Bændablaðið - 27.01.2006, Qupperneq 29

Bændablaðið - 27.01.2006, Qupperneq 29
29Þriðjudagur 31. janúar 2006 Theodór Þórðarson, lögregluvarðstjóri í Borgarnesi, tók þessa bráðskemmtilegu mynd af Hvanneyri. Theodór flýgur gjarnan um loftin blá og hefur þá myndavélina með sér. Miklar breytingar hafa orðið á Hvanneyri á liðnum árum eins og þeir sjá sem til þekkja. Tillaga til þings- ályktunar um þjóð- arblóm Íslendinga „Alþingi ályktar að holtasóley (Dryas octopetala) verði þjóðar- blóm Íslendinga.” Þannig hljóð- ar þingsályktun sem lögð hefur verið fyrir Alþingi. Í athuga- semdum við ályktunina segir: „Á síðasta ári vann starfshópur á vegum landbúnaðarráðherra, í samvinnu við menntamálaráð- herra, samgönguráðherra og umhverfisráðherra, að því að velja þjóðarblóm Íslendinga. Tilgangur verkefnisins var að velja blóm sem gæti haft táknrænt gildi og þjónaði hlutverki sem sameiningartákn, blóm sem nýta mætti í kynningar- og fræðslu- starfi bæði hér á landi og á erlend- um vettvangi. Sömuleiðis var markmið verkefnisins að skapa umræður um blóm og gróður til að auka samstöðu um gróður- vernd. Úrslitin urðu þau að holtasóley (Dryas octopetala) var valin eftir skoðanakönnun og kosningu landsmanna. Niðurstöður voru kynntar ríkisstjórn og síðan opin- beraðar við sérstaka athöfn í Saln- um í Kópavogi föstudaginn 22. október 2004. Ríkisstjórnin hefur síðan fjall- að um málið og til að staðfesta enn frekar að holtasóley sé þjóð- arblóm Íslendinga er lagt til að Alþingi álykti þar um og því er þessi tillaga lögð fram.” Það var Ásdís Sigurjónsdóttir húsfreyjan á Syðra Skörðgili sem átti hugmyndina um val á íslenska þjóðarblóminu. Hún sendi erindi sitt til Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra sem unnið hefur málinu framgang. Þúsundir Íslendinga völdu þjóðarblómið haustið 2004 og var myndin af þeim Ásdísi og Guðna tekin við það tilefni. Á fundi byggðarráðs Húna- þings vestra þann 9. janúar sl. var fjallað um þá ákvörðun Árna Magnússonar, félags- málaráðherra að færa verkefni Fæðingarorlofssjóðs norður í Húnavatnssýslur og var neðan- greind ályktun samþykkt af því tilefni: "Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar ákvörðun Árna Magnússonar, félagsmálaráð- herra um að færa verkefni Fæð- ingarorlofssjóðs til Vinnumála- stofnunar og í framhaldinu norð- ur í Húnavatnssýslur. Flutningur opinberra starfa til landsbyggðar- innar er ávalt fagnaðarefni og mun samþykkt þessi tvímæla- laust efla atvinnulíf í Húnaþingi. Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir sig reiðubúið að vinna að framgangi verkefnisins í sam- vinnu við þá aðila sem um það munu fjalla." Frá þessu er greint á heimasíður Húnaþings vestra. Fæðingarorlofssjóður í Húnavatnssýslur

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.