Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 20
16 Bændablaðið | miðvikudagur 28. janúar 2009
Á markaði
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir desember 2008
Framleiðsla
des.08 okt.08
des.08
jan.08
des.08
Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
m.v. 12 mán.2008 des.07 3 mán. 12 mán.
Alifuglakjöt 506.666 1.498.468 7.380.532 -7,4 -23,0 -2,9 26,8%
Hrossakjöt 171.388 518.393 1.005.198 45,0 13,8 6,2 3,6%
Nautakjöt 257.504 896.591 3.606.948 7,2 -11,0 1,4 13,1%
Sauðfé * 16.787 4.981.670 8.930.494 -24,2 1,2 3,3 32,4%
Svínakjöt 531.393 1.752.335 6.662.139 13,1 12,5 9,4 24,2%
Samtals kjöt 1.483.738 9.647.457 27.585.311 6,2 -2,4 2,8
Mjólk 10.588.572 29.391.400 126.051.629 5,2 0,0 1,0
Sala innanlands
Alifuglakjöt 488.845 1.565.707 7.394.928 -8,1 -16,0 -0,8 28,6%
Hrossakjöt 84.345 279.717 677.105 83,0 33,2 5,0 2,6%
Nautakjöt 269.082 899.935 3.613.396 8,0 -10,2 1,4 14,0%
Sauðfé ** 570.199 2.029.517 7.481.102 20,9 14,2 7,8 29,0%
Svínakjöt 534.282 1.754.276 6.666.533 13,6 12,6 9,5 25,8%
Samtals kjöt 1.946.753 6.529.152 25.833.064 10,0 1,8 4,6
Sala á próteingrunni 9.194.460 28.860.631 117.119.187 4,9 -0,4 2,0
Sala á fitugrunni 11.072.047 30.154.065 112.296.910 3,9 1,6 3,3
* Sauðfé lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
** Sala á sauðfé p.r. mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsla og verslana.
Árið 2008 var metár í kjötsölu,
bæði í heildarmagni og sölu á
íbúa. Alls seldust 25.833 tonn
af kjöti eða 81,5 kg á íbúa, 2 kg
meira en árið 2007. Sala á kinda-
kjöti var 7.481 tonn, 7,8% meira
en 2007 og sú mesta síðan 1993 en
þá var kindakjötssala 8.088 tonn.
Metsala var á svínakjöti, 6.667
tonn, 9,5% meira en árið 2007.
Sala nautakjöts var 3.613 tonn,
1,4% aukning frá fyrra ári og
677 tonn seldust af hrossakjöti.
Sala alifuglakjöts var 7.395 tonn,
0,8% samdráttur frá fyrra ári en
þá var meiri sala en nokkru sinni
áður á alifuglakjöti.
Framleiðsla kjöts var 27.585
tonn, 2,8% meiri en árið 2007.
Sala kjöts á íbúa er sýnd á mynd
1. Aukning varð í sölu kinda- og
svínakjöts á íbúa frá fyrra ári, nauta-
kjötssala var svipuð en lítilsháttar
samdráttur í sölu alifuglakjöts á
íbúa. Meiri breytingar sjást ef litið er
10 ár aftur í tímann. Þá sést að sala
alifuglakjöts á íbúa hefur 2,2-faldast
og svínakjötsneysla aukist um 25%.
Sala nautakjöts hefur hins vegar
dregist saman um 1,8 kg á íbúa og
kindakjöts um 1,3 kg á íbúa. Því er
þó við að bæta að á tímabilinu janú-
ar til nóvember nam innflutningur á
kjöti sem svarar 3,5 kg á íbúa. Þar af
voru 1,6 kg alifuglakjöt, 1 kg nauta-
kjöt og 0,9 kg svínakjöt.
Markaðshlutdeild einstakra kjöt-
tegunda hefur því breyst í samræmi
við þetta, þrjár kjötgreinar skipta
með sér 80% af markaðnum nú.
