Bændablaðið - 08.04.2009, Side 6
6 Bændablaðið | miðvikudagur 8. apríl 2009
Málgagn bænda og landsbyggðar
LOKAORÐIN
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 5.400 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.400.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 –
Ritstjóri: Þröstur Haraldsson, ábm. th@bondi.is – Sími: 563 0375 – Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is –
Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is – Matthías Eggertsson me@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins að mestu leyti. ISSN 1025-5621
Pína frelsarans
– og allra hinna
Þá er páskahelgin framundan með
sinni makalausu blöndu af gleði
og sorg, almennum frídögum,
hugleiðingum um pínu frelsarans,
skíðaferðum, skemmtunum og
almennri slökun. Að þessu sinni
bætist svo í blönduna rammpóli-
tískur metall, kosningabaráttan
Þetta er svo sem í takt við þá
undarlegu tíma sem við höfum
lifað frá því veröldin hrundi í
haust. Í teikniseríunni um Ástrík
og hans gæfu Galla segir að það
versta sem hent geti þann ágæta
!""
mest sé að himnarnir hrynji ofan
í höfuðin á þeim. Þetta má alveg
heimfæra upp á okkur Íslendinga
og það sem meira er: það sem að
helst hann varast vann varð þó að
" #$
vorum að leggja síðustu hönd á
smíði fjármálaparadísarinnar þar
sem enginn vissi aura sinna tal
hrundi spilaborgin. Nú veit eng-
inn aura sinna tal – í skuldum.
Nú er tími fermingarveisla og
annarra samkvæma fjölskyldunn-
ar. Þar verða þjóðmálin krufin til
mergjar og þar ræðst það hjá mörg-
um hvað þeir ætla að kjósa. Svo
virðist sem margir ætli að kjósa allt
annað en þeir gerðu síðast og þar
áður. Það er líka í takt við þessa
undarlegu tíma sem við lifum. Ekk-
ert er eins og það var í haust.
Hálfum mánuði eftir páska
ráðast svo úrslitin um það hverjir
halda um stjórnvölinn næstu árin.
Taugar frambjóðenda eru orðnar
nokkuð þandar en eiga eftir að
þenjast meira. Þeir velta því nú
fyrir sér um hvað sé rætt í ferm-
ingarveislunum, skíðaskálunum
og á göngutúrunum. Við óskum
þeim allra heilla og þótt ekki kom-
ist allir á þing þá kemur líka dagur
eftir kjördag.
Gleðilega páska! –ÞH
Í FRÉTT á forsíðu Morgunblaðsins föstudaginn
27. mars sl. mátti lesa um þá óbilgjörnu kröfu
Bændasamtakanna, að lög væru skýr. Tilefnið var
frumvarp um breytingar á búvörulögum. Þar var
því slegið fram að sekta ætti alla framleiðendur
um háar fjárhæðir fyrir framleiðslu á mjólk um-
fram greiðslumark. Í fréttinni var viðtal við undir-
ritaðan og einnig Ólaf Magnússon í Mjólku.
Frumvarpið snýst um þrjú atriði. Í fyrsta
lagi að eyða óvissu um meðferð umframmjólk-
ur. Umframmjólk er innlegg bænda umfram
greiðslumark (kvóta) sem ákveðið er árlega. Í
öðru lagi að hætta verðtilfærslu. Verðtilfærsla er
skattur sem lagður er á innvegna mjólk í afurða-
stöð. Skatturinn rennur til ríkissjóðs. Verðtil-
færslugjaldinu, skattinum, er síðan ráðstafað til
afurðastöðvar aftur til að greiða niður verð, t.d.
nýmjólkur og fleiri vara, sú tilfærsla er síðan
flokkuð sem ríkisútgjöld til landbúnaðar. Slík
breyting einfaldar verulega landbúnaðarkerfið
og lækkar opinber útgjöld til landbúnaðar um
hundruð milljóna króna. Að auki hefur tilgangur
með verðtilfærslu verið að mjólkurvörur væru um
land allt á sama verði, hvort sem um er að ræða
' # "'" mjólkuriðnaðurinn tryggir það markmið þrátt
fyrir breytinguna. Í raun eru ákveðnar mjólkur-
vörur hátt verðlagðar til að hægt sé að selja
nokkrar grunnvörur undir kostnaðarverði. Í þriðja
lagi er verið að koma til móts við tekjuáföll sauð-
fjárbænda vegna niðurskurðar bústofns vegna
sjúkdóma, í gegnum gæðastýringu.
