Bændablaðið - 27.01.2006, Qupperneq 15

Bændablaðið - 27.01.2006, Qupperneq 15
15Þriðjudagur 31. janúar 2006 Ytri Rangá er með betri lax- veiðiám landsins og veiddust þar um þrjú þúsund laxar sl. sumar sem er svipuð veiði og árið áður. Mikil fiskiræktun hefur átt sér stað í ánni hin síð- ari ár. Þorgils Torfi Jónsson, formaður veiðifélagsins sagði að mikil aðsókn væri á sumrin í þau svæði árinnar sem ræktuð hafa verið upp eins og Ægis- síðufossarnir, Rangárflúðir og Árbæjarfoss. Hann sagði að unnið væri að því að stækka veiðisvæðið með auknum seiða- sleppingum bæði ofar og neðan til í ánni. Árið 1990 hófust sleppingar í ána og það voru Búfisk-menn sem sáu um þær fyrst. Síðan kom Þröstur Elliðason sem leigutaki og vann nokkuð að sleppingum en Þorgils Torfi segir að ræktun- arstarfið hafi fyrst farið að ganga þegar veiðifélagið sjálft tók við þeim. Keyptu tvær fiskeldisstöðvar ,,Seiðaeldið er orðin mikil útgerð hjá okkur því að árið 2001 keypt- um við tvær fiskeldisstöðvar upp í Borgarfirði og þar með tókum við sjálfir alfarið yfir seiðaeldið og sleppingarnar. Stöðvarnar eru á Laxeyri og Húsafelli og kostuðu okkur 70 milljónir króna. Áður höfðum við eins og Þröstur Elliða- son keypt köttinn í sekknum þegar verið var að kaupa seiði af hinum og þessum eldisstöðvum. Seiðin voru einfaldlega ekki nógu góð. Það var því ekki fyrr en við vorum komnir með okkar eigin eldis- stöðvar sem þetta fór að ganga,“ segir Þorgils Torfi. Hann segir að nú sé þetta orðin mikil útgerð því í laxeldisstöðvun- um á Laxeyri og í Húsafelli sé framleitt gríðarlegt magn af laxa- seiðum fyrir nánast allar árnar í Borgarfirði og margar fleiri ár. Klakfiskur er tekinn af hverju vatnasvæði og hrognum og síðan seiðunum haldið sér. Þrjár mann- eskjur eru í fullu starfi við laxeld- isstöðvarnar. Greiddu út arð Árið 2003 seldi veiðifélagið fyrir- tækinu Lax-Á, sem Árni Baldurs- son á, helminginn í laxeldisstöðv- unum og rekur þær með okkur. Það er því mikið samstarf á milli Árna og veiðifélagsins því hann er leigutaki Ytri Rangár. Lax-Á er með margar ár í landinu á leigu og ræktar seiði í laxeldisstöðvunum á Húsafelli og Laxeyri. Þorgils Torfi segir að þeir hafi mjög gott sam- starf við Veiðimálastofnun sem hefur eftirlit með starfsemi eldis- stöðvanna. Stofnunin hefur verið í samstarfi við laxeldisstöðvarnar í tilraunaverkefni um afdrif laxa- seiða þegar þau fara í sjó. Tilraun- in fer fram í Kiðafellsá í Hvalfirði þar sem sleppt er 20 þúsund laxa- seiðum með sérstökum merkjum í þessari tilraun. Starfsemi Veiðifélags Ytri Rangár hófst árið 1990 og í fyrsta sinn var greiddur út arður til fé- lagsmanna árið 2004 samtals 10 milljónir króna og sama upphæð er greidd fyrir árið 2005. ,,Fram til ársins 2004 fóru allir peningar í uppbyggingu laxeldis- stöðvanna og Ytri Rangár. Það hefur allt gengið vel og nú er hægt að greiða út arð,“ segir Þorgils Torfi Jónsson. Veiðifélag Ytri Rangá Seiðaeldi orðin stór- rekstir hjá veiðifélaginu Heilfóðrun með KEENAN á Íslandi Leitið upplýsinga í síma 894 3065 Búnaðarsamband Austur- lands hefur sent eftirfarandi bréf til bænda á umráðasvæði þess: ,,Úrvinnslusjóður leggur gjald á allar smurolíur sem seldar eru í landinu. Sjóður- inn notar þetta gjald til að greiða kostnað af því að sækja og koma úrgangsolíu á mót- tökustöð, þar sem efnin fara síðan að mestu úr landi. Sjóð- urinn hefur gert samning við olíufélögin þar sem þau fá greitt fyrir hvern lítra sem þau sækja af úrgangsolíu. Samningurinn kveður á um að olían sé í tönkum sem hægt sé að dæla upp úr og séu a.m.k. 400 lítrar sóttir í einu (t.d. vera tvær 200 lítra tunn- ur). Olíufélögunum ber, sam- kvæmt samningi þessum, skylda til að sækja úrgangsol- íuna óski fyrirtæki, bændur eða aðrir eftir því hvort sem olían hafi verið keypt hjá þeim eða ekki. Rétt er fyrir bændur að hafa þetta í huga og nýta sér rétt sinn því víða safnast drjúgar birgðir af úrgangsolíu á búum. Sinni ol- íufélögin ekki þessu verkefni má láta Úrvinnslusjóð vita (www.urvinnslusjodur.is) og mun hann þá taka á því. Þetta er ekki neitt áskriftaferli heldur má einfaldlega safna olíunni saman, jafnvel yfir nokkur ár, og óska síðan eftir flutningi á þessu þegar lágmörkum er náð. Rétt er að taka fram að í þessa tanka sem dælt er uppúr mega ekki vera olíusmitaðar vörur, svo sem olíusíur, klútar, tvistar, plastefni og þess háttar, og eiga slíkar vörur að berast til söfnun- arstöðva (t.d. Sorpu) á kostnað hvers og eins.“ Rúnar Hjartarsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsam- bands Austurlands segir enn- fremur í bréfinu: ,,Úrgangsolíur eru víða vandamál, ekki síst til sveita, þar sem safnast geta tals- verðar birgðir af henni á nokkr- um misserum. Geymslan og meðhöndlun er oft bæði sóðaleg og varasöm. Ég sendi þetta vegna þess að nýverið fékk ég veður af þessum samningi Úr- vinnslusjóðs við olíufélögin og eftir að hafa kynnt mér hann, tel ég fullvíst að olíufélögin hafi ekki sinnt málinu nægilega vel hér á þessu svæði og vafalaust er svipað uppá teningnum víða annars staðar og sendi ég þetta þess vegna á önnur búnaðar- sambönd til íhugunar.“ Már Karlsson, fjármálastjóri Úrvinnslusjóðs sagði allt rétt og satt sem í bréfinu stendur. Samningurinn við olíufélögin væri upp á það sem segir í bréfinu. ,,Bændur eru yfirleitt umburðarlyndir og því munu þeir án efa gefa þann frest að úrgangsolía sé sótt til þeirra einu sinni eða tvisvar á ári eftir hvað þeir hafa stóra tanka en 400 lítrar eru sóttir sé þess óskað,“ sagði Már. Ábending til bænda Olíufélögunum skylt að sækja úrgangsolíu sé þess óskað

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.