Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 24
20 Bændablaðið | miðvikudagur 28. janúar 2009 8 1 3 2 5 6 8 7 1 9 3 9 2 5 6 5 8 4 1 3 9 7 1 9 4 5 1 2 3 8 6 4 7 8 6 2 5 4 8 3 5 1 7 2 5 9 1 2 6 7 4 5 3 8 2 9 5 9 3 1 4 7 8 4 3 1 6 5 Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn- ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóðrétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari línum. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.sudoku.com og þar er einn- ig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Líf og lyst Toppurinn á máltíðinni Úr Hornafirðinum liggur leiðin í Skagafjörðinn. Þar hefur jörðin Réttarholt verið í eigu sömu fjöl- skyldunnar frá því 1895 og þar hefur alla tíð verið stundaður blandaður búskapur með kýr, sauðfé og hross. Jón Gíslason og Auður Friðriksdóttir hefja búskap 1973 og byggja fjós sem er tekið í notkun 1977. 1987 er féinu fækkað niðri hobbybúskap. Árið 2002 kemur sonur þeirra, Róbert Örn Jónsson, á fullu inn í búskapinn og fjótlega eða um 2004 breytum við fjósinu og hlöðu í lausagöngu með mjalta- bás og fjölgum kúnum um helm- ing eða í 60 kýr. Sama ár kynn- ist Róbert Anniku, en þau höfðu fengið hana lánaða frá nágrönn- um í steypuvinnu. Síðan hafa þau stundað búskap í samstarfi við foreldra Róberts. Er hann því fimmti ættliðurinn sem býr í Réttarholti. Býli? Réttarholt í Akrahreppi, Skagafirði. Staðsett í sveit? Við þjóðveg 76 um 9 km frá Varmahlíð, austan vatna. Ábúendur? Jón Gíslason, Auður Friðrikdóttir, Róbert Örn Jónsson og Annika Webert. Fjölskyldustærð? Við eigum hundinn Rex sem sér um að reka óboðna fugla úr tún- unum, kettina Snúlla og Jakka sem sjá um meindýravarnir og tvær kanínur, Kalla Kanínu og Stínu Stuð. Stærð jarðar? Jörðinn er um 200 ha vel gróin og um 80 ha eru ræktaðir auk þess erum við með á leigu 10 ha undir bygg á Vindheimum. Tegund býlis? Nær eingöngu mjólkurfram- leiðsla. Við seljum alla nautkálfa nema þá efnilegust sem við notum á kvígurnar. Erum líka með nokkrar kindur til að eiga kjöt á grillið og svo líka hross til að hreinsa úthagana svo að þeir verði ekki einn sinuflóki. Fjöldi búfjár og tegundir? 60 kýr, 80 geldneyti, 20 kindur, þar af ein sem heldur að hún sé kálfur og 20 hross, þar af tvö reiðhross. Hvernig gengur hefbund- inn vinnudagur fyrir sig í Réttarholti? Allir dagar byrja og enda á að fara í fjósið. Annars er það árstíð- arbundið. Jarðvinnsla, sauðburður og þjálfun unghrossa á vorin. Heyskapur á sumrin, auk þess sem við gerum út á rúllubinding og á haustin er þresking á korni sem við ræktum á um 20 ha. Kosturinn við að vera bóndi er fjölbreytni í starfi og að vera sjálfs síns herra. Þó launin séu ekki há er yndisarðurinn mikill. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfinn? Jarðvinsla og burður eru með því skemmtilegasta en að tína grjót úr flögum og ganga frá endum á rúll- um með því leiðinlegasta. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Ætli það verði ekki svipað og í dag en fyrir 5 árum breyttum við fjósinu og fjölguðum kúnum úr 30 í 60 annars er stefnan á meiri afurðir, auka kornræktina og efla hrossaræktina. Hvaða skoðunn hafið þið á félagsmálum bænda? Við erum ekki mjög virk í félags- málum en þökkum þeim sem gefa sig í það og vinna að hagsmunum bænda. Hvernig mun íslenskum lanbún- aði vegna í framtíðinni? Það er erfitt að segja til um það í dag, en vonandi batnar efna- hagurinn aftur og teljum við að íslenskum landbúnaði eigi eftir að vegna vel. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Helstu tækifærin eru að mark- aðsetja hreinleikan og hollustu íslenskra afurða. Það er stóraukin eftirspurn eftir lífrænt ræktuðm matvælum út í hinum stóra heimi og þar eiga íslenskar afurðir heima. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur, smjör og brauð. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Pizza og lasagne. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar við mjólkuðum fyrst í mjaltabásnum. Kýrnar voru svo stressaðar að varla kom deigur dropi úr þeim. En þegar menn og skepnur voru búin að venjast þessu nýja fyrirkomulagi er þetta þvílíkur munur að geta unnið uppréttur. Gott meðlæti með góðum mat er ómissandi og getur svo sannarlega verið toppurinn á hverri máltíð. Ekki skemmir fyrir að úrvalið er í raun ótæmandi því margt hráefni er hægt að leika sér að og útbúa úr því meðlæti sem allir falla fyrir. Rúbínhrísgrjón 5 dl basmatihrísgrjón 10 saffranþræðir ½ dl sjóðandi heitt vatn 1 msk. ólífuolía 1/2 msk. smjör 75 g þurrkuð trönuber 50 g rúsínur 50 g þurrkaðar apríkósur, fínt saxaðar 2 appelsínur (aðeins börkurinn) 25 g möndlur, fínt saxaðar 25 g pistasíur, fínt saxaðar sjávarsalt Aðferð: Leggið saffranþræðina í sjóðandi vatnið og hrísgrjónin í kalt vatn. Látið hvoru tveggja liggja í tíu mín- útur. Hellið vatninu af grjónunum, skolið þau og komið fyrir í potti og sjóðið í tíu mínútur. Htið smjör og olíu og pönnu. Sigtið grjónin og setjið út á pönnuna ásamt saffr- anvatninu. Bætið því sem eftir er af hráefnunum út á pönnuna og salt- ið. Hyljið pönnuna alveg og skiljið eftir á mjög lágum hita í 5-8 mín- útur. Sláið grjónin upp aftur með gaffli áður en þau eru borin fram. (Úr bók Yesmine Olsson Framandi og freistandi 2) Bakað sellerí 1 sellerí 2 msk. ólífuolía 2 msk. sítrónusafi tímían rósmarín dill salt 1 msk. möndlur 2 msk. sætar grænar baunir Aðferð: Skerið selleríið í þunnar stangir, eins og franskar kartöflur. Leggið stangirnar í eldfast mót. Blandið olíu, sítrónusafa og kryddi saman. Hellið blöndunni yfir selleríið og stráið möndlunum yfir. Bakið við 170ºC í um klukkustund. Hellið baununum í fatið og bakið þær með síðustu fimm mínúturnar. Fylltur rauðlaukur 4 meðalstórir rauðlaukar 150 g sveppir 10 g smjör 1 msk. rasp ¾ dl rjómi salt pipar Aðferð: Skrælið laukinn og skerið smá lok af. Takið innan úr lauknum, það er auðveltast að nota beittan hníf og teskeið. Saxið innmatinn smátt og steikið á pönnu, í smjöri, í um fimm mínútur. Hreinsið sveppina og saxið þá gróflega. Skellið þeim á pönnuna og steikið í um fimm mínútur, ásamt lauknum. Stráið raspi yfir allt saman. Hellið rjóma á pönnuna og smakkið til með salti og pipar. Setjið fyllinguna í laukana og setjið þá á plötu. Hellið örlitlu vatni á plötuna. Steikið við 200 ºC í um eina og hálfa klukkustund. (Af www.vefuppskriftir.com) ehg Gott er að slá rúbínhrísgrjónin upp með gafli áður en þau eru sett á disk, skreytt og borin fram. MATUR Bærinn okkar Réttarholt í Akrahreppi, Skagafirði Róbert Jónsson og Annika Webert. Auður Friðriksdóttir og Jón Gíslason.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.