Fyrstu tvö atriði frumvarpsins eru vænt-
anlega tilefni deiluefna. Undirverðlagning og
verðtilfærsla mjólkurvara er vafasöm til lengdar.
Auðséð er að þær vörur, sem eru undirverðlagð-
ar, eru viðkvæmastar fyrir erlendri samkeppni.
Þær vörur eru ekki endilega helst í matarkörfum
barnafjölskyldna, þannig að vafamál er hvort fyr-
irkomulagið sé á endanum hagstætt neytendum.
Undirverðlagning á t.d. drykkjarmjólk kemur
hins vegar mörgum heimilum vel. En að sama
skapi eru aðrar vörur óeðlilega hátt verðlagaðar.
Þannig vörur hefur einmitt Mjólka valið að hefja
framleiðslu á, enda með góða framlegð.
Opinber verðlagning mjólkur er neytendum
hagstæð. Þannig hefur tekist að koma ávinn-
ingi af hagræðingu mjólkuriðnaðarins beint í
vasa neytenda. Nú er um 30.000 krónum lægri
mjólkureikningur, á hvert heimili, en ef almennri
verðlagsþróun hefði verið fylgt. Á sama tíma
hefur hlutur bænda í útsöluverði mjólkur haldist
þokkalega, sameiginlegur árangur sem bændur
og neytendur geta verið ánægðir með.
Öllum framleiðendum sem hafa framleiðslu-
aðstöðu sem uppfyllir opinberar kröfur fyrir
mjólkursöluleyfi, er heimilt að framleiða umfram-
mjólk. Þau ákvæði sem breyting á búvörulögum
snýst um, eiga einungis að skerpa á gildandi laga-
fyrirmælum um ráðstöfun og upplýsingaskyldu
vegna umframmjólkur. Séu núverandi ákvæði laga
ekki virt geta sektarákvæði komið til skv. frum-
varpinu, en sektarákvæðin eru einu nýmælin sem
tengjast ráðstöfun umframmjólkur. Allt annað sem
tengist umframmjólk er nú þegar til staðar í lögum.
Sektir vegna óheimillar ráðstöfunar umframmjólk-
ur, og því að upplýsingaskyldu sé ekki sinnt, eru
* $ # ""
af framleiðslustýringarkerfi ESB! Þar er þó geng-
ið enn lengra og bændum hreinlega refsað með
háum fjársektum fyrir að framleiða umfram kvóta.
#$
"
frumvarpinu er ætlað að eyða, kviknaði með inn-
komu Mjólku á markaðinn. En ekki vegna Mjólku,
heldur túlkun yfirvalda á gildandi búvörulögum.
Bændasamtökin vöktu strax athygli á því þá og
voru frá fyrsta degi ósammála þeirri túlkun yfir-
valda. Sú ábending hefur stöðugt verið túlkuð sem
sérstök andúð Bændasamtakanna á Mjólku sem er
grófur útursnúningur, því fram að þeim tíma var
mjög skýrt að mjólk framleidd utan greiðslumarks
færi á útflutningsmarkað eða væri ráðstafað með
öðrum hætti.
Bóndi sem hefur kvóta (greiðslumark) til
mjólkurframleiðslu býr við bæði réttindi og
"
#$
í opinberum framlögum (beingreiðslum) sem
koma til lækkunar á verði mjólkurvara til neyt-
enda með skilvirkum hætti.
Skyldurnar felast í s.k. framleiðsluskyldu sem
tryggir neytendum nægt framboð á þessari nauð-
synjavöru. Framleiðsluskyldan er einnig grund-
völlur undir fæðuöryggi þjóðarinnar. Bóndi sem
ber slíkar skyldur hlýtur að spyrja hvaða stöðu
hann hefur gagnvart þeim sem hafa ekki undir-
gengist slíkar skuldbindingar.
