Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | miðvikudagur 28. janúar 2009 Fréttir Fræðslunetið: Gylfi Þorkelsson, formaður stjórnar Fræðslunetsins, Gabriel N. Wetag'ula og Ólafur Ragnar Grímsson eftir að styrkurinn hafði verið afhentur á hátíðarfundinum. 750.000 króna styrkur úr vísinda- og rannsóknarsjóði Fræðslunets Suðurlands Styrkur úr vísinda- og rannsóknarsjóði Fræðslunets Suðurlands var afhent- ur á hátíðarfundi í byrjun ársins í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Alls sóttu 10 um styrk úr sjóðnum. Það var doktorsneminn Gabriel N. Wetag'ula frá Kenía sem hlaut styrkinn að þessu sinni fyrir rannsókn- ir sínar á því hvort rekja megi háan styrk kvikasilfurs í stórum urriða í Þingvallavatni til gufu sem kemur úr borholum við Nesjavelli. Það var Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem afhenti styrkinn, 750.000 krónur, nú sjöunda árið í röð sem styrkurinn er veittur. MHH Þorri blótaður á Selfossi Bóndadagurinn var síðastliðinn föstudag og strax um helgina hófust þorrablót um allt land. Eitt þeirra fyrstu var samkvæmt hefð haldið á Hótel Selfossi á laugardagskvöldið og þar tóku Finnborgi Magnússon í Jötunn Vélum og um 500 aðrir veislugestir hraustlega til matar síns. Af svipnum að dæma er tilhlökkunin mikil hjá Finnboga og bragðkirtlarnir þegar farnir að starfa. Mynd │ MHH Bændasamtök Íslands hafa boðað til kynningarfundar í framhaldi af ályktun Búnaðarþings 2008 um bótarétt vegna framkvæmda í almannaþágu og framkvæmd eignarnáms. Fundurinn verð- ur haldinn í Bændahöllinni í Reykjavík mánudaginn 9. febrú- ar nk. og er fulltrúum sveitar- félaga, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fyrirtækja á sviði línulagna sérstaklega boðið á hann. Bændur og aðrir landeigendur hafa orðið áþreifanlega varir við auknar verklegar framkvæmd- ir á undanförnum árum, bæði í almannaþágu og á vegum einkaað- ila, svo sem vegna virkjana, vega- gerðar, línulagna, efnistöku og fleira. Þessar framkvæmdir snerta hagsmuni landeigenda og valda oft óhagræði við landnotkun. Í sumu tilvikum rýra þær verðmæti jarða eða draga úr möguleikum eigenda á að ráðstafa landi sínu. Stjórnvöld hafa lagaheimildir til slíkra framkvæmda, til dæmis í Vegalögum, Orkulögum og víðar. Lengst af voru slíkar fram- kvæmdir það umfangslitlar að áhrif þeirra voru minniháttar, auk þess sem landeigendur litu gjarnan á það sem þegnskap að leggja til land fyrir litlar bætur. Með auknum og umfangsmeiri framkvæmdum og í ljósi þess að grunnþjónusta í almannaþágu er uppfyllt koma önnur sjónarmið til sögunnar. Það horfir til dæmis öðruvísi við þegar einkafyrirtæki beitir þessum lagaheimildum til þess að fara um eignarlönd með framkvæmdir. Bændasamtökin hafa því sett fram tillögur í fimm liðum sem hafa beri að leiðarljósi við fram- kvæmdir: 1. Að við undirbúning fram- kvæmda í almannaþágu verði farið eftir fyrirfram ákveðnu skipulagi þar sem kveðið er á um samráð og samkomulag við landeigendur og aðkomu Matsnefndar eignarnámsbóta. 2. Að ef breytingar eru gerðar á eldri mannvirkjum og ef eig- endaskipti verða á mannvirkj- um þá verði samningsréttur landeigenda virtur. 3. Að gerðar verði nauðsynleg- ar breytingar á Vegalögum og lögum um fjarskipti, sbr. álykt- un Búnaðarþings 2008. 4. Að teknar verði upp árlegar leigugreiðslur fyrir afnot af landi í stað eingreiðslu eins og tíðkast hefur. 