Bændablaðið - 28.01.2009, Blaðsíða 3
3 Bændablaðið | miðvikudagur 28. janúar 2009
Ungmennafélögin
í Flóanum hlutu
umhverfisverðlaun
Flóahrepps
Umhverfisverðlaun Flóahrepps
voru afhent í annað sinn í upphafi
þessa árs. Það voru ungmenna-
félögin þrjú í Flóahreppi sem
hlutu verðlaunin fyrir árið 2008
en þau eru Ungmennafélagið
Baldur í Hraungerðishreppi,
Ungmennafélagið Samhygð í
Gaul verjahreppi og Ungmennafé-
lagið Vaka í Villingaholtshreppi.
Flóahreppur veitti í fyrsta skipti
árið 2007 umhverfisverðlaun sveit-
arfélagsins og komu þau þá í hlut
Stóru-Reykja og Félagsheimilisins
Þjórsárvers.
„Ungmennafélögin í Flóahreppi
eru öll vel að þessum verðlaunum
komin en þau hafa sinnt umhverf-
ismálum af áhuga og alúð allt frá
stofnun þeirra fyrir rúmum eitt
hundrað árum. Skógræktarreitir
félaganna eru vitnisburður um
ötult starf í gegnum tíðina og eru
reitir þessir notaðir við hátíðleg
tækifæri enn þann dag í dag. Það er
von okkar að verðlaun þessi verði
ungmennafélögunum og íbúum
öllum í Flóahreppi hvatning til að
gera enn betur í umhverfismálum
sveitarfélagsins í framtíðinni,“
sagði Almar Sigurðsson, formaður
nefndarinnar í samtali við blaðið.
MHH
Til stóð að opna Djúpveg um
brú yfir Mjóafjörð á liðnu
hausti en það tókst ekki. Einnig
er óvíst hvort vegurinn um
Arnkötludal verði opnaður fyrir
umferð. Þetta kemur fram á vef
Vegagerðarinnar og þess getið að
af ýmsum og mismunandi ástæð-
um standist ekki allar áætlanir.
Þá er óljóst hvort náist að opna
nýjan kafla á Norðausturvegi,
Brunahvammsháls-Bunguflóa,
á leiðinni frá Hringvegi til
Vopnafjarðar. Hinsvegar er búið
að opna vegkafla sem eftir var á
Hringvegi milli Ármótasels og
Skjöldólfsstaða í Jökuldal þótt
hann sé ekki jafn langt kominn
og ætlað var.
Ljúka átti Djúpvegi, Ísafjörður-
Mjóifjörður, 1. nóvember síðastlið-
inn. Smíði brúarinnar yfir Mjóafjörð
hefur tafist og verður henni ekki
lokið fyrr en næsta sumar. Enn er
unnið að brúarsmíðinni en vinnu
verður hætt á allra næstu vikum
en mun hefjast aftur í vor um leið
og tíðarfar leyfir. Vegurinn frá
vegamótum við Eyrarfjall í Ísafirði
og að Mjóafjarðarbrú, ásamt brún-
um í Reykjarfirði og Vatnsfirði, er
fullbúinn til notkunar með bundnu
slitlagi alla leið.
Þá átti samkvæmt útboðsgögn-
um að ljúka útlögn á neðra burð-
arlagi að Arnkötluvegi um mán-
aðamótin nóvember-desember.
Frágangur á neðra burðarlaginu á
að vera þannig að hægt sé að heim-
ila umferð yfir veturinn. Ýmislegt
mælir á móti því að opna veginn og
þá fyrst og fremst umferðarörygg-
ismál, þar sem ekki verður búið að
koma fyrir vegriðum auk þess sem
erfitt yrði með vetrarþjónustuna.
Fyrra lag klæðningar á samkvæmt
útboðsgögnum að vera komið á um
mitt næsta sumar og í framhald-
inu að leyfa almenna umferð um
veginn. Verkinu á svo að vera að
fullu lokið fyrir 1. september 2009.
Ekkert bendir ennþá til að þessar
dagsetningar muni ekki standast.
Erfitt vor setti strik í reikninginn
Um Norðausturveg, frá Bruna-
hvammshálsi að Bunguflóa, er það
að segja að verkinu átti að ljúka 1.
nóvember. Samkomulag er um það
við verktaka að vegna þess að ekki
var hægt að hefja verk fyrr en í júní
sl. vegna snjóa, skyldi stefnt að því að
vegurinn yrði akfær með burðarlagi í
vetur og bundið slitlag lagt snemm-
sumars 2009. Búið er að keyra út
tæplega helmingnum af burðarlag-
inu. Enn er óljóst hvort tekst að koma
umferðinni á veginn í haust en til
þess að það geti orðið þarf tíðarfarið
að vera gott í 2-3 vikur.
Vegkafla á Hringvegi 1, frá
Ármótaseli að Skjöldólfsstöðum,
átti að ljúka 1. ágúst sl. Vegna erf-
iðra aðstæðna, snjóa og bleytu á
liðnu vori, var gert samkomulag
við verktaka um að vegurinn yrði
fær með burðarlagi fyrir veturinn
og bundið slitlag lagt snemmsum-
ars 2009. Neðra burðarlag er komið
á veginn og var umferð hleypt á
hann 18. október. Eftir er að ganga
endanlega frá tengingum í báða
enda vegarins og verður það gert
næsta vor. Búið er að stika veginn
og reiknað með að setja upp vegrið
á um eins kílómetra kafla á næst-
unni.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir
að menn bíði vors en þá muni fram-
kvæmdir við áðurnefnda vegagerð
halda áfram. Verkefnunum hafi
ekki verið frestað vegna efnahags-
ástandsins og ætlunin sé að ljúka
verkefnum um leið og fært er.