Við undirbúning frumvarpsins kom m.a.
Verðlagsnefnd búvöru til skjalanna og á lokastig-
um var henni gerð grein fyrir því að forsvars-
mönnum Mjólku hafi verið kynnt efni þess.
Mjólka hefur hins vegar kosið að taka frumvarpið
sem sérstaka árás á starfsemi sína, sem er miður,
því framleiðsluvörur Mjólku standa vel fyrir sínu.
Staksteinahöfundur Morgunblaðsins hefur þær
áhyggjur helstar daginn eftir að Bændasamtökin
hafi áhuga á troða málinu áfram. Þær áhyggjur
eru réttmætar því Bændasamtökin munu halda
áfram að berjast fyrir einfaldara „kerfi“ og búa
bændur undir samkeppni, þó aðrir hafi ekki áhuga
á því. Bændasamtökin fagna opinni umræðu um
slíkt hagsmunamál sem frumvarpið er. Skorað
er á Morgunblaðið og alla áhugasama að horfa á
málið frá öllum hliðum. Morgunblaðið gæti t.d.
byrjað á að ræða við burðarás íslenskrar mjólk-
urvinnslu, MS. En eins kunnugt er þá er nýr for-
stjóri MS fráfarandi forstjóri Árvakurs og ætti að
vera blaðinu vel kunnur. Er honum óskað heilla í
mikilvægu starfi fyrir bændur og neytendur.
HB
Ekki af baki
dottnir
LEIÐARINN
Nýtt veggspjald
af íslenska
fjárhundinum
Bændasamtökin hafa um árabil selt
veggspjöld af íslensku búfé. Nú er
komið út veglegt veggspjald sem sýnir
íslenska fjárhundinn í allri sinni dýrð.
Alls eru myndirnar 27 og sýna fjöl-
breytt litaafbrigði, aldur og kyn.
Félagar í deild íslenska fjárhundsins
hjá Hundaræktarfélagi Íslands hafa
unnið að gerð spjaldsins í samvinnu við
Bændasamtökin en Erfðanefnd land-
búnaðarins styrkir gerð þess.
Tvær stærðir eru í boði af spjaldinu af
íslenska fjárhundinum, 88 sm X 61 sm
og A3. Hundamyndirnar bætast nú í fjöl-
breyttan hóp íslensks búfjár en að auki eru
fáanlegar veggmyndir af kúnni, hestinum
og sauðfénu.
Veggspjaldið fæst hjá Bændasamtökum
Íslands og eru áhugasamir beðnir um að
hringja í síma 563-0300 eða senda tölvu-
póst á netfangið jl@bondi.is til þess að
panta veggspjald. Hægt er að greiða með
greiðslukorti eða fá sendan greiðsluseð-
il. Verð er kr. 1.500 af stærri gerðinni og
kr. 900 af litlu spjöldunum. Að auki bæt-
ist við sendingarkostnaður. Einnig er hægt
að nálgast hundaveggspjaldið á skrifstofu
Bændasamtakanna í Bændahöllinni í
# "'"
Íslenski fjárhundurinn
The Icelandic Sheepdog
Ljósmyndir: Ágúst Ágústsson, Árni Sigurðsson,
Elís E. Stefánsson, Erla Björk Theodórsdóttir, Guðni Ágústsson,
Kolbrún Grétarsdóttir, Maggy Peace og Þorsteinn Thorsteinson.
Þýðing: Helga Andrésdóttir.
Styrktaraðili: Erfðanefnd landbúnaðarins
Umsjón og samstarf: BÍ og HRFÍ/díf.
B Æ N D A S A M T Ö K
Í S L A N D S
T H E F A R M E R S
A S S O C I A T O N O F I C E L A N D
www.bondi.is
Svartbotnóttur, þrílitur hundur með blesu.
Black tricolour dog with a blaze.
Svartur, þrílitur hundur.
Black tricolour dog.
Rauðgulstrútóttur hundur með tík í sama
lit og annarri grágulri, kolóttri.
Reddish tan dog with a white collar with a bitch of the
same colour and another light tan bitch with a black mask.
