Bændablaðið - 27.01.2006, Side 6

Bændablaðið - 27.01.2006, Side 6
6 Þriðjudagur 31. janúar 2006 Bændablaðið Málgagn bænda og landsbyggðar Smátt og stórt Upplag: 14.167 eintök Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins að mestu leyti. ISSN 1025-5621 Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 5.500 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.500. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 - Fax: 562 3058 - Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason, blaðamaður: Sigurdór Sigurdórsson Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Næsta blað Bændablaðið kemur næst út 14. febrúar. Auglýsendur eru beðnir um að panta auglýsingar með góðum fyrirvara Það er fyrst þegar maður sér hvernig barnabörnin haga sér að maður getur dæmt um það hvernig manni hefur tekist upp- eldið á börnum sínum. Gullkornið Dagsönn saga ættuð úr virtum menntaskóla! Spurt er á prófi: Hvernig geðjaðist Bjarti í Sumarhúsum að kúm? Svar: Bjarti geðjaðist illa að Kúm, enda var Kúmur ekki góður maður. Aðeins einn Sæmundur Tímamót urðu um síðustu áramót þegar Sæmundur Sigmundsson, sérleyfishafi í Borgarnesi, hætti sérleyfisakstri, sem hann hafði þá stundað í nærfellt hálfa öld. Á þessu tímabili hefur Sæmundur fest sig svo í sessi að í vitund fólks að hann og rútur hans voru nánast hluti af landslaginu á leiðinni Reykjavík - Borgarnes. En það var líka upplifun að sitja fram í hjá Sæmundi og fá leiðarlýs- ingu þar sem hann gjörþekkti leið- ina; hvert örnefni, hverja beygju og jafnvel holurnar í veginum. Sæ- mundi skuli hér færðar þakkir fyrir þjónustuna, sem þó er ekki lokið því að nú hyggst hann snúa sér að öðrum akstri, svo sem með ferða- fólk og skólabörn. Heillaósk Guðmundur Böðvarsson skáld á Kirkjubóli sendi Kristjáni Eldjárn þá þjóðminjaverði þessa heillaósk þegar hann lauk doktorsprófi sínu. Ógnum þrungna eftir ferð út þú slappst úr haugnum með hið góða gamla sverð, en gekkstu nú rétt frá draugnum? Íslenskan á undanhaldi Nokkuð þarf til til að beina athygli fólks frá hagnaði banka og stórfyr- irtækja, en Páli Valssyni útgáfu- stjóra tókst það þegar hann varpaði fram þeirri fullyrðingu að ekki yrði töluð íslenska hér á landi eftir 100 ár. Við nánari umfjöllun hefur komið í ljós að það eru einkum unglingar á aldrinum 14-17 ára sem orðið hafa eftir í málþroska. Bóklestur þeirra hefur minnkað og kennarar segja að þeir skilji ekki lengur algeng orð málsins. Enn það er ekki öll nótt úti enn og áður hefur verið spáð illa fyrir íslenskunni. Þannig þótti danska málfræðingnum Rasmus Kristian Rask það mesta mein snemma á 19. öld að margir Íslendingar slettu erlendum orðum í ræðu og riti og spilltu þannig tungunni. Í fram- haldi af því hófst mikil alda mál- hreinsunar, oft kennd við Fjölnis- menn. Nú er aftur þörf á að efla tung- una og minnast þess að íslensk tunga er lykillinn að öllu því sem við tengjum við íslenska þjóð og hlutverki hennar í samfélagi þjóða. Vélhundurinn Aibo sleginn af Mbl. greindi frá því í gær að japanska fyrirtækið Sony hefur ákveðið að hætta frekari þróun og framleiðslu á á vélhundinum Aibo. Þessi ákvörðun kemur áhuga- mönnum um hunda ekki á óvart þó svo þessi hafi getað: „gelt, elt bolta, lyft afturfæti og „lært" skipanir. Síðasta útgáfa hundsins gat sagt 1000 orð og skilið yfir 100. Í höfði hundsins er mynd- bandsupptökuvél sem getur sent mynd beint í tölvu..