Bændablaðið - 08.04.2009, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 08.04.2009, Blaðsíða 19
19 Bændablaðið | miðvikudagur 8. apríl 2009 Bændur, sparið áburðarnotkun. Náði betri nýtingu með Trimble. GPS leiðsögutæki landbúnaðarins. Kynningarverð kr. 195.500,- með VSK. Ísmar :: Síðumúla 28 ismar.is :: Sími: 510 5100 Heimafóður er heiti á nýju verk- efni sem búnaðarsamböndin á Norður- og Austurlandi standa að, en um er að ræða undirbún- ingsverkefni að áætlaðri smíði og rekstri á færanlegri samstæðu til heykögglunar og kjarnfóð- urgerðar á bændabýlum sem og til fleiri nota. Verkefnið hefur verið kynnt á sex fundum á Norður- og Austurlandi og voru viðtökur góðar að sögn Þórarins Lárussonar ráðunautar hjá Búnaðarsambandi Austurlands og verkefnisstjóra. Hann segir að ekki verði farið af stað með verk- efnið fyrr en búið er að tryggja viðunandi fjármögnun og hráefni til vinnslunnar. Gangi það að óskum nú á vordögum er stefnt að því að hefjast handa við smíð- ina sem tekur um fjóra mánuði og taka samstæðuna í notkun næsta haust. Smíði hennar kostar um 40 milljónir króna. Gras- og heykögglaverksmiðjur störfuðu hér á landi á árum áður, eða á tímabilinu frá því rétt fyrir 1970 og fram til ársins 2004. Flestar urðu graskögglaverksmiðjunar 6 talsins og heykögglaverksmiðjurnar 4, en af þeim er ein eftir starfandi og er hún í eigu Stefáns Þórðarsonar á Teigi. Þórarinn telur að hár fjárfestingar- og rekstrarkostnaður og ódýrt innflutt kjarnfóður hafi einkum valdið því að graskögglaverksmiðjurnar báru sig ekki. „Ýmsar aðrar ástæður urðu til þess að samdráttur varð í starfsemi heykögglaverksmiðjanna,“ segir Þórarinn og nefnir m.a. að þróun í heyverkun yfir í rúllugert vothey hafi verið hröð, en heimaræktun og þurrk- un byggs til íblöndunar í heyköggla var skammt á veg komin. „Það vant- aði líka fé til tækniþróunar og eins skorti nægilega festu og öryggi í reksturinn, m.a. vinnslusamninga við bændur og kögglagerðin var líka oft misjöfn að gæðum.“ Tilefni til að skoða þennan möguleika að nýju Þórarinn bendir á að nú hafi margt breyst þannig að tilefni sé til að skoða þennan möguleika að nýju. Nefnir hann m.a. áhuga á að glata ekki þeirri þekkingu sem fyrir er og að margir hafi brugðist jákvætt við. Nú væri einnig fyrir hendi aukin þekking á áhrifum heyvinnslu í köggla, tækniframfarir sem og öflug erlend samvinna, en hollensk- ir aðilar á Benelux-svæði Amandus Kahl verksmiðjanna í Þýskalandi sem eru sérfræðingar á þessu sviði munu leggja verkefninu lið. „Þá má líka nefna að byggrækt og þurrkun hefur stóraukist hér á landi á liðn- um árum. Ný gjafatækni í gripa- húsum kallar gjarnan á kögglun kjarnfóðurs og síðast en ekki síst er verulegur áhugi fyrir því um þessar mundir að spara aðföng,“ segir Þórarinn. Hann nefnir einnig að nýta megi samstæðuna í önnur verkefni eins og vinnslu úr skógar- viði, á hálmi í undirburð og þá sé endurvinnsla ýmiss konar í augsýn. Þórarinn ítrekar að ýmsar for- sendur verði að vera til staðar svo reksturinn geti gengið af nægilegu öryggi, en grunnforsenda verkefn- isins er að almennur og víðtæk- ur samhugur og samstaða skapist um það. „Þá verður að vanda til verka, og afar mikilvægt að vel takist til um smíði á fyrstu sam- stæðunni ef af verður. Við teljum okkur hafa réttu mennina til verks- ins, bæði frumkvöðulinn okkar, Stefán Þórðarson í Teigi og svo Hollendinga sem eru sérfræðingar á þessu sviði með mikla reynslu og þekkingu,“ segir Þórarinn. Skýrist við upphaf heyanna Áfram er unnið að gerð hag- kvæmniathugunar vegna þessa verkefnis sem nú er í kynningarferli og segir Þórarinn að jafnfram verði unnið að markaðs- og vöruþróunar- verkefnum sem og gerð nákvæmr- ar fjárhagsáætlunar. Sem fyrr segir verður smíði ekki hafin á samstæð- unni fyrr en ljóst liggur fyrir að næg verkefni og umsamin, verði til staðar næstu þrjú árin sem og að viðunandi fjármögnun sé í hendi. „Við stefnum að því að mál skýrist