Blesóttir og skjömbóttir hvolpar.
Puppies, some with a blaze and other with half a white face.
Ljósgulur hundur á vetrardegi.
A light reddish tan dog on a winter’s day.
Ljósgulur tveggja vetra hundur.
Light tan two year old dog.
Rauðgul- og grágulkolóttar tíkur.
Reddish tan and light tan bitches, both with black masks.
Dökkrauðgulur, kolóttur hundur.
Reddish brown dog with a black mask.
Rauðgulstrútótt tík.
Reddish tan bitch with a white collar and blaze.
Grágulkolótt þriggja vetra tík.
Light tan three year old bitch.
Tvær tíkur, önnur ljósgul, hin rauðgulstrútótt.
Two bitches, one light tan, the other
reddish tan with a white collar.
Rauðgulkolóttur hvolpur, sex vikna gamall.
Reddish tan puppy with a black mask, six weeks old.
Rauðgul, fl ekkótt tík.
Pied reddish brown bitch.
Rauðgulstrútóttur hundur.
Reddish tan dog with
a white collar.
Dökkrauðgulur hundur.
Reddish brown dog.
Svört, þrílit tík.
Black tricolor bitch.
Grágulkolóttur, kolhærður, strútóttur hundur.
Light tan dog with a black mask and white collar.
Svartur, þrílitur tíkarhvolpur.
Black tricolour bitch puppy.
Rauðgulkolóttir hvolpar.
Reddish tan puppies, all with black masks.
Grágulskjömbótt tík.
Light tan bitch with half a white face.
Grágulstrútótt tík.
Light tan bitch with a white collar.
Ljósgulstrútóttur, kolóttur hundur með mjóa blesu.
Light tan dog with a white collar,
black mask and narrow blaze.
Svartur þrílitur og kolóttir hvolpar.
Tricolour and black masked puppies.
Stolt móðir með hvolpinn sinn, bæði ljósgulkolótt.
Proud mother with her puppy, both
light tan with black mask.
Rauðgulkolóttur, blesóttur hundur.
Reddish tan dog with a black mask and a blaze.
Rauðgulur, blesóttur hundur.
Reddish tan dog with a black mask.
Flekkóttur, mórauður hvolpur.
Pied chocolate brown tricolour puppy.
Dagur landbúnaðarins í kosningabaráttunni
+/; '
Fundir með
frambjóðendum
Nú styttist í landbúnaðardag kosningabaráttunnar sem haldinn
verður fimmtudaginn 16. apríl. Bændur hafa skipulagt fram-
boðsfundi á fjórum stöðum á landinu þar sem farið verður yfir
landbúnaðarmálin með frambjóðendum til Alþingis.
„Við vonumst til að fá sem flesta frambjóðendur og bændur, al-
menning og einnig þá sem starfa við landbúnaðinn á fundina. Til-
vonandi alþingismenn verða spurðir ákveðinna spurninga sem m.a.
snúa að fæðuöryggi, atvinnu í dreifbýli og hvaða stefnu þeirra flokk-
ur hafi í landbúnaðarmálum. En fyrst og fremst ætlum við að skiptast
á skoðunum og ræða þau efni sem eru efst á baugi,“ segir Tjörvi
Bjarnason sem starfar á útgáfu- og kynningarsviði BÍ.
Í tilefni af kosningunum hafa Bændasamtökin gefið út bækling
sem tengist viðhorfum bænda gagnvart ESB en sem kunnugt er
hafa þau beitt sér gegn því að farið verði í aðildarviðræður við sam-
bandið. Þá verður dreift á fundunum og til allra frambjóðenda stuttu
riti um mikilvægi landbúnaðar fyrir samfélagið þar sem fjallað er um
fæðuöryggi, atvinnumál og ekki síst þær áskoranir sem landbúnaður
stendur frammi fyrir á heimsvísu.
Fundirnir hefjast allir kl. 20:30 fimmtudagskvöldið 16. apríl og
verða haldnir á Hótel Selfossi, Hlégarði í Mosfellsbæ, Hótel Borgar-
nesi og á Hótel KEA á Akureyri.