Bændablaðið - 28.01.2009, Page 5

Bændablaðið - 28.01.2009, Page 5
5 Bændablaðið | miðvikudagur 28. janúar 2009 Um 700 milljón króna halli er á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar og áréttaði yfirstjórn hennar á dögunum að fylgja ætti snjó- mokstursreglum, þar sem fé væri af skornum skammti. Það hefur m.a. í för með sér að farið verður eftir svonefndri G-reglu. Í þeirri reglu segir að heim- ilt sé að moka tvo daga í viku, vor og haust á meðan snjólétt er. Hausttímabil er skilgreint til 1. nóvember og vortímabil frá 20. mars. Ástandið er skilgreint „snjó- létt“ þegar um er að ræða lítið snjó- magn og færðarástand telst hvergi ófært, þungfært eða þæfingur á viðkomandi leið og þegar þjónustu- aðgerðin felst eingöngu í hreinsun akbrautar með snjómokstursbíl. G-vegirnir svonefnu eru Dynjand- is- og Hrafnseyrarheiði, Strandavegur, Lágheiði, Öxarfjarðarheiði, Hellis- heiði eystri, vegur í Mjóafjörð og Öxi. „Undanfarin ár hefur verið það snjólétt víða að menn hafa mok- að lengur og lengur inn í vetur- inn þegar snjólétt hefur verið. Í raun verður ekki hætt að moka G-vegina, reglunum um þann mokstur verður einungis framfylgt, þ.e.a.s. það á að moka vor og haust en ekki yfir veturinn og þá einung- is ef snjóalög leyfa sem þýðir að snjór sé ekki mikill,“ segir G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Verkefni á sviði vetrarþjónustu Vegagerðarinnar hafa vaxið hröðum skrefum, þannig hefur vinnuumfang vetrarþjónustunnar um það bil sjö- faldast á tímabilinu frá 1977 til 2007 og fjárveitingar hafa tvöfaldast, en það þýðir að nýtingarhlutfall vinnu- framlags hefur skilað sér mun betur til vegfarenda. Þessi góði árangur skýrist m.a. af betri vegum, bættum tækjakosti, endurbættri tækni og síðast en ekki síst öflugu starfsliði sem byggir á margra ára þekkingu og reynslu að því er fram kom í máli Björns Ólafssonar forstöðumanns þjónustudeildar Vegagerðarinnnar á vetrarráðstefnu Vegagerðarinnar í fyrra. MÞÞ Sverrir Heiðar Júlíusson, braut- arstjóri búfræðibrautar LbhÍ á Hvanneyri og kennari í naut- griparækt lést 12. janúar sl., aðeins 41 árs að aldri, eftir hetjulega baráttu við erfið veik- indi. Hann var fæddur 1. maí 1967 og ólst upp að Skógum í Hörgárdal, en flutti ungur til Hafnarfjarðar. Sverrir Heiðar varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1987 og búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri ári síðar. Leið hans lá þá beint í búvísindanám, sem hann lauk 1991. Fljótlega eftir að hann hóf störf á Hvanneyri tók hann til við að afla sér kennsluréttinda, enda þá þegar orðinn yfirkennari við bændadeild Bændaskólans, og öðlaðist hann kennsluréttindi frá Kennaraháskóla Íslands 1996. Síðustu árin starfaði hann sem brautarstjóri búfræðibrautar LbhÍ. Sverrir Heiðar kenndi naut- griparækt í bændadeild um árabil og átti jafnframt stóran þátt í því að koma á fót fjarnámi í búfræði. Hann var mikils metinn kennari af nemendum og samstarfsmönn- um, bæði sökum góðra hæfileika til þess að miðla þekkingu en ekki síður vegna sinna ákveðnu skoð- ana sem hann talaði óhikað fyrir. Þannig hafði hann brennandi áhuga á því að miðla þekkingu sinni til annarra og skrifaði m.a. fjölda greina um landbúnaðarmál í Bændablaðið á meðan heilsan leyfði. Fyrir