Bændablaðið - 27.01.2006, Side 40
40 Þriðjudagur 31. janúar 2006
Úr upp-
skrifta-
bókum
bænda!
Reyklausar á grill - nautahryggsneiðar
Gott og einfalt og ekki spillir eldur eða reykur þessari grillstund.
250 g framhryggjarsneið - ein á mann
1 msk. grófmulinn svartur pipar
1 msk. grófmulinn grænn pipar
1 msk. grófmulinn rósapipar
Penslið steikurnar með olíu. Blandið saman pipartegundunum og
nuddið á steikurnar. Grillið við snarpan hita í 3-4 mín á hvorri hlið. Þá
eru steikurnar léttsteiktar en auðvitað má bæta við eða draga frá svo
sem eins og mínútu til að koma til móts við sérstakar óskir.
Berið fram með meðlæti að eigin vali.
Uppskrift af www.kjot.is
Lambalæri & kartöflur
Handa 8
1 lambalæri
4 msk. ólífuolía
6 hvítlauksrif, 2 skorin í ræmur, 4 söxuð
1 msk. saxað rósmarín , nýtt (eða 1 tsk. þurrkað)
2 msk. mulið timjan, nýtt (eða 1 msk. þurrkað)
salt og pipar
2 kg kartöflur í sneiðum
40 g smjör
Nuddið kjötið með olíu. Skerið litlar, djúpar rifur í kjötið og stingið
hvítlauksræmunum þar í. Stráið kryddinu, einnig salti og pipar, yfir
kjötið.
Raðið kartöflunum á smurt fat, sem er heldur lengra en lærið. Stráið
salti, pipar og söxuðum hvítlauk yfir kartöflurnar og dreifið smjöri yfir.
Setjið fatið neðst í ofninn og kjötið á grind þar yfir, svo kjötsafinn
drjúpi á kartöflurnar. Af þessu dregur uppskriftin nafn sitt.
Steikið við 225° í 1½ klst., eða þar til kjötið er hæfilega steikt.
Lækkið hitann, ef kartöflurnar brúnast um of. Hrærið í þeim einu sinni
eða tvisvar meðan á steikingu stendur.
Austurlenskur gúrkuréttur
Hérlendis er lítið gert af því að nota gúrkur í heita rétti en sumstaðar í
Austurlöndum er það algengt. Þessi réttur er súrsætur og ljúffengur.
Gúrkan skorin í bita, gjarna fremur óreglulega, þeir settir í sigti og
dálitlu salti stráð yfir. Látnir standa nokkra stund en síðan eru bitarnir
skolaðir og þerraðir á eldhúspappír. Blaðlaukurinn skorinn í ræmur,
paprikan fræhreinsuð og skorin í bita og chilialdinið saxað smátt. Ol-
ían hituð á pönnu og blaðlaukurinn steiktur við meðalhita í nokkrar
mínútur. Gúrkum, papriku og chili bætt á pönnuna, steikt áfram í
nokkrar mínútur og hrært oft á meðan. Ananasinn er svo settur á pönn-
una ásamt safanum úr dósinni, ostrusósu, sojasósu og salthnetum, og
látið malla þar til ananasinn er heitur í gegn. Smakkað til og borið fram
heitt, t.d. með hrísgrjónum eða núðlum.
1 íslensk gúrka
salt
15cm bútur af blaðlauk (hvíti hlutinn)
1 íslensk paprika
1/2 chilialdin, eða eftir smekk
3 msk olía
1 lítil dós ananas í bitum
2 msk ostrusósa
1 msk sojasósa
1-2 msk salthnetur (má sleppa)
Uppskrift vikunnar á www.islenskt.is - vef grænmetisbænda
Kartöflusalat
Forsoðnar parísarkartöflur
Kapers
Ólívur
Rauðlaukur (í sneiðum)
Olía
Paprikuduft
Salt og pipar (nýmulinn)
Öllu blandað saman. Salatið á að vera klístrað. Ekki fljótandi í olíu.
Mánud.-Föstud. Laugard. Sunnudagar/helgidagar
Svíþjóð Engar takmarkanir Engar takmarkanir Engar takmarkanir
Ísland Engar takmarkanir Engar takmarkanir Engar takmarkanir
Finnland 7-21 7-18 12-21 júní-ág, nóv-des
Danmörk Engar takmarkanir Til 17 Lokað (litlar hverfaversl. undansk.)