varðandi þessa þætti í upphafi hey- anna í sumar,“ segir Þórarinn. Hann sagði að nú á næstunni væru fleiri fundir á döfinni, en einkum væri í fyrstu atrennu lögð áhersla á að koma á fleiri fund- um innan vaxtarsamningssvæð- anna, þ.e. frá Eyjafirði, austur og suður um í Vestur-Skaftafellssýslu. Kynn ing utan þess væri þó alveg inni í myndinni, ekki síst ef eftir því væri leitað. Auk Þórarins eru í verkefnis- stjórn þeir Stefán Þórðarson í Teigi og Ingvar Björnsson hjá Búnaðar- sambandi Eyjafjarðar. Dr. Jóhannes Sveinbjörnsson hjá Landbúnaðar- háskóla Íslands hefur veitt faglega sérfræðiaðstoð. Vaxtarsamningur Austurlands, Atvinnuþróunarsjóður Austurlands og Vaxtarsamningur Eyjafjarðar hafa styrkt verkefn- ið, en einnig liggja fyrir umsóknir hjá Vaxtarsamningi NA-lands og Framleiðnisjóði landbúnaðarins. MÞÞBúnaðarsamböndin á Norður- og Austurlandi hrinda af stað verkefninu Heimafóður Kanna hagkvæmni þess að koma upp færanlegri samstæðu til heykögglunar og kjarnfóðurgerðar Fóðrunarleg áhrif þess að mala og köggla gras eða hey Af gefnum tilefnum er mikilvægt er að gera afgerandi greinarmun á heyverkun annars vegar og heyvinnslu hins vegar þar sem til dæmis mölun og kögglun eykur mjög á raunverulegt kjarnfóður- ígildi heyjanna. Ef markmiðið er að íslensk jórturdýr framleiði sem mestar afurðir af innlendu fóðri er rétt að velta því fyrir sér af hverju innflutt kjarn- fóður er notað. Það er fyrst og fremst vegna þess að með kjarnfóð- urgjöf er umsetning fóðurs mun hraðari og afurðaframleiðsla því meiri heldur en ef gefið væri gróffóður eingöngu, eins og tíðkaðist í gegnum aldirnar. Mölun og kögglun gefa heyi vissa kjarnfóðureiginleika sem felast einkum í auknum flæðihraða í gegnum vömb. Grunnurinn að þessu er eftirfarandi: Í vömb, kepp og laka fer fram gerjun en jafn- framt smækkun á fóðrinu vegna jórtrunar og vambarhreyfinga. Fóðrið fer til vinstrar þegar fóðrið hefur smækkað nægilega til að komast í gegnum þröngt op milli kepps og laka. Fyrir venjulegt gróffóður er þetta mun tímafrekara ferli en fyrir kjarnfóður eða malað gróffóður. Þetta er ástæðan fyrir því að kögglun með tilheyrandi mölun eykur át á gróffóðri. Þá má nefna að nýtanlegt prótein AAT eykst verulega við kögglavinnsluna. Aðspurður um kynningarstarfið áfram kvað Þórarinn fleiri fundi vera á döfinni á næstunni. Einkum væri í fyrstu atrennu lögð áhersla á fleiri fundi innan nefndra vaxtarsamningssvæða, þ.e. frá Eyjafirði, austur og suður um í V-Skaft. Kynnig utan þessa svæðis er þó alveg inni í myndinni, ekki síst ef eftir væri leitað. Frekari upplýsingar verður að finna á heimasíðu Búgarðs á Akureyri innan skamms (www.bugarður.is). – VERKIN TALA Vinnustundamælir Titringsvirkur tímamælir Fr u m Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is velfang@velfang.is Vinnustundamælir sem virkar af titringi. Nettur mælir sem festur er á plóg- inn, tætarann eða hvaða tæki sem er leigt út. Digitalskjár með lithium raf- hlöðum sem endast í átta ár. Tilvalinn fyrir Búnaðarfélög á útleigutækjum, auðveldar til muna að halda utan um útleigustundir. Fer í gang um leið og dráttarvél eða tæki fer af stað, virkar jafnt á dregnum tækjum eins og plógum og drifskaftsknúnum. Styrkveitingar á vegum erfðanefndar landbúnaðarins Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að verja fjármunum í að styrkja ein- stök afmörkuð verkefni sem falla að þessu hlutverki. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:               í landbúnaði.                eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði.                   erfðaauðlinda í landbúnaði.                  - búnaði og gildi þeirra. !  #         $   % sem hafa það að markmiði að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í íslenskum landbúnaði. Að jafn-       &'**+;**# &<$ %  % =    >>>&  & &!        ?C  Q    U     W  ? X  ? YY' Z  [  \  & ] ^*& 

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.