Fyrir tíu árum skar kindakjötssala
sig hinsvegar verulega frá öðrum
kjötgreinum með 37% markaðs-
hlutdeild, sjá mynd 2.
Metár var í framleiðslu mjólk-
ur eins og áður hefur komið fram,
rösklega 126 millj. lítra mjólkur.
Sala á fitugrunni jókst um 3,3% frá
fyrra ári og á próteingrunni um tæp
2%. Þegar litið er á sölu afurða á
íbúa í lítrum á kg kemur fram sölu-
aukning drykkjarmjólkur en sam-
dráttur í sölu á jógúrt og skyri. Sala
osta á íbúa fer enn vaxandi og nam
16 kg/íbúa á síðasta ári./EB
Sala helstu mjólkurvara í ltr. og
kg á íbúa
2007 2008
Mjólk 134,9 137,6
Rjómi 7,8 7,8
Jógúrt 11,8 10,0
-innflutt 0,2 0,0
Skyr 10,9 10,3
Viðbit 5,6 5,7
Ostar 15,8 16,0
Innfl. ostar 0,7 0,0
Duft 2,2 2,0
Heimsmarkaðsverð á korni hefur nú hækkað á ný eftir að lágmarki virðist hafa verið ná í lok árs 2008. Hæst var
verðið í mars (hafrar) og um mitt sumar (hveiti, sojabaunir og maís). Verð á öllum tegundum hefur hækkað á
fyrstu vikum ársins 2009.
Enn lækkar meðalverð á greiðslumarki
Þann 1. febrúar n.k. verða staðfest viðskipti með 174.435 lítra
greiðslumarks. Alls eru viðskipti frá upphafi verðlagsársins þá orðin
1.252.455 lítrar sem er 60% af því sem selt hafði verið á sama tíma í
fyrra. Meðalverð síðustu 500 þús. lítra er nú 221,14 kr og hefur lækk-
að um 27,3% frá meðalverði við upphaf verðlagsársins. /EB
Verð á greiðslumarki verðlagsárið 2008-2009
Dagsetning
gildistöku
Sala á greiðslu-
marki ltr.
Uppsafnað
frá upphafi
verðlagsárs, ltr.
Meðalverð síðustu
500.000 ltr. kr/ltr*
1. september 2008 783.381 783.381 304,22
1. október 2008 19.387 802.768 297,52
1. nóvember 2008 0 802.768 -
1. desember 2007 101.756 904.524 288,32
1. janúar 2009 173.496 1.078.020 238,24
1. febrúar 2009 174.435 1.252.455 221,14
* Að baki meðalverði er að lágmarki miðað við síðustu 500 þúsund lítra.
Metsala á kjöti 2008
Mynd 1
Kjötsala í
kg/íbúa
Mynd 2
Markaðshlutdeild
eistakra kjöttegunda
Meðfylgjandi mynd sýnir þróun verðs þriggja
áburðarhráefna á heimsmarkaði í íslenskum
krónum á árinu 2008. Notað er meðalgengi
bandaríkjadals í hverjum mánuði en heimsmark-
aðsverð er gefið upp vikulega. Engu að síður ætti
hér að fást nokkuð glögg mynd af þróuninni.
Heimsmarkaðsverð náði hámarki í september
sl. en hefur síðan fallið hratt í takt við lækkandi
olíuverð í heiminum. Í bandaríkjadölum er verðið
nú lægra en það var í ársbyrjun 2007. Vegna lækk-
unar á gengi krónunnar er hráefnaverð í íslensk-
um krónum 30% hærra á ammóníum og tvöfalt
hærra á kalkammóníumnítrati en það var í ársbyrj-
un. Verð á fosfórsýru í íslenskum krónum (ekki á
myndinni) er sömuleiðis þrefalt hærra en það var
í ársbyrjun.
EB
Þróun verðs á áburðarhráefnum á heimsmarkaði