Bændablaðið - 28.01.2009, Side 1

Bændablaðið - 28.01.2009, Side 1
10-11 Vaxtarsprotarnir blómstra á nám- skeiðum Impru 12 Skógarbændur hagnast á kol- efnisbindingu 2. tölublað 2009  Miðvikudagur 28. janúar  Blað nr. 297  Upplag 17.500 4 Mikill samdráttur í sölu landbúnaðartækja Sextán dráttarvélum var ekið í fararbroddi mótmælenda sem gengu frá Samkomuhúsinu á Akureyri og inn á Ráðhústorg laugardaginn 24. janúar síðast- liðinn. Um 300 manns tóku þátt í mótmælafundi sem þar fór fram og kröfðust mótmælendur þess að ríkisstjórnin viki frá og breyting- ar yrðu gerðar í Fjármáleftirlitinu og Seðlabankanum. Ræðumenn á fundinum voru Embla Eir Oddsdóttir og Guðbergur Egill Eyjólfsson bóndi í Hléskógum. Guðbergur gerði erfiða stöðu bænda að umtalsefni í ræðu sinni. Meðal annars benti hann á hversu makalaust það væri að eina málefn- ið sem tengdist landbúnaði og væri til umræðu á Alþingi væri matvæla- frumvarpið. „Þegar bændur standa höllum fæti, sem og samfélagið allt, þá er matvælafrumvarpið eina framlag ríkisstjórnarinnar til mál- anna. Þeir hafa að vísu mælst til þess við bankana að veita frest á afborgunum af lánum bænda en það er bara frestur, engin lausn. Ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar er því algert. Bágur efnahagur bænda er ekkert nýtt fyrirbæri. Framkoma ríkisvaldsins hefur verið með þeim hætti í garð sauðfjárbænda að nýliðun er nánast engin í greininni og meðalaldur sauðfjárbænda er kominn í 58 ár. Nútíma Íslendingar sætta sig ekki við þau kjör sem sauðfjárbændum er boðið upp á. Mér er spurn er það virkilega ætlun ríkisvaldsins að ganga af þess- ari atvinnugrein dauðri,“ sagði Guðbergur í ræðu sinni. Í samtali við Bændablaðið sagð- ist Guðbergur vona að hann og aðrir bændur sem mættu til mót- mæla á Akureyri hafi með því lagt sín lóð á vogarskálarnar til þess að ríkisstjórnin færi frá. Guðbergur átti frumkvæðið að því að bænd- ur mættu á staðinn á dráttarvélum. Spurður hvort það hafi aldrei komið til greina að mæta með mykjutanka í eftirdragi að frönskum sið sagði Guðbergur að á það hefði nú verið minnst, en þó bara í gríni. Spurður hvort hann eigi von á því að þurfa að mæta til mótmæla að viku lið- inni sagði Guðbergur að það gæti nú farið eftir því hverjir yrðu komn- ir við stjórnvölinn þá. „Það verður að grípa til einhverra aðgerða til að styðja við bændur. Það verður að lækka vexti og matvælafrumvarp- inu á að henda. Bæði Framsókn og Vinstri græn eru á móti matvæla- frumvarpinu og ég treysti því að því verði bara sópað út af borðinu. Það verður bara að gerast og ég brýni stjórnmálamenn til að gera það. Ég trúi bara ekki öðru en að ef Vinstri græn eiga aðkomu að stjórn þá muni þeir koma í veg fyrir að það fari í gegn. Í það minnsta verður að taka út þennan lið um innflutning á hráu, ófrosnu kjöti.“ „Mér er misboðið“ Guðbergur var ekki eini bóndinn sem stóð í ræðustól á mótmælafundi síðata laugardag því á Egilsstöðum hélt Guðveig Eyglóardóttir bóndi á Valþjófsstað í Fljótsdal jafnframt ræðu. Guðveig var ómyrk í máli og lýsti ábyrgð á hendur ríkisstjórn og útrásarvíkingum. Það væri ekki þjóðin sem að væri sek. „Mér er misboðið, ég vakna ýmist reið, dofin eða sorgmædd yfir ástandinu. Hvernig má það vera að samþykkt hefur verið að skerða lífsgæði barna þessa lands með því að setja þau í ævilangan þrældóm, stafla fullorðnu fólki landsins í kojur á stofnunum, loka heilbrigðisstofn- unum og þar fram eftir götunum,“ sagði Guðveig meðal annars í ræðu sinni. Bændur mótmæla Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Bændasamtök Íslands hafa tekið einarða afstöðu gegn því að leitað sé eftir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sú afstaða er byggð á því mati að hagsmunum íslensks landbún- aðar verði ekki sinnt sem skyldi í sambandinu. Þar vegur eftirtalið þyngst: Í fyrsta lagi er ljóst að íslensk- ur landbúnaður þarf á tollvernd að halda en hún mun falla niður dag- inn sem aðild Íslands að ESB tekur gildi. Ýmsar ytri aðstæður ráða því að framleiðsla búvara verður ávallt dýr hér á landi og má þar helst nefna há laun og einhæfni sem meðal annars ræðst af