Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 9
9Þriðjudagur 31. janúar 2006
Á bænum Varmahlíð undir
Eyjafjöllum var fyrir skömmu
opnuð 20 kw rafstöð sem skírð
var Gullkvörn. Það eru hjónin
Sigurður Jónsson vélsmíða-
meistari og Anna Birna Þráins-
dóttir, nýskipaður sýslumaður í
Vík, eigendur Varmahlíðar sem
stóðu fyrir þessum virkjunar-
framkvæmdum á bæjarlækn-
um.
Sigurður sagði í samtali við
Bændablaðið að til að byrja með
yrði það bara Varma-
hlíðarbærinn sem
notar rafmagn frá
virkjuninni en þó að-
eins um 10 kw. Hann
segir að það vanti 3ja
fasa streng til að geta
selt rafmagn inn á
Landsnetið og
strengurinn þarf að
vera þrír til fjórir
kílómetrar að lengd.
RARIK er hægt og
bítandi að koma
þessum strengjum í
jörð eftir að raf-
stöðvareigendur um allt land geta
selt rafmagn sem Landsnetið flyt-
ur.
Mikill byggingarhraði
Byrjað var að byggja hús Gullk-
varnarinnar í lok október sl. Túr-
bínan er ítalskrar gerðar sem
Orkuver ehf. flytur inn og kom
hún með öllum stýribúnaði. Læk-
urinn sem virkjaður var kemur
beint út úr berginu fyrir ofan bæ-
inn og er mjög stöðugur. Sigurður
segir að árið 1928 hafi verið gerð
þarna virkjun og sagðist hann hafa
notað gömlu inntaksþróna, sem er
hlaðin, og þurfti smá lagfæringar
við.
Sigurður segir að virkjunin
spari uppundir hálfa milljón á ári
strax. Hún kostaði á milli fjórar og
fimm milljónir króna og verður
því fljót að borga sig upp. Hann
segist hafa leigt jörðina Varmahlíð
bónda í nágrenninu vegna þess að
þau Sigurður og Anna Birna
bjuggu sl. 4 ár í Búðardal þar sem
hún var sýslumaður. Þau hjón
munu búa í Vík en það er um það
bil 30 mínútna akstur á milli
Varmahlíðar og Víkur.
,,Ég er vélvirkjameistari og það
er aldrei að vita nema maður fari
að smíða eitthvað í Varmahlíð en
það er alveg ljóst að þessi rafstöð
býður upp á ótal möguleika auk
þess að maður getur selt rafmagn
þegar strengurinn kemur,“ sagði
Sigurður Jónsson.
Gullkvörn opnuð á bænum
Varmahlíð undir Eyjafjöllum
Sigurður í dyrum Gullkvarnarinnar. /Bbl. Ólafur.