Bændablaðið - 08.04.2009, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 08.04.2009, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | miðvikudagur 8. apríl 2009 Í búvörusamningum ríkisins við samtök bænda er kveðið á um að framlög samkvæmt samningun- um taki mánaðarlegum breyting- um samkvæmt vísitölu neyslu- verðs, sbr. grein 6.1. í samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar, 6. gr. samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu. Einnig eru ákvæði um verðtryggingu í grein 7.2. í aðlögunarsamningi um starfsskilyrði framleiðenda garð- yrkjuafurða. Með lögum nr. 173/2008 (2. gr.) um ráðstafanir í ríkisfjármálum voru þessi ákvæði samninganna gerð óvirk og ákveðið að framlög samkvæmt samningunum á samn- ingsárinu 2009 hækki ekki meira en áætlað var að þau mundu hækka þegar fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til fjárlaga ársins 2009 í byrjun október sl. Framlög til búvörusamninganna þriggja á árinu 2009 eiga samkvæmt þessu því að vera sem hér segir: a. Framlög samkvæmt samningi um starfsskilyrði sauðfjárrækt- ar dags. 25. janúar 2007 skulu nema 4.137,0 m.kr. b. Framlög samkvæmt samningi um starfsskilyrði mjólkurfram- leiðslu dags. 10. maí 2004 skulu nema 5.634,0 m.kr. c. Framlög samkvæmt aðlögun- arsamningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða dags. 12. mars 2002 skulu nema 413,0 m.kr. Hvenær varð ríkið „brotlegt“ við búvörusamningana? Í töflunni hér að neðan er að finna samanburð á greiðslum það sem af er árinu og því sem hefði átt að greiða samkvæmt búvörusamningi. Samkvæmt yfirlitinu eru fram- lög ríkisins fram til þessa lægri en mjólkur- og sauðfjársamningarnir kveða á um. Samningur um starfsskilyrði garðyrkjunnar Samanburður við verðlag hefur ekki verið reiknaður fyrr en eftir á, sbr. á síðasta ári þar sem ekki eru ákvæði um mánaðarlega verðtrygg- ingu. Því er ekki hægt að kveða upp úr um hvenær framlög ríkisins verða minni en samningurinn kveð- ur á um fyrr en í desember en þá mun fara fram uppgjör og það sem ógreitt er á árinu verða greitt til BÍ sem síðan sér um uppgjör til fram- leiðenda í mars. Hverjar eru horfur í verðlagsþróun? Verðbólga fer hratt lækkandi um þessar mundir. Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,59% frá febrúar til mars og verðbólga síðustu 12 mán- uði því 15,2%. Seðlabankinn spáði í janúar að verðbólga á 3. ársfjórð- ungi þessa árs m.v. 12 mánaða tíma- bil, verði 10,3 % og á 4. ársfjórðungi 5,3%. Gangi þetta eftir mun draga verulega saman með greiðslum rík- issjóðs og því sem samningar segja til um, þegar líða tekur á árið. Á markaði Erna Bjarnadóttir hagfræðingur Bændasamtaka Íslands eb@bondi.is Verðlagsmál Beingreiðslur í garðyrkju 2008 og áætlun beingreiðslna fyrir árið 2009 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 5/2009 Beingr. (m.kr.) Magn tonn Beingr. kr./kg 80% kr./kg Gúrkur 81,2 1760,0 46,14 36,91 Paprika 32,9 188,0 175,00 140,00 Tómatar 109,0 1780,0 61,23 48,98 Magn og beingreiðslur á kg árið 2008 voru sem hér segir: Tonn kr./kg Mark- aðs- verð Gúrkur 1516,4 54,94 156,75 Paprika 169,7 198,92 318,13 Tómatar 1621,4 68,95 295,79 Handhafar beingreiðslna voru 40, þar af voru gúrkubændur 24, paprikubændur 11 og tómatabænd- ur 21. Framleiðsluspá framleiðenda 2009 er: Tonn Aukning (%) Gúrkur 1760,0 16,1 Paprika 188,0 10,8 Tómatar 1780,0 9,8 Framkvæmdanefnd búvöru- samninga hefur gert áætlun um beingreiðslur í garðyrkju á árinu 2009 á grundvelli áætlana framleið- enda um framleiðslu. Til ráðstöfun- ar eru 223,1 m.kr. sem skiptast milli afurða sbr. eftirfarandi: Framlög ríkissjóðs til landbúnaðarmála hafa dregist saman sem hlutfall af heildarútgjöldum og sem hlutfall af vergri landsframleiðslu á undanförnum árum. Árið 1992 voru framlög ríkisins til landbúnaðarmála 8,6% af heildarúgjöldum ríkisins en 2,96% árið 2007. Að viðbættum framlögum til skógræktar námu þau 3,18% árið 2007. Sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hafa framlög til landbúnaðar lækkað úr 1,25% árið 1998 í 0,92% árið 2007. EB Framlög ríkissjóðs til landbúnaðar og skógræktar 1998-2007 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 Hlutfall af vergri landsframleiðslu Landbúnaður 1,25 1,26 1,15 1,2 1,18 1,18 1,08 1,02 0,95 0,92 Skógrækt 0,05 0,05 0,06 0,07 0,07 0,08 0,07 0,08 0,07 0,07 Samtals 1,3 1,31 1,21 1,27 1,25 1,26 1,15 1,1 1,02 0,99 Hlutfall af útgjöldum ríkissjóðs Landbúnaður 4,1 3,98 3,69 3,8 3,65 3,5 3,37 3,3 3,15 2,96 Skógrækt 0,17 0,15 0,2 0,22 0,22 0,24 0,23 0,25 0,22 0,22 Samtals 4,27 4,13 3,89 4,02 3,87 3,74 3,6 3,55 3,37 3,18 Minnkandi útgjöld til landbúnaðarmála Famlög ríkissjóðs til landbúnaðar og skógræktar