Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 18
18 Þriðjudagur 31. janúar 2006 Nú liggja fyrir heildarniðurstöð- ur skýrsluhaldsins fyrir árið 2005. Þessar tölur endurspegla þá miklu þróun sem hefur ein- kennt íslenska mjólkurfram- leiðslu allra síðustu árin. Búum í mjólkurframleiðslu fækkar nokkuð, þrátt fyrir að hlutfalls- leg þátttaka aukist og eru nú vel yfir 90% mjólkurframleiðslunn- ar í landinu á búum með skýrsluhald. Fjöldi kúnna breyt- ist þess vegna ekki mikið, fækk- ar þó lítillega. Búin stækka að jafnaði og í fyrsta sinn er meðal- búið í skýrsluhaldinu yfir 30 ár- skýr. Afurðir aukast og hafa því aldrei verið meiri í landinu en á síðasta ári. Tafla 1 gefur yfirlit um nokkrar helstu fjölda- og meðaltalstölur. Þar sést að árskýrin skilaði að meðaltali 5280 kg af mjólk eða 51 kg meira en árið áður. Efnahlutföll eru, þrátt fyrir aukið mjólkurmagn, sjónarmun meiri en árið áður þannig að efnamagnið vex heldur meira hlutfallslega. Haustveðrátta var óhagstæð mjólkurframleiðsl- unni og þá dró talsvert úr mjólkur- framleiðslu um allt land á þeim tíma. Þegar tölurnar af stærstu framleiðslusvæðunum eru bornar saman við árið áður sést að breyt- ingar eru nokkuð líkar milli ára á flestum þeirra nema í Suður-Þing- eyjarsýslu þar sem kemur fram lækkun meðalafurða á milli ára. Að þessu sinni eru meðalafurðir mestar á stærsta framleiðslusvæð- inu í Árnessýslu. Eins og árið áður eru afurðir í einu nautgriparæktar- félagi mestar í Austur-Landeyjum þar sem meðalafurðir eru 6063 kg af mjólk eftir árskýr. Þrátt fyrir að þetta sé stórglæsilegur árangur voru kýrnar þar í sveit samt með ívíð meiri meðalafurðir árið 2004. Eins og fram kom í síðasta Bændablaði þá voru meðalafurðir mestar á búinu á Kirkjulæk II í Fljótshlíð eða 7669 kg að jafnaði eftir hverja kýr, og er það glæsilegt Íslandsmet. Yfirlit um búin sem náðu 7000 kg markinu á árinu 2005 er að sjá í töflu 2. Nokkuð á annað hundrað bú ná að framleiða yfir 6000 kg af mjólk að meðala- tali eftir kúna á árinu 2005. Tafla 3 gefur yfirlit um þær kýr sem skiluðu mestum afurðum árið 2005 mælt í kg mjólkur. Hvað varðar afurðir einstakra gripa voru ekki sett nein Íslandsmet á árinu 2005 í heildarafurðum. Það er sammerkt öllum afurðahæstu kún- um í töflunni að þetta eru kýr sem bera í upphafi ársins og fá því jafn hagstætt skýrsluár með tilliti til af- urða og mögulegt er en árangur þeirra er jafn glæsilegur þrátt fyrir það. Rétt er að geta þess að ef af- urðir eru metnar á grunni efna- magns sem kýrnar skila verður röð þeirra verulega önnur og þá skipa efstu sætin tvær kýr úr Hruna- mannahreppi, mestu skilar Ábót 223 í Sólheimum samtals 863 kg og næst kemur Gráða 260 í Birt- ingaholti I en hún skilar samtals 833 kg. Að vanda mun birtast í Frey síðar í vetur nákvæmara yfirlit um niðurstöðurnar. Einnig