5. Að ávallt verði unnið í fullu samráði við landeigendur þegar skipulag framkvæmda á sér stað. Eins og áður segir verður fund- urinn haldinn í Bændahöllinni mánudaginn 9. febrúar kl. 13:30 í Princeton 2 á annarri hæð. Frummælandi verður Karl Axelsson hrl. Fundur um bótarétt og eign- arnám vegna framkvæmda Þann 22. janúar sl. gerði Samkeppniseftirlitið húsleitir á skrifstofum Fóðurblöndunnar hf. og Mjólkurfélags Reykja- víkur hf. Voru húsleitirnar liður í rannsókn Samkeppniseftir- litsins á ætluðum brotum þess- ara fyrirtækja á samkeppnis- lögum. Einkum lýtur rannsóknin að hugsanlegu verðsamráði þessara fyrirtækja á fóðurmarkaði, þ.e. á markaði fyrir framleiðslu og sölu á jórturdýra-, svína- og alifugla- fóðri. Einnig er háttsemi á áburð- armarkaði til skoðunar. Rannsóknin er grundvölluð á upplýsingum og gögnum sem Samkeppniseftirlitið hefur aflað og mun rannsókninni verða flýtt eftir því sem kostur er, segir í tilkynn- ingu frá Samkeppniseftirlitinu. Í tilkynningu Fóðurblöndunnar í kjölfarið er lýst yfir fullum vilja til að eiga farsælt samstarf við Samkeppniseftirlitið við að upp- lýsa um allar staðreyndir máls til að vinda ofan af meintum ranghug- myndum Samkeppniseftirlitsins, og eftir atvikum einnig fram- kvæmdastjóra Landssambands kúabænda, um verðsamráð við keppinauta félagsins. -smh Meint samráð Fóðurblöndunnar og Mjólkurfélags Reykjavíkur/Líflands Bergvin Jóhannsson, formaður Félags kartöflubænda, segir kartöflubændur leita allra leiða til að knýja fram verðhækkun á afurð sinni, verslanir hafi hækk- að útsöluverð að undanförnu en ekkert hafi skilað sér í vasa bændanna. Hann segir Bónus- keðjuna veita mikla mótspyrnu gegn því að bændur fái til sín hækkun og aðrir fylgi í fótspor þeirra. „Einhverjar verslanir hafa hækkað lítillega við okkur, en hvergi nærri nóg til að fram- leiðslan standi undir sér,“ segir hann. Bergvin segist nú fá sömu krónu- tölu fyrir 300 tonna framleiðslu og hann fékk fyrir 90 tonn árið 1993. „Við berum sífellt minna úr býtum, við höfum mætt þessu með því að bæta sífellt við okkur og stækka en fáum sömu krónutölu í tekjur og fyrir 15 til 16 árum,“ segir Bergvin. Útlit er fyrir að áburður hækki um allt að helming frá því í fyrravor, að sögn Bergvins, sem hafi í för með sér að kartöflubændur hafi trauðla efni á að kaupa mikið magn. „Ég hugsa að menn reyni hvað þeir geta að minnka áburðarnotkun, sjá hvernig það kemur út,“ segir Bergvin. Hann telur ekki ólíklegt að margir kartöflubændur íhugi að hætta. „Ég held að margir muni setja niður í vor, nota eins lítinn áburð og hægt er, sjá hvað kemur út úr því sem og hvert verðið verði og hafi ekkert lagast, þá trúi ég því að margir hætti þessu bara!“ Samningar flestra kartöflubænda við sína kaupendur runnu út um nýliðin áramót og hafa þeir leitað eftir hækkun, en víða komið að lok- uðum dyrum. Kartöflubændur telja sig þurfa 20 króna hækkun á kílóið til sín en hafa fengið um 4 krónur þar sem mest er, ekkert sums stað- ar. Verslanir hafa hækkað útsölu- verð en það hefur ekki skilað sér til bænda. Bergvin Jóhannsson segir að nú sé mælirinn fullur. Framleiðslukostnaður hafi aukist umtalsvert á liðnum mánuðum svo sem öllum ætti að vera kunnugt, en kartöflubændum sé enn greitt smán- arverð fyrir afurðir sínar. Það hafi svo haft í för með sér að sífellt fækki í hópi kartöflubænda, þeir hætti einn af öðrum og nýliðun í greininni sé alls engin. Bergvin segir menn ekki sjá neinn hag í því að hefja kartöflu- rækt undir þessum kringumstæðum. „Bændur verða að fá meira í sinn hlut af afurðinni, við svo búið getum við ekki lengur unað,“ segir hann. Í