“ eins og segir í Mogganum. Líklega fréttum við næst af vélhrossi sem getur bæði bitið og slegið... Því fleira fólk sem tekur þátt í kór- starfi, því betra fyrir dreifbýlið á hverjum stað. Þetta er niðurstaða könnunar tveggja sænskra fræði- manna, Wolfang Pichler og Hans Westlund, og niðurstaðan kom þeim á óvart. „Þegar við fórum að skipta af- skekktum sveitarfélögum niður eftir byggðaþróun, kom í ljós að því fleira fólk sem tók þátt í kór- starfi, því betur voru sveitarfélögin stödd með þróun íbúafjölda,“ sagði Hans Westlund. „Það er ljóst að fólki á þéttbýlis- stöðum fjölgar mest sem og að vinnumarkaðurinn hefur mest að segja um mannfjöldaþróunina. Þeg- ar við hins vegar könnuðum félags- starfsemi komu greinilega í ljós já- kvæð áhrif af kórsöng sem benti jafnframt til að kórar væru góður samsamnefnari fyrir félagslíf í dreif- býli,“ segir hann ennfremur. Ef til vill er skýringin sú að byggðarlög með fjölskrúðugt fé- lagslíf hafi meira aðdráttarafl fyrir fólk en önnur félagsstarfsemi, jafnframt því að halda betur á því fólki sem fyrir er. Þeir félagar báru einnig saman aðra þætti, svo sem þátttöku í les- hringjum en þar komu ekki sömu jákvæðu áhrifin í ljós. En er það söngurinn sem skapar kröftugt samfélag eða er það kröft- ugt samfélag sem hvetur til kór- starfsemi? Þessu er erfitt að svara en þó er eðlilegt að ætla að fólk sem á sér skemmtilegar frístundir flytji síður burt. Það er athyglisvert að kór- söngur er einmitt merki um þetta. Hið sama hefur komið í ljós víðar. Bandaríski félagsfræðingurinn Ro- bert Putman hefur einnig fundið dæmi þess á Ítalíu. Prófessor Reidar Almås, profes- sor við Miðstöð fyrir byggðarann- sóknir í Noregi, telur að sænska rannsóknin eigi einnig við í Nor- egi. „Í dreifbýlinu gildir það gjarn- an að fólk verður að skemmta sér sjálft, þar eru ekki atvinnu- skemmtikraftar starfandi eins og í þéttbýli. Það er án efa meira freist- andi að flytja frá stöðum þar sem menningarstarfsemi er fábreytt heldur en þar sem eru mörg félög og klúbbar,“ segir Reidar Almås. „Þar sem mikið er um að vera á einu sviði hefur það áhrif á mann- lífið í heild, svo sem leikstarfsemi, starfsemi kóra eða íþróttir. En það er einnig vaxandi skilningur á því að svokölluð mjúk byggðamál séu mikilvæg fyrir búsetuþróunina,“ segir Reidar Almås. (Nationen, Ósló). Kórsöngur gerir lífið ánægjulegra í dreifbýlinu Fræðaþing landbúnaðarins Fræðaþing landbúnaðarins hefst síðar í þessari viku. Segja má að þingið sé uppskeruhátíð allra sem stunda rannsóknir tengdar landbúnaðinum - en einnig er fræðaþingið mikilvæg samkoma fyrir þá, sem hafa þann starfa að miðla þekkingu til bænda og búaliðs. Á fræðaþinginu er fjallað um fjölmörg mál sem eiga beint eða óbeint erindi við bændur landsins. Margir frummælendur leggja mikla vinnu í erindin og bændur ættu hiklaust að kynna sér sem flest af því sem þarna er sagt og sýnt. Auk þess eru erindin gefin út á bók og fjölmiðlar Bændasamtakanna munu gera þeim