er að finna á Netinu miklu ítarlegri töflur fyrir öll þau þrjú yfirlit sem fram koma í töflunum með þessari grein. /JVJ. Niðurstöður úr skýrsluhaldi naut- griparæktarfélaganna árið 2005 Til að tryggja nægjanlegt magn af E-vítamíni þarf fóð- urskammturinn að innihalda minnst 30 mg/kg þe. Marg- ar rannsóknir sýna að í gróffóðri er oft ekki svo mikið E- vítamín. E-vítamín hefur mikilvæg áhrif, sérstaklega í sambandi við ónæmiskerfið við að verja frumuhimnuna gegn oxun. E- vítamín vinnur gegn oxun og hindrar myndun peroxíðs sem er skaðlegt fyrir frumurnar. Með öðrum orðum, E-vítamín kemur í veg fyrir skemmdir á frumunum. Selen hefur einnig verndandi áhrif á frumuna, en óbeint þar sem það er í hvata (ensym) sem brýtur niður peroxíðið og verndar hana þannig. Magn E-vítamíns og selens verður því að skoðast í samhengi þótt efnin geti ekki komið í stað hvors annars. Ef um greini- legan skort er að ræða á öðru efninu eða báðum, hefur það áhrif á skepnuna. Ríkulegt í fersku grasi Í fersku ungu grasi er mikið af E-vítamíni. Magn þess og se- lens var rannsakað hjá tveimur hópum kvígna sem var beitt á mismunandi land en fengu ekki kjarnfóður. Blóðprufur sýndu því hversu mikið kvígurnar fengu af E-vítamíni úr beitargrasinu og reyndist það nægjanlegt hjá báðum hópun- um, þrátt fyrir landfræðilegan mun á beitarsvæðunum. Heyverkunin er flöskuháls varðandi E-vítamín, sem er frekar laust bundið. Bæði þurrkun, forþurrkun og votheys- verkun geta rýrt innihald heysins af E-vítamíni, umtalsvert. Við Dýralæknaháskólann hafa verið gerðar rannsóknir á magni E-vítamíns í mismunandi tegundum gróffóðurs. Mest var af E-vítamíni í votheyi með lágu pH-gildi eins og oftast er í hefðbundnu súru votheyi. Í rúlluböggum var um tölu- verðan breytileika að ræða, bæði á milli bagga og í hverjum bagga. Í u.þ.b. helmingi rúllubagganna innihélt heyið of lítið E-vítamín. Þurrhey er venjulega lélegur E-vítamínigjafi. Greinilegur skortur á E-vítamíni getur valdið sjúkdómi í vöðvum kálfa, þráabragði af mjólk, dregið úr frjósemi og mótstöðu gegn smitsjúkdómum. Þó lítilsháttar skortur á E- vítamíni valdi ekki sýnilegum sjúkdómseinkennum þá getur orðið um að ræða minni framleiðslu og skepnan orðið veik- ari fyrir sjúkdómum því ónæmiskerfið starfar þá ekki sem skyldi. Vítamíngjöf á innistöðu Mjólkurkýr sem fá ferskst gras eða gott vothey, fá venjulega nægjanlegt magn af E-vítamíni. Vandamál geta samt skapast sé sumarveðráttan óhagstæð með tilliti til grassprettu, hirð- ingar og verkun votheys hefur ekki gengið sem skyldi. Ein- falt er þá að gefa kúnum bætiefnablöndu til að tryggja þeim nægjanlegt E-vítamín á innistöðunni. Sérstaklega áríðandi er að kvígum og geldum kúm sé gefin bætiefnablanda, síð- ustu mánuðina fyrir burð. Það er á þessum tíma sem ónæm- iskerfið örvast til að