viðtali við Bændablaðið í september í fyrra greindi Bergvin frá þeirri skoðun sinni að stóru verslanakeðjurnar hafi pínt verð til bænda niður úr öllu valdi á uml- iðnum árum, með tilkomu Bónus á sínum tíma hafi fótunum í raun verið kippt undan kartöfluræktinni en forsvarsmönnum verslanakeðj- unnar hafi orðið vel ágengt í þeirri fyrirætlan sinni að pína verðið niður. Verðið sem í boði sé til bænda sé svívirðilega lágt og í engu sam- ræmi við þá vinnu sem leggja þarf fram svo unnt sé að bjóða íslensk- um neytendum vistvæna gæðafram- leiðslu. Verslanakeðjurnar taka að jafnaði um 70-80% útsöluverðs í sinn hlut, en bændur og pökkunar- stöðvar skipta á milli sín því sem eftir stendur. Bergvin segir að fái bændur ekki meira í sinn hlut nú eftir ára- mót blasi við að enn fleiri kartöflu- bændur muni hætta ræktun, enda borgi sig engan veginn að framleiða kartöflur hafi menn ekki tekjur af starfsemi sinni. Það, hversu lágt verð sé greitt til þeirra, hafi svo haft í för með sér að kartöflubænd- ur geti ekki fylgt eftir þeirri þróun sem orðið hefur í greininni, bæði hvað varðar tækjakaup og eins séu hvergi á Íslandi til sérhannaðar kartöflugeymslur eins og víða tíðk- ast. Bergvin nefnir að í Hollandi fái þarlendir kartöfluræktendur styrk frá ríki til að byggja slíkar geymslur en hann er veittur á þeirri forsendu að verið sé að tryggja matvæla- öryggi landsins. Einnig fái þeir 20% styrk frá ríki vegna véla og tækjakaupa. „Við höfum ekki ráð á að fylgja þessari þróun eftir, það er alveg ljóst miðað við það verð sem við fáum fyrir okkar afurðir,“ segir Bergvin. MÞÞ Kartöflubændur hafa farið fram á hækkun en koma víðast að lokuðum dyrum Sama krónutala fæst fyrir 300 tonn nú og fékkst fyrir 90 tonn árið 1993! Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara hafa bundist samtökum um að hefja mark- vissa notkun á íslensku byggi í brauðgerð og bakstur. Fyrir stuttu gerði Kornax samkomulag við Eyrarbúið ehf. á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum um að dreifa möluðu byggi á almennan mark- að. Íslenskt bankabygg, heil bygg- korn, hefur hins vegar verið fáan- legt í nokkur ár. Bygg er auðugt af trefjaefnum og inniheldur svokallaða beta-glúkana sem eru vatnsleysanleg trefjaefni. Þau eru talin búin eiginleikum til lækkunar á kólesteróli í blóði og geta dregið úr sveiflum á blóðsykri. Þá er byggið er vítamínríkt og auð- ugt af flóknum kolvetnum (sterkju), steinefnum og andoxunarefnum. Bygg er nú ræktað í öllum lands- hlutum eftir miklar framfarir í korn- rækt á síðasta áratug samhliða betri veðurfarslegum skilyrðum. Unnið hefur verið markvisst að því að laga það að íslenskum aðstæðum með kynbótum. Hingað til hefur íslenskt bygg að mestu leyti verið notað í dýrafóður en með bættum aðstæð- um hefur áhugi stóraukist á að nota það til manneldis. Íslenskir bakarar nota íslenskt bygg Sama verð á veiðileyfum og í fyrra Stjórn Stangaveiðifélags Akur- eyrar hefur ákveðið að verðskrá á veiðileyfum, sem félagið hefur til umráða fyrir sumarið 2009, muni ekki hækka frá síðasta sumri. Forsvarsmenn félagsins gera ráð fyrir að nýt- ing verði betri nú á komandi sumri en var í fyrrasumar, m.a. í Ólafsfjarðará og Hofsá í Skagafirði. Þrátt fyrir nokkra hækkun hjá félaginu, er talið að fjárhagur sleppi fyrir horn ef sala veiðileyfa gengur vel. Hlutverk félagsins sé að útvega góð veiðileyfi á hagstæðum kjörum og tekur stjórn félagsins það hlutverk sitt alvarlega.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.