Bændablaðið - 27.01.2006, Side 43

Bændablaðið - 27.01.2006, Side 43
43Þriðjudagur 31. janúar 2006 Í síðustu viku var haldin ráð- stefna í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Þar flutti erindi meðal annarra Guðný H. Jakobsdóttir, formaður Búnaðarsamtaka Vesturlands. Hún nefndi erindi sitt ,,Auðlindin landbúnaður á Vesturlandi." Þar fjallaði hún meðal annars um að landbúnaði fylgdi fólk og því hljóti grunnskóli að vera ein af styrkustu stoðum sveitanna. Hún benti á að mikið hefði gengið á í þeim málum með þeirri samein- ingar- og hagræðingaröldu sem gengið hefur yfir landið að undan- förnu. Þar hafi skólar jafnvel verið skornir af, en hennar skoðun er að nær væri að styrkja þá og efla. Enda væru góðir skólar forsenda þess að fólk gæti búið út á landsbyggðinni því ef svo er ekki þurfa börnin að fara burtu í skóla og þá er stutt í að fullorðna fólkið fylgi á eftir. Hún sagði að auðlind sveitanna væri ekki eingöngu kúa- og fjárbú- skapur heldur væri almenn nýting á landinu svo sem veiði í ám og vötn- um, frístundabyggð, skotveiði- hlunnindi, skógrækt og fleira ekki síður mikilvægt. Hún ræddi líka um að auðlindir sveitanna væru viðkvæmar og ekki sama í hvað höndum þær lenda. Hún ræddi um háskólana tvo á Vesturlandi, Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri og Viðskiptahá- skólann á Bifröst, og lét í ljós von að þeir væru styrkur fyrir Vestur- land. Varðandi búskapinn sagðist Guðný vonast til að hann fengi tækifæri til að halda áfram að dafna. Kúabúskapurinn haldi áfram að tæknivæðast og hagræðingin að aukast. Mikla auðlind að finna í sveitum landsins - sagði formaður Búnaðarsamtaka Vesturlands Í jólablaði Bændablaðsins birtist yfirlit yfir steinefna- snefilefna og vítamínblöndur sem eru á boðstólum fyrir búfénað hér á landi. Núna birtist tafla sem sýnir innihaldslýsingu á forðastautum. Báðar töflurnar voru gerðar vegna átaksins „Aukum mjólkurframleiðsluna“ sem BÍ stendur fyrir. Innflytjandi: Vistor hf All-Trace All-Trace Forðastautur: All-Trace SmAll-Trace "Dry Cow" "Hi-Iodine" Líftími: 8 mán. 6 mán 4 mán. 6 mán. Gripastærð: > 150 kg > 75 kg > 150 kg > 150 kg Innihaldsefni Kopar 136 mg 62 mg 98.3 mg 177.5 mg Kóbolt 2.0 mg 1.1 mg 4.0 mg 2.5 mg Selen 2.1 mg 0.6 mg 2.4 mg 2.7 mg Mangan 69.0 mg 36.1 mg 152.3 mg 90.2 mg Zink 112.0 mg 52.2 mg 254.7 mg 150.5 mg Joð 4.1 mg 1.1 mg 16.7 mg 18.9 mg Vítamín A 4578 a.e. 3000 a.e. 9395 a.e. 5945 a.e. Vítamín D3 916 a.e. 600 a.e. 1879 a.e. 1190 a.e. Vítamín E 9 a.e. 9 a.e. 28 a.e. 11.9 a.e. Verð á 2 stautum ca 900 kr ca 500 kr ca 900 kr ca 900 kr Yfirlit dagsskömmtunar ýmissa Agrimin forðastauta. M.v. að nautgripnum séu gefnir 2 stautar í einu (skammtastærð).

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.