Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 28
2. tölublað 2009  Miðvikudagur 28. janúar Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út 10. febrúar Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri Áforms, vinnur að þróunarstarfi í Bandaríkjunum sem markaðs- ráðgjafi og tengiliður milli neyt- enda þar í landi og íslenskra framleiðenda matvæla. Í starfi sínu hefur hann aðallega unnið með verslunum Whole Foods og veitingastöðum vestanhafs. Hefur markaðsstarfið verið unnið í gegnum verslanirnar og þannig beint til neytenda undir íslensku vörumerki – og þaðan svo til veitingastaðanna. „Það hefur verið okkar leið að nálgast neytandann beint í stað þess að vinna í gegnum heildsölumark- aðinn,“ segir Baldvin en hann var hér á landi í stuttu stoppi um jólin. Íslensk bleikja og smjör „Nú í tvö ár hefur verið þróun- arverkefni í gangi við að koma íslenskum fiskafurðum í verslanir Whole Foods. Í júní í fyrra settum við upp sælkerahlaðborð í verslun- unum, í Washington og nágrenni. Þar steiktum við bleikju upp úr íslensku smjöri, sem virkaði að sjálfsögðu mjög vel, og buðum upp á skyr í eftirrétt. Stjórnendur verslananna sáu að þarna var tæki- færi til að búa til verkefni undir yfirskriftinni Sjálfbært Ísland, þar sem ýmsum skemmtilegum útfærslum með landbúnaðar- og sjávarafurðum væri teflt saman. Áhuginn varð svo mikill að við fórum að sjá möguleika á því að koma vörum fyrr inn í fleiri versl- anir en við höfðum gert ráð fyrir og var sjónum beint að bleikjunni, sem nóg var til af. Í september sáum við svo fram á að geta komið bleikjunni í allar verslanirnar. Það hjálpaði svo til að gengisþróun varð hagstæð útflutningi,“ segir Baldvin. Lærdómsríkt samstarf við fiskútflutningsfyrirtæki Það er Samherji er framleið- ir bleikjuna (Arctic Char) en Icelandic Group (áður Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna) sem er söluaðili. Baldvin segir að það sé mjög gagnlegt að vinna núna með fyrirtækjum í sjávarút- vegi og margt megi læra af þeim. „Sjávarútvegurinn er mjög mið- aður inn á að framleiða fiskafurðir fyrir útflutning, en landbúnaður- inn er gíraður bara inn á heima- markaðinn. Þá hafa umfram- birgðir í landbúnaðarframleiðslu verið álitnar vandamál. Við höfum verið að reyna að breyta þeirri hugsun með okkar markaðsstarfi í Bandaríkjunum þannig að reynt verði að nota umframbirgðirnar til markaðssetningar á erlendri grundu. Þessi samvinna við fisk- útflutningsfyrirtækin hefur þannig orðið okkur – og vonandi þeim líka – til góðs. Við sem erum að markaðsetja íslenskar landbún- aðarvörur erlendis og einblínum á neytendamarkaðinn, höfum þann- ig haft mjög gott af því að vinna með fiskútflutningsfyrirtækjunum sem horfa til heildsölumarkaða. Spennandi tímar framundan með bleikjuna Whole Foods rekur 270 versl- anir í Bandaríkjunum og Baldvin segir að áherslan hafi fyrst og fremst beinst að því að koma íslensku matvörunum í verslanir á Austurströndinni. Baldvin segir að fram að þessu hafi árangurinn verið sá að nú séu íslenskar vörur, skyr, smjör og ostur, í um 90 verslunum Whole Foods. Baldvin segir að síðasliðið haust hafi kjötvörur farið í um 70 verslanir. Reyndar hefur íslenskt kjöt farið í allt að 90 verslanir, en það hefur ráðist af framboði hér heima. „Við höfum haft það að markmiði að koma öllum íslensku afurðunum inn í allar búðirnar sem allra fyrst og það var á stefnuskránni að við myndum reyna að ná þessu mark- miði á tveimur árum. En nú þegar aðstæður