það valdi hlutverki sínu fyrir og eftir burð. Þegar gefin er bætiefnablanda sem inniheldur steinefni og vítamín, er mikilvægt að fylgja leiðbeiningum framleið- enda, sérstaklega varðandi selen. Selen er eitrað sé það gefið í of stórum skömmtum. Því ber að skoða selenmagn í heild- arfóðri skepnunnar í ljósi þarfa hennar fyrir þetta mikilvæga snefilefni. Eftir Elisabeth Kommisrud hjá Geno og Olav Österås, Helsetjenesten for storfe. Þýtt og staðfært úr Buskap nr. 8, 2005. Sigtryggur Jón Björnsson og Sverrir Heiðar, LBHÍ Hvanneyri. Í rúlluböggum getur magn E-vítamíns verið breytilegt - bæði á milli einstakra bagga og í einum og sama bagga. E-vítamín - vandi við vetrarfóðrun? Kýr sem mjólkuðu yfir 10.500 kg mjólkur á árinu 2005 Nafn Númer Faðir Númer Mjólk Nafn bús Rófa 164 Búi 89017 11.265 Nýjabæ, Vestur-Eyjafjallahreppi Hít 312 Sporður 88022 11.104 Brakanda, Hörgárdal Eyða 132 99999 11.051 Hraunhálsi, Helgafellssveit Prýði 14 Tjakkur 92022 10.966 Stóra-Ármóti, Hraungerðishreppi Sossa 195 Hvanni 89022 10.875 Langholtskoti, Hrunamannahreppi Gláma 913 Krossi 91032 10.767 Stóru-Hildisey II, A-Landeyjum Pála 71 Tjakkur 92022 10.736 Bessastöðum, Heggsstaðanesi Snegla 256 99999 10.733 Kirkjulæk II, Fljótshlíð Spör 189 Þyrnir 89001 10.666 Svertingstöðum II, Eyjafjarðarsveit Sossa 220 Kaðall 94017 10.539 Leirulækjarseli, Borgarbyggð Sunna 194 Hlemmur 91004 10.518 Vöglum, Akrahreppi Bú sem hafa yfir 7000 kg eftir hverja árskú og 10 árskýr eða fleiri árið 2005 Eigandi Heimili Árskýr Kg mjólk Eggert og Páll Kirkjulæk II, Fljótshlíð 35,5 7.669 Reynir Gunnarsson Leirulækjarseli, Borgarbyggð 24,6 7.445 Laufey og Þröstur Stakkhamri, Miklaholtshreppi 29,0 7.137 Jóhann og Hildur Stóru-Hildisey II, A-Landeyjum 33,3 7.125 Daníel Magnússon Akbraut, Holtum 18,2 7.003 Nokkrar fjölda- og meðaltalstölur úr skýrsluhaldinu árið 2005 Búnaðarsamband Fjöldi búa Fjöldikúa Árskýr Bústærð Nyt,kg Kjarnfóður Kjalarnesþings 6 239 154,4 25,7 4.842 1.172 Borgarfjarðar 59 2.174 1672,6 28,3 5.145 952 Snæfellinga 26 900 663,6 25,5 5.393 889 Dalasýslu 15 551 383,9 25,6 4.788 642 Vestfjarða 23 892 657,4 28,6 4.836 915 Strandamanna 1 49 31,4 31,4 4.040 V-Húnavatnssýslu 19 649 434,2 22,9 5.234 971 A-Húnavatnssýslu 32 1.098 780,5 24,4 5.219 1.078 Skagfirðinga 59 2.653 1919,8 32,5 5.401 1.045 Eyjafjarðar 104 5.496 4020,8 38,7 5.196 956 S-Þingeyinga 67 2.015 1505,7 22,5 5.058 947 Austurlands 31 1.092 806,9 26,0 4.893 1.030 A-Skaftafellssýslu 11 394 275,8 25,1 5.489 966 V-Skaft., Rang. 111 4.644 3246,7 29,2 5.477 989 Árnessýslu 120 5.815 4049,5 33,7 5.497 1.104 Landið allt 684 28.661 20.603,2 30,1 5.281 998 Hvað má bjóða þér í dag? Jóna Kristín Guðmundsdóttir, Kirkjulæk II, gefur kúnum. Guðmundur Helgi, sonur hennar, ekur hjólbörunum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.