nokkur skil. Bókin er fáanleg hjá Bændasamtökunum. Síðast en ekki síst stendur fræðaþing opið öllum sem áhuga hafa. Fátt er íslenskum bændum jafn dýrmætt og aukin þekking. Á fræðaþingi geta menn aflað sér nýjustu þekkingar á hverjum tíma. Hvernig landbúnað eigum við að stunda í upphafi nýrrar aldar? Fulltrúar bænda í undirbúningsnefnd fræðaþings beittu sér fyrir því að fá hingað til lands tvo erlenda fyrirlesara sem nálgast þessa spurningu frá mismunandi sjónarhornum. Annars vegar kemur hingað starfsmaður norska landbúnaðarráðuneytisins, Fröydis Vold, sem spyr í heiti erindis síns hvort landbúnaður geti orðið eitthvað annað og meira en hefðbundinn landbúnaður. Hins vegar mun Douglas Bell, frá skoska landbúnaðarháskólanum, fjalla um það hvernig skoskum landbúnaði gengur að aðlagast breytingum. Íslenskur landbúnaður verður að horfa yfir hafið og fylgjast grannt með því sem aðrir eru að gera. Það er engin ástæða til að finna upp hjólið enn eina ferðina. Sérstök ástæða er til að fagna því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kemur á þingið og ræðir um framtíð íslensks landbúnaðar. Það er mikilvægt fyrir bændastéttina að heyra hver skoðun forsetans er á landbúnaðinum. Ólafur Ragnar hefur sýnt það að hann getur beitt sér - til dæmis á erlendri grund - í þágu íslenskra atvinnuvega. Með þátttöku sinni í fræðaþingi eru bændur að undirstrika enn og aftur að fjölmargt í nýsköpun landbúnaðarins er ekki ógn við núverandi stöðu. Þvert á móti. Nýjungarnar eru yfirleitt hrein og klár viðbót. Það er hlutverk bænda - og samtaka þeirra - að bjóða nýja félaga velkomna, leggja sig fram um að leita leiða til að efla ráðgjöf þeim til handa og efla stéttarvitund meðal félagsmanna. Miðlun þekkingar skiptir máli og þegar þessu fræðaþingi lýkur munu BÍ kanna gaumgæfilega hvort fróðleikur fræðaþings hafi náð eyrum bænda. Samkomur á borð við fræðaþingið þurfa og verða að vera í stöðugri mótun og endurnýjun. Menn verða stöðugt að spyrja sig hvort hægt sé að gera betur. Þegar um miðlun þekkingar er að ræða er ekki um neinn lokapunkt að ræða. Afgerandi afstaða búnaðarþings Búnaðarþing komst að mjög afgerandi niðurstöðu varðandi sölu á Hótel Sögu og Hótel Íslandi. Ljóst er að fulltrúar bænda á búnaðarþingi vilja að Bændasamtökin haldi áfram að reka hótelin. Á því leikur ekki vafi eftir umræður á nýloknu búnaðarþingi. Á þinginu nefndu margir þá hugmynd að BÍ könnuðu þann möguleika að fá fleiri að rekstrinum. Sú leið er ein margra sem stjórn BÍ verður að skoða í framhaldi af atkvæðagreiðslunni og umræðum á nýliðnu búnaðarþingi. Hið sama gildir um þá hugmynd að BÍ flytji aðalskrifstofu samtakanna í nýtt og hentugra húsnæði jafnframt því að starfsemin verði endurskipulögð. Að fenginni niðurstöðu búnaðarþings geta Bændasamtök Íslands sett sér skýrari framtíðarsýn hvað varðar rekstur hótelanna. Sökum umræðu um nauðsyn þess að BÍ ættu að selja hótelin hefur reksturinn ekki verið eins markviss og hann hefði átt að vera. Nú hefur óvissunni verið eytt. Sú staðreynd mun að ýmsu leyti auðvelda stjórn BÍ verk í framhaldinu. /HB Leiðarinn Atkvæði talin á búnaðarþingi í gær.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.