Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 37

Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 37
37Þriðjudagur 31. janúar 2006 Ref fjölgar og hann færir sig sífellt nær byggð Í Skaftárhreppi eru ráðnar fimm refaskyttur sem eiga ár- lega að skila inn skýrslu um ár- angurinn. Í skýrslu um refaeyð- ingu í Álftaveri kemur fram að nokkur ný greni fundust og náð- ust bæði yrðlingar og fullorðnar tófur við þau. Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps, segir að almennt sé talað um að ref hafi fjölgað í hreppnum og raunar víð- ar. Hann sagðist hafa verið á mál- þingi austur á Höfn þar sem margt bar á góma og þar á meðal refur- inn. Þar bar mönnum saman um að ref væri að fjölga gríðarlega mikið um allt land og eru óánægð- ir með hvernig að eyðingu hans er staðið. Einnig eru menn sammála um að háttalag hans hafi breyst því hann er farinn að gera sér greni heim undir bæjum. Gunnsteinn segir að það hafi algerlega verið óþekkt fyrir nokkrum árum. Það virðist vera sama við hvern er talað um þetta mál, allir eru sammála um fjölgun refs og eins hvað hann er farinn að sækja nærri mannabyggð.        !"#$% %& ' ( )*#+' ( ) ,-./0,-./1 / 2221,-./1 /     3456'( +&&   75,83&9&5#5#6 5 &6:4"#59&5 !   ! "  #$ "   !    Landbúnaðarstofnun mun standa fyrir kynningarfundum á eftirfarandi stöðum um fuglaflensu og viðbrögð við henni, greinist hún í fuglum hér á landi: 1. Reykjavík, þriðjudaginn 7. febrúar 2006, kl. 14 - 16. Á Hótel Sögu, II hæð, salur A. 2. Hvanneyri, fimmtudaginn 9. febrúar 2006, kl. 14 - 16. Á Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, kennslustofu í nýju fjósbyggingunni. 3. Blönduósi, þriðjudaginn 14. febrúar 2006, kl. 14 - 16. Í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi. 4. Selfossi, föstudaginn 17. febrúar 2006, kl. 13 - 15. Á Hótel Selfossi, suðursal, II hæð. 5. Akureyri, þriðjudaginn 21. febrúar 2006, kl. 14 - 16. Á Hótel KEA. 6. Höfn, Hornafirði, fimmtudaginn 2. mars 2006, kl. 13 - 15. Í Nýheimum, Litlubrú 2. Dagskrá: 1. Setning - Konráð Konráðsson dýralæknir svínasjúkdóma. 2. Fuglaflensa - Jarle Reiersen dýralæknir alifuglasjúkdóma: - Einkenni fuglaflensu, áhættumat, vöktun og varnir 3. Viðbragðsáætlun Landbúnaðarstofnunar við fuglaflensu - Auður Lilja Arnþórsdóttir sóttvarnadýralæknir og Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir. - Fjallað verður almennt um viðbragðsáætlanir en einnig hlutverk dýralækna í héraði, hlutverk Landbúnaðarstofnunar, sýnatökur, aflífun, förgun og þrif og sótthreinsun í tengslum við fuglaflensu 4. Umræður og fyrirspurnir Gert er ráð fyrir að hver fundur vari í 2 klst. Fundarstjóri verður Konráð Konráðsson. Fundirnir eru fyrst og fremst ætlaðir dýralæknum, alifuglabændum og alifuglaeigendum, svínabændum og starfsfólki sem vinnur við alifugla- og svínarækt, en er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku (nefnið fundarstað) með því að senda tölvupóst á lbs@lbs.is eða í síma 530 4800 á milli 08:00 og 16:00. Frekari upplýsingar veitir Konráð Konráðsson dýralæknir svínasjúkdóma. Símar: 893 6567, 563 0362. Tölvupóstur konkon@bondi.is. Landbúnaðarstofnun. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA Svæðisfulltrúi Suðurlandsskóga Landgræðsla ríkisins og Suðurlandsskógar óska eftir að ráða starfsmann sem gegnir starfi svæðisfulltrúa Suðurlandsskóga í Vestur Skaftafellssýslu og sérfræðings á héraðssetri Landgræðslunnar frá og með 1. apríl 2006. Helstu verkefni: • Áætlanagerð, skipulag og umsjón landgræðslu- og skógræktarverkefna í Skaftafellssýslum. • Ráðgjöf og samstarf við bændur, aðra umráðahafa lands, sveitarfélög og sjálfboðaliða varðandi skógrækt, landgræðslu og gróðurvernd. Menntunar- og hæfniskröfur: • Æskilegt er að umsækjendur hafi B.Sc próf í náttúrufræðum auk reynslu og þekkingar á sviði landbúnaðar, ekki síst skógræktar. • Starfið krefst frumkvæðis starfsmanns og sjálfstæðis í starfi, skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg. Vinnustaður er á Kirkjubæjarklaustri. Starfshlutfall er 100%. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Upplýsingar veita: Björn Bjarndal Jónsson 482-1800,bjorn@sudskogur.is Elín Heiða Valsdóttir 487-4875, elinheida@land.is Ásgeir Jónsson 488-3000, asgeir@land.is Vinsamlegast sendið skriflega umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu til Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti, 851 Hellu eða til Suðurlandsskóga Austurvegi 1, 800 Selfoss fyrir 15. febrúar n.k. Fundir um fuglaflensu

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.