Bændablaðið - 27.01.2006, Síða 39
39Þriðjudagur 31. janúar 2006
STEINEFNASTAMPUR
FÓÐURBLANDAN HF.
Reykjavík, Selfossi, Hvolsvelli
Bústólpi ehf. Akureyril
Sími 570-9800
www.fodur.is
Komum í veg fyrir
steinefnaskort,
veitum frjálsan
aðgang að
steinefnum.
Forysta í fóðrun
Skömmu fyrir jólin var fyrsti
bærinn í Akrahreppi í Skaga-
firði tengdur við hitaveitu. Síð-
an hafa allnokkrir bæir verið
tengdir og verður því haldið
áfram í vetur. Víða þarf að gera
lagfæringar á lagnakerfi innan-
húss áður en heita vatninu er
hleypt á og það takmarkar hvað
hratt gengur að tengja bæina.
Áætlað er að búið verði að
tengja alla bæi, sem hitaveitan
nær til, í águstmánuði á þessu
ári. Það var sl. vor sem hafist
var handa við að leggja hita-
veitulögn frá Varmahlíð í
Blönduhlíðina.
Það eru Skagafjarðarveitur sem
leggja til vatnið en Steypustöð
Skagafjarðar sem sér um að koma
öllum lögnum í jörð og heim að
þeim byggingum sem tengja á við
hitaveitu. Alls munu það verða um
70 byggingar, auk íbúðarhúsa eru
það sumarbústaðir og útihús. Vatn-
ið er tekið úr borholu í Reykjahóli
við Varmahlíð. Aðalstofnlögn úr
Varmahlíð yfir Héraðsvötn er fjög-
urra tommu stálrör. Þar greinist
lögnin til tveggja átta. Í framhluta
sveitarinnar endar lögnin við bæ-
inn Uppsali en að norðan við bæ-
inn Ytri-Brekkur. Á báðum endum
er stofnæðin úr plast og einnig eru
plaströr í öllum heimæðum. Alls
mun lögnin með heimæðum vera
38 kílómetrar að lengd og mun
þetta stærsta verkefni Skagafjarð-
arveitna til þessa. Ekki munu allir
bæir í hreppnum tengjast hitaveit-
unni. Í framhluta sveitarinnar er
mjög strjálbýlt og ekki mögulegt
að koma þangað nægilega heitu
vatn. Þá standa tveir ystu bæir
hreppsins svo hátt að ekki þykir
hagkvæmt að leiða vatnið þangað.
Bæir í Blönduhlíð
fá heitt vatn
Starfsmenn Skagafjarðarveitna eru að tengja bæina í Blönduhlíðinni einn af öðrum. Mynd ÖÞ
NÁMSKEIÐ FYRIR
NÝJA FRJÓTÆKNA
Nautastöðin á Hvanneyri, Bændasamtök Íslands og
Búnaðarsamband Suðurlands boða til námskeiðs fyrir
þá sem vilja læra handbrögð frjótækna. Námskeiðið
er einkum ætlað búfræðingum
Námskeiðið verður haldið á Selfossi dagana 20. mars
til 7. apríl nk. Skráning á námskeiðið er í síma 437-
0020 dagana 1. til 10. febrúar.
Lágmarksþátttaka er 6 nemar en ekki er hægt að hafa
fleiri en 12 nema á námskeiðinu. Verði þátttaka
umfram það er áskilinn réttur til að hvert
búnaðarsambandssvæði eigi fulltrúa á námskeiðinu.