það er þakkað nú. Hann var félagsmála- og íþróttamaður og hafði yndi af því að vinna með börnum og unglingum. Hann starfaði um árabil við knattspyrnuþjálfun hjá ungmennafélögunum Íslendingi og Skallagrími og á þessum árum aflaði hann sér m.a. UEFA-B þjálfararéttinda frá KSÍ. Sverrir Heiðar var og áhuga- maður um skoðun og nýtingu villtrar náttúru og var aflakló er kom að lax- og silungsveiðum. Áhugi hans á fuglaveiðum og fuglaskoðun var einnig eftirtekt- arverður og sá hann m.a. margoft um að kynna fjölbreytt fuglalíf á Hvanneyri fyrir gestkomandi hópum á staðnum. Hann var ræðumaður góður, orðheppinn og hafði einstakt vald á hnyttinni textasmíð fyrir ýmis tækifæri. Þá var hann sannarlega vinur vina sinna og vel liðinn sem berlega mátti sjá síðastliðið haust er nokkrir krakkar efndu til körfuboltamaraþons á Hvanneyri honum til stuðnings. Þá mættu til leiks lið alls staðar að af landinu, mönnuð vinum, samstarfsmönn- um, fyrrum nemendum og góðum kunningjum. Á þeim árum sem hann kenndi á Hvanneyri námu hjá honum hundruð nemenda í búfræðinni og mátti glöggt sjá þann sess sem hann skipaði í hugum nemenda sinna, þegar stór hópur þeirra kvaddi hann hinsta sinni. Útförin var gerð frá Akraneskirkju mið- vikudaginn 21. janúar og jarðsett var í Hvanneyrarkirkjugarði að viðstöddu fjölmenni. Eftirlifandi eiginkona Sverris Heiðars er Emma Heiðrún Birgis- dóttir. Þau áttu tvö börn, Álfheiði og Birgi Þór. Þeir sem vilja minn- ast hans er bent á Menntunarsjóð barna Sverris Heiðars sem hefur verið stofnaður: 0326-13-707000 kt. 170968-6039. Minning Sverrir Heiðar Júlíusson Fæddur 1. maí 1967 – Dáinn 12. janúar 2009 Munið að panta lambamerkin tímanlega! Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur hefur á boðstólnum tvær tegundir lambamerkja BJARGSMERKI. Hægt er að fá stök merki. 10% afsláttur er til 20. febrúar ef pöntuð eru 100 merki eða fleiri í röð. Vinsamlega sendið pantanir í pósti, faxi eða á netfangið pbi@akureyri.is Furuvöllum 1, 600 Akureyri Sími 461 4606 - Fax 461 2995 Opnunartími: mánudagar-föstudagar 8.00-16.00 MICRO merki frá OS Husdyrmerkefabrikk a/s Lágmarkspöntun 30stk, merkin eru afgreidd 10 saman í röð. Ísetningartöng fylgir ef pöntuð eru 150 merki eða fleiri í fyrsta sinn. 10% afsláttur er til 20 .febrúar ef pöntuð eru 100 merki eða fleiri í röð. Um 700 milljón króna halli á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar G-vegir einungis mokaðir vor og haust Dettifossvegur lykilatriði fyrir ferðaþjónustu Stjórn Markaðsráðs Þingeyinga hvetur stjórnvöld til þess að standa við gefin loforð um áframhaldandi framkvæmdir við Dettifossveg. Í ályktun stjórnarinnar segir að vegurinn sé lykilat- riði í þróun og uppbyggingu á ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslum. Á síðustu árum hafi hún farið vaxandi sem atvinnugrein og mikil- vægt sé að markmið hennar um lengingu háannatíma og fjölgun ferða- manna nái fram að ganga m.t.t. byggðaþróunar og atvinnumála. „Þá er það í hrópandi ósamræmi við aðgerðir og áætlanir ríkisins ef innviðir nýstofnaðs Vatnajökulsþjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs Evrópu, geta ekki þjónað sínu hlutverki,“ segir í ályktun stjórnar Markaðsráðs Þingeyinga.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.