungmenna minni en í mörgum Evrópskum borgum:
Aðrar Evrópuþjóðir vilja
læra af reynslu íslendinga
■ Ný tækni auðveldar dreifingu og framleiðslu ■ Keppnisandi hrekur krakka úr íþróttum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Fikniefnaneysla ungmenna er
minni í Reykjavík en í mörgum
borgum Evrópu og vilja aðrar Evr-
ópuþjóðir því sækja í reynslu íslend-
inga af forvarnarmálum. Þetta kom
fram á fundi á Bessastöðum sem
efnt var til í því skyni að fylgja eftir
forvarnardeginum sem haldinn var
síðastliðið haust. Ýmsir sem unnið
hafa að fíkniefnaforvörnum og
rannsóknum tóku einnig til máls á
fundinum og voru sammála um að
samverustundir með fjölskyldunni
væru besta forvörnin.
Verkefnið Youth in Europe - A
Drug Prevention Programme er sam-
starfsverkefni 11 borga Evrópu um
að vinna gegn fíkniefnaneyslu ung-
menna. Forseti Islands er verndari
verkefnisins og Actavis aðalstyrktar-
aðili, en Reykjavíkurborg leiðir verk-
efnið. Forsetinn sagði óhætt að full-
yrða að sá árangur sem náðst hefði
í forvarnarmálum hér á landi væri
ástæða þess að aðrar Evrópuþjóðir
líta til íslendinga í von um leiðbein-
ingu um hvernig best sé að berjast
gegn neyslu ungmenna.
Forsetinn sagði að ný tækni geri
baráttu gegn fíkniefnaneyslu erfið-
ari og vandann umfangsmeiri. „Stór
hluti þeirra fíkniefna sem seld eru
í okkar heimshluta eru framleidd
í hér með nýrri tækni sem gerir
mönnum kleift að starfrækja litlar
fíkniefnaverksmiðjur í gámum sem
auðveldar þeim að fela þær. Og far-
síminn gerir sölumönnum mun
auðveldara að ná til krakkanna og
skipuleggja sig þannig að þeir geti
lagt net sitt með áhrifaríkari hætti
en nokkru sinni fyrr
Fram kom í máli þeirra Ingu Dóru
Sigfúsdóttur og Álfgeirs Kristjáns-
sonar, fræðimanna við Háskólann i
Reykjavík, að rannsóknir þeirra og
annarra fræðimanna sýni að sam-
vera fjölskyldunnar sé áhrifaríkasta
meðalið til að koma í veg fyrir að
krakkar leiðist út í neyslu fíkniefna.
Skiptir þá ekki endilega máli hvað
sé gert, heldur er samveran sem slík
mikilvægust.
Fræðimennirnir kynntu einnig
niðurstöður úr samræðum við ung-
linga sem áttu sér stað á forvarnar-
deginum í fyrra. Kom meðal annars
fram í máli unglinganna að þau
teldu sjálf samveru fjölskyldunnar
mikilvæga, að þau söknuðu sam-
ræðna við foreldra í stað ræðna, og
að of mikill keppnisandi og skortur
á fjölbrey tileika væru helstu ástæður
þess að krakkar hætta oft í íþróttum
þegar komið er á unglingsaldur.
...
Séð yfir að Indriðastöðum. Lóðir fyrir fristunda-
hús verða í brekkunum fyrír ofan bæinn og við
golfvöllinn sem verður á túnunum við enda
Skorradalsvatns.
ÍS -