veðurskil- yrðum. Búvöruframleiðslan þolir illa sveiflur en tollverndin veitir henni stöðugleika. Í öðru lagi vill íslenskur land- búnaður leggja sitt af mörkum til þess að efla matvælaöryggi þjóð- arinnar. Í þeirri niðursveiflu sem orðið hefur í hagkerfi heimsins að undanförnu hafa fjölmargar þjóðir beint sjónum sínum að mikilvægi þess að framleiða sem mest af mat- vælum sínum sjálfar. Aðild Íslands að ESB stefnir í þveröfuga átt því hún byggist á því að matvæli séu framleidd þar sem hagkvæmast er. Hún mun því leiða til hruns í fram- leiðslu svína- og alifuglakjöts og mikils samdráttar í mjólkurfram- leiðslu. Í þriðja lagi viljum við standa vörð um heilbrigði íslenskra búfjár- stofna og þær gæðavörur sem við höfum möguleika á að framleiða hér á landi. Það gerum við ekki með því að treysta á ótryggan inn- flutning. Í fjórða lagi eru það hagsmunir landsbyggðarinnar að landbúnaður sé sem blómlegastur. Fjöldi fólks á landsbyggðinni hefur atvinnu af landbúnaði og störfum sem tengj- ast honum. Verði hrun í framleiðslu svína- og kjúklingakjöts hefur það alvarleg áhrif á hagkvæmni slátr- unar og kjötvinnslu. Fjölbreytni í byggðum landsins rennir einnig stoðum undir ýmsa þjónustu sem nauðsynleg telst. Í fimmta lagi sýnir reynsla nágrannaþjóða okkar að jaðarþjóð- ir í ESB njóta ekki ávinnings af sameiginlegri landbúnaðarstefnu sambandsins. Tekjur bænda hafa lækkað í Finnlandi og Svíþjóð og aukin tækifæri til útflutnings hafa ekki unnið upp samdrátt á innan- landsmarkaði. Þá hefur verðlækk- un á matvælum ekki orðið með þeim hætti sem spáð var fyrir um. Því veldur ekki hvað síst fákeppni í smásöluverslun sem er síst minni hér á landi en í nágrannalöndum okkar. Í sjötta lagi ríkir mikil óvissa um þróun sameiginlegrar landbúnaðar- stefnu ESB (Common Agricultural Policy – CAP). Hún hefur að und- anförnu stefnt í þá átt að aftengja framleiðslu og styrki í þeirri trú að þá geti bændur ráðið því hvað þeir framleiða. Þetta gildir tæpast um íslenska bændur sem ekki geta svo auðveldlega snúið sér að annarri framleiðslu. Nánar er fjallað um afstöðu bænda til Evrópusambandsins í sérstökum blaðauka sem fylg- ir Bændablaðinu í dag. Sjá bls. 12-16. Þess vegna eru bændur andvígir ESB Meirihluti kjósenda á móti aðild að ESB 59,8% landsmanna vilja ekki að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins sem birt var í vikunni. Í nóvember á síðasta ári sögðust 59,6% vera fylgjandi umsókn um aðild. Andstaðan á landsbyggðinni er sérstaklega hörð en þar eru 68,5% andvíg aðild að sam- bandinu. Á höfuðborgarsvæðinu eru 53,2% íbúa á móti aðild. Mest er andstaðan við aðild meðal kjósenda Sjálfstæðisflokks- ins, Frjálslynda flokksins og Vinstri grænna. 75% sjálfstæð- ismanna, 83,3% frjálslyndra og 71,1% vinstri grænna styðja ekki umsókn í ESB. Meðal framsókn- arfólks og þeirra sem ekki gefa upp stuðning við flokk er munurinn minni, þar sem tæplega 60 prósent styðja ekki umsókn. Meirihluti samfylkingarfólks, 73,1%, styður aðildarumsókn í ESB. Hringt var í 800 manns og spurt var: Á Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu? Tóku 73,4% afstöðu til spurningarinnar. Inni í blaðinu er fjallað um ESB frá ýmsum hliðum. Sjá bls. 7-8. Myndir │ Hugi Hlynsson Árið 2008 var metár í kjötsölu hér á landi. Alls seldust 25.833 tonn af kjöti sem svarar til 81,5 kg á íbúa og er það um 2 kg meira á mann en árið áður. Bæði var árið 2008 metár í kjötsölu hvað varðar heildarmagn en einnig á hvern íbúa. Sala á kindakjöti nam 7.481 tonni sem er 7,8% meira en 2007 og það er mesta sala kindakjöts síðan 1993. Hefur kindakjötið nú aftur náð þeim sess að vera vinsælasta kjöttegund landsmanna. Markaðshlutdeild kindakjöts var 29% á árinu 2008, alifuglakjöt var með 28,6%, svínakjöt með 25,8%, þá nautakjöt með 14% og loks hrossakjöt með 2,6%. Á bls. 16 er ítarlegt yfirlit um fram- leiðslu og sölu ýmissa búvara fyrir árið 2008, auk þess sem þróun sem þar er að finna þróun verðs á áburðarefnum á heimsmarkaði í íslenskum krónum á síð- asta ári. Kindakjötið aftur vinsælasta kjöttegundin Bændablaðið kemur næst út 10. febrúar

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.