MÞÞ
Áætlanir Vegagerðar standast ekki af mismunandi ástæðum
Hvorki tekst að opna Djúpveg né veg um Arnkötludal
JANÚAR-TILBOÐ!
B-Niewiado BE6317U
Flutningakerra 304 x 130 cm
Tilboðsverð með vsk. kr. 299.000
B-Niewiado A2532HTP
Vélafl utningavagn 300 x 150 cm
Tilboðsverð með vsk. kr. 494.265
B-Niewiado BE6317U
Flutningakerra 170 x 1,3 m
Tilboðsverð með vsk. kr. 118.960
CT 0080 Galvaniseruð
Flutningakerra 224x115x40 cm
Tilboðsverð með vsk. kr. 75.000
Ótrúlegt verð á kerrum
Zagroda fl aghefi ll Brettagafl arStoll blokkskerar Zagroda valtariTanco rúllugreipar
Warfarma sturtuvagnar HiSpec haugsugurBreviglieri pinnatætarar Örfáar notaðar dráttarvélar
á frábæru verði
Stoll ámoksturstæki
Allt á gamla genginu
Gæði á góðu verði
Hið árlega Fræðaþing landbún-
aðarins 2009 verður nú haldið
dagana 12. og 13. febrúar nk. í
ráðstefnusölum á 2. hæð Radis-
son SAS Hótel Sögu. Setning og
sameiginleg dagskrá að morgni
fyrri dagsins verður í ráðstefnu-
sal í húsi Íslenskrar erfðagrein-
ingar að Sturlugötu 8.
Að venju býður Fræðaþingið
upp á umfjöllun og miðlun á fjöl-
breyttu faglegu efni í mismunandi
málstofum, en þessi vettvang-
ur hefur í áranna rás þróast í að
vera mikilvirkasta miðlunarleið
fyrir niðurstöður fjölbreytts rann-
sókna- og þróunarstarfs í land-
búnaði, auk þess sem á þinginu
eru tekin til umfjöllunar ýmis
málefni tengd atvinnugreininni
sem eru ofarlega á baugi hverju
sinni. Fræðaþing 2009 er þarna
engin undantekning.
Eins og sjá má í dagskrár-
drögum sem birtast á bls. 17 hér í
blaðinu verður, auk sameiginlegrar
dagskrár fyrir hádegi fimmtudag-
inn 12. febrúar, boðið upp á tvær
samhliða málstofur síðdegis, ann-
ars vegar um matvælaframleiðslu
í breyttu umhverfi – breyttum
heimi og hins vegar málstofu um
menntun í landbúnaði, tækifæri og
þróun. Faglegri dagskrá síðdegis
þennan dag lýkur síðan með vegg-
spjaldasýningu, en þar verða einn-
ig kynntar niðurstöður fjölbreyttra
rannsókna.
Á hinni sameiginlegu dagskrá
í byrjun Fræðaþingsins verður
að þessu sinni fjallað um tiltek-
in atriði í „máli málanna“ þessa
stundina; Evrópusambandinu, og
áhrif tiltekinna þátta sem fylgja
aðild á landbúnaðinn sérstaklega.
Síðari ráðstefnudaginn, föstu-
daginn 13. febrúar, verða þrjár
samhliða málstofur þar sem eftir-
taldir efnisflokkar eru á dagskrá;
nýsköpun í dreifbýli, smáfram-
leiðsla matvæla, aðbúnaður búfjár
og heilbrigði, vatnavistfræði,
belgjurtir í jarðrækt og áburður
og landgræðsla, undir yfirskrift-
inni „Frá sandi til skógar“.
Mikill meirihluti erinda, sem
flutt verða á Fræðaþinginu, er
gefinn út í sérstöku prentuðu
hefti sem þátttakendur á þinginu
geta fengið og er innifalið í þátt-
tökugjaldinu. Ennfremur verða
velflest erindanna aðgengileg
í Greinasafni landbúnaðarins.
Greinasafnið, sem er aðgengilegt
á slóðinni www.bondi.is, geymir
einnig stóran hluta landbúnaðar-
fagefnis sem gefið hefur verið út
á liðnum árum.
Nákvæm og endanleg dagskrá
Fræðaþingsins 2009 verður upp-
færð reglulega á www.bondi.is
fram að þinginu. Þar verður enn-
fremur unnt að skrá sig til þátt-
töku og afla frekari upplýsinga
um þingið.
Þess skal að lokum getið hér að
áhugafólki um fagmál landbún-
aðar og náttúruvísindi, þar með
töldum bændum, býðst að sækja
þingið meðan húsrúm leyfir.
Fræðaþing landbúnaðarins 2009
Matvælaframleiðsla í
breyttum heimi og áhrif
ESB-aðildar í brennidepli
Frá vinstri: Almar Sigurðsson, formaður Umhverfisnefndar Flóahrepps,
Stefán Geirsson, formaður Ungmennafélagsins Samhygðar, Haukur
Gíslason, formaður Ungmennafélagsins Baldurs og Haraldur Einarsson,
formaður Ungmennafélagsins Vöku þegar verðlaunin voru afhent.