hafa breyst að ýmsu leyti, meðal annars með veikingu krónunnar, þá hafa skapast ákveð- in sóknarfæri. Baldvin segir að nú þegar bleikjan sé komin inn í verslanir Whole Foods ráðist gengi henn- ar í verslununum af markaðnum. „Við erum komnir inn í búðirnar og það verður spennandi að sjá hvernig henni reiðir af. Við settum af stað alveg gríðarlegt auglýs- inga- og markaðsátak þann 7. jan- úar sl. og við sjáum árangur þess nú þegar inni á vef Whole Foods þar sem auglýsingar um bleikjuna hafa sést í nokkurn tíma á forsíðu. Þá vinnur hin öfluga markaðs- og kynningardeild Whole Foods að því hörðum höndum að koma bleikjunni á framfæri við fjölmiðla í Bandaríkjunum, auk kynning- arinnar í þeirra eigin verslunum sem er æði umfangsmikil.“ Nýjar víddir opnast Baldvin segir að áhugi Whole Foods á íslensku bleikjunni opni alveg nýjar víddir fyrir íslensk- ar matvörur. „Það er frábært að komast inn í þetta fyrirtæki, því þeir hafa svipaðar áherslur og við varðandi t.d. mikilvægi umhverf- isþáttanna í framleiðslunni; hrein- leikasjónarmið, dýraverndunarsjón- armið og notkun lyfja o.s.frv. Það er okkur því mikill sómi í því að kom- ast í svona samstarf. Ef þetta verk- efni heppnast vel opnast þannig fyrir okkur ný og einfaldari mark- aðsleið í öllum Bandaríkjunum en ekki bara á vissum svæðum. Samhliða myndi áhugi á íslenskum matvælum almennt aukast, t.a.m. á veitingastöðum, vegna þess að reglan er sú að ef Whole Foods sýnir vöru áhuga þá glæðist áhugi almennings um leið, enda er slegist um að komast þarna inn. Við vitum að þetta hefur líka margfeldisáhrif á aðra markaði þó ekki sé vitað hvað þau verði mikil.“ „Nú verður þessi bleikjukynn- ing í rúman mánuð og talið er að um 23-25 milljónir manna munu koma í verslanir Whole Foods á þessu tímabili,“ segir Baldvin. Hann segir að viðskiptavinirnir séu vel stætt fólk sem geri gæðakröf- ur og því sé almennt séð um mjög verðmætan markhóp að ræða fyrir íslenskar matvörur. Baldvin segir að árangurinn með bleikjuna nú á síðustu mánuð- um megi að hluta til þakka því að sífellt erfiðara verði að fá eldislax. „Laxinn hefur verið langvinsælasti fiskurinn á Bandaríkjamarkaði. Framleiðslugetan í laxeldinu er að minnka og upp hafa komið umhverfisslys og bakteríusýk- ingar sem sett hafa strik í reikn- inginn þannig að mun erfiðara er að fá lax en áður. Við höfum því lagt upp með það að bleikjan sé frænka laxins og að Íslendingar séu stærstu framleiðendur hennar í heimi,“ sagði Baldvin Jónsson og var svo farinn upp í flugvél til Bandaríkjanna til fylgjast með gengi bleikjunnar í verslunum Whole Foods næstu vikurnar. -smh Íslensk bleikja í allar verslanir Whole Foods í Bandaríkjunum Baldvin Jónsson: „Við sem erum að markaðsetja íslenskar land- búnaðarvörur erlendis og einblín- um á neytendamarkaðinn höfum þannig haft mjög gott af því að vinna með fiskútflutningsfyrir- tækjunum [...]“. Forsíða Whole Foods (www.wholefoods.com) fyrir skemmstu. Þórir formaður Félags kúabænda á Suðurlandi Á aðalfundi Félags kúabænda á Suðurlandi, sem haldinn var að Árhúsum á Hellu 26. jan- úar sl., var Þórir Jónsson bóndi á Selalæk í Rangárvallasýslu kosinn nýr formaður félagsins. Á sama fundi kynnti fráfarandi formaður, Sigurður Loftsson í Steinsholti, að hann hygðist gefa kost á sér til formennsku í Landssambandi kúa- bænda. Nýr formaður LK verður kosinn á næsta aðalfundi, 27. og 28. mars n.k. Aðalfundur ullarvinnslufyr- irtækisins Ístex hf. fyrir starfs- árið 2007-2008 fór fram þann 14. janúar sl. en reikningsár fyrir- tækisins er frá 1. nóvember - 31. október. Rekstrarniðurstaðan á árinu var tvískipt. Tekjur jukust um 85 milljónir króna og hagnað- ur fyrir afskriftir og fjármagns- liði var 38,5 milljónir króna sem er viðsnúningur um 46 milljónir frá fyrra ári. Hinsvegar olli hækkun fjár- magnskostnaðar og afskrifta því að verulegt tap varð eftir sem áður á fyrirtækinu eða 55,8 milljónir króna. Fjármagnskostnaður hækk- aði um 65 milljónir króna sem skýrist af mestu leyti af gengistapi á myntkörfuláni en einnig af hækk- un vaxta og verðbóta af innlendum lánum. Þá jukust afskriftir um 15 milljónir sem er vegna endurmats á fasteignum félagsins sem fram fór á árinu áður. Guðjón Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Ístex, segir að það sé vissulega fagnaðarefni að afkoma í rekstri hafi stórbatnað þó svo að verulegt tap hafi orðið á fyrirtæk- inu. „Í kjölfar bankakreppunnar á síðasta fylgdi hins vegar mikið gengistap vegna lána sem fyr- irtækið er með í erlendri mynt. Við sjáum hins vegar fram á að geta unnið okkur upp úr því á næstu 6-8 mánuðum þar sem framtíðarhorfur í sölu á afurðunum, bæði innanlands og utan, eru mjög góðar. Útlit er fyrir að gott verð fáist og að fram- leiðsla á ullarvörum haldi áfram að vaxa,“ segir Guðjón. Guðjón segir að tekjuaukning milli ára sé að hluta til vegna sölu á ullarbirgðum sem safnast hafa upp á undanförnum árum, en einnig hafði fall krónunnar jákvæð áhrif á útflutningsverð. Á seinni hluta árs- ins jókst sala á lopa og prjónabandi til muna og annaði verksmiðjan vart eftirspurn undir lok ársins Stjórn fyrirtækisins var endur- kjörin á fundinum, en í henni sitja Ari Teitsson, Sigurður Eyþórsson, Gunnar Sæmundsson, Jón Haraldsson og Guðjón Kristinsson. Á stjórnarfundi að loknum aðal- fundi var Ari endurkjörinn for- maður, Sigurður varaformaður og Jón ritari. Afkoma ársins 2008 hjá Ístex og framtíðarhorfur Góð og slæm áhrif gengisþróunar Félagsmálafræðsla – Sýndu hvað í þér býr! Ungmennafélag Íslands í sam- vinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfir- skriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum. Næstu námskeið: janúar 28. Reykjanesbær, Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, kl. 18:00 - 22:00 febrúar 3. Reykhólahreppur, Reykhóla- skóli, kl. 18-22 4. Akureyri, Búgarður, kl. 18-22 5. Svarfaðardalur, Rimar, kl. 13-17 10. Kirkjubæjarklaustur, Kirkju- bæjarskóli, kl. 14-18 11. Höfn, kl. 18-22 16. Búðardalur, kl. 18-22 18. Reykjavík, UMFÍ, Laugavegur 170, kl. 18-22 25. Eskifjörður, kl. 18-22 26. Egilsstaðir, kl. 18-22 Upplýsingar um nákvæmari staðsetningar liggja ekki fyrir á öll- um stöðum. Nánari upplýsingar er að finna á vef UMFÍ, www.umfi.is. Tekið er við skráningum í síma 568-2929 eða á netfangið gudrun@umfi.is Þátttakendur í félagsmálafræðslu á Selfossi miðvikudaginn 21. janú- ar. Áformað er að halda fleiri nám- skeið um allt land í vetur. Tvö lömb fund- ust á Ásheiði Tvö lömb fundust á Ásheiðinni nýlega, skammt austan við Kerlingarhól sem er um 5 kílómetra suður af Undirvegg. Voru þetta hrútur og gimbur, hrúturinn var frá Rúnari á Hóli en gimbrin frá Sturlu í Keldunesi. Voru þau þokkalega á sig komin miðað við aðstæður og þar sem þau fundust ekki fyrr en nú í janúar að lokinni fengitíð, má gera ráð fyrir að árangur sameigin- legrar fjárræktar Rúnars og Sturlu líti ljós á vordögum, segir í frétt á vefnum kelduhverfi.is.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.