Noregur 6-21 6-18 Lokað (litlir söluturnar undansk.)
Þýskalandb 6-20 6-16 Lokað, vissar undantekningar
Austurríki 6-19.30 6-17 Lokað, vissar undantekningar
Holland 6-22 6-22 Lokað, vissar undantekningar
Belgía 5-20 5-20 5-13
Lúxemborg 6-20 6-18 6-13
Stóra-Bretland Engar takmarkanir Engar takmarkanir Engar takmarkanir
Írland Engar takmarkanir Engar takmarkanir Vissar takmarkanir
Frakkland Engar takmarkanir Engar takmarkanir Vissar takmarkanir
Ítalía 7-22 7-22 Lokað, vissar undantekningar
Grikkland 8-20 8-18 Lokað, vissar undantekningar
Spánn 8-14, 16-21 8-14, 16-21 Lokað, vissar undantekningar
Portúgal 6-24 6-24 8-13
a Taflan er lítillega einfölduð, t.d. geta afgreiðslutímar verið breytilegir eftir stærð verslana.
b Hámark 80 klst. á viku.
Heimild: Skýrsla NBC frá 2003 um matvælaverð (Samantekt Mats Reidius úr upplýsingum frá Svensk Handel.) /EB.
Undirbúa við-
byggingu við
dvalarheimilið
í Borgarnesi
Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri
í Borgarbyggð, sagði í samtali
við Bændablaðið að mikil þörf
væri fyrir stækkun dvalarheim-
ilis aldraðra í Borgarnesi og þá
sérstaklega hjúkrunarþáttinn á
dvalarheimilinu. Það vanti fleiri
hjúkrunarrými.
„Það er starfandi vinnuhópur
sem vinnur að viðbyggingu við
dvalarheimilið. Byggingarfram-
kvæmdir eru ekki hafnar, en verið
er að móta hugmyndir um hvernig
menn vilja sjá þessa viðbyggingu.
Dvalarheimilið í Borgarnesi er
samtengt heilsugæslustöðinni og
lengi vel reyndi dvalarheimilið að
kaupa hluta af húsnæði heilsu-
gæslunnar og vildi að ríkið byggði
við. Það kom svo í ljós árið 2004
að af því yrði ekki. Þá settust
menn niður og eru nú að vinna að
því að láta hanna viðbyggingu við
dvalarheimilið þar sem fyrst og
fremst verða hjúkrunarrými,“
sagði Páll.
Hann sagði að um þessar
mundir væri biðlisti eftir plássi á
dvalarheimilinu en eftir stækkun,
sem vonandi hæfist fljótlega, ætti
hann að styttast ef ekki hverfa.
Í skýrslu NBC um matvælaverð á
Norðurlöndunum, frá árinu 2003, er
að finna fróðlega töflu sem gefur
yfirsýn yfir leyfilegan opnunartíma
matvöruverslana á þeim tíma.
Sambærilega töflu er að finna í
skýrslu Samkeppniseftirlitanna á
Norðurlöndunum sem kom út í
desember. Hafa ber í huga að taflan
er lítillega einfölduð, t.d. geta
opnunartímar verið breytilegir eftir
stærð verslana. Engu að síður má
lesa úr henni að reglur um
opnunartíma matvöruverslana á
Íslandi eru með því rýmsta sem
gerist í þeim löndum sem taflan nær
til. Með öðrum orðum, þjónusta
hvað þetta varðar er með því mesta
sem þekkist og væntanlega fer
samkeppni á þessum markaði að
einhverju leyti fram í formi
opnunartíma. Það er hins vegar
umhugsunarefni hverju neytendur
eru bættir þegar upp er staðið. Því
hlýtur að fylgja umtalsverður
kostnaður að hafa opið um helgar
sem greiða þarf í hærra vöruverði.
Á móti kemur hins vegar sá augljósi
kostur fyrir neytendur að geta keypt
inn á þeim tíma sem þeim best
hentar ./Erna Bjarnadóttir
Leyfilegir afgreiðslutímar matvöruverslana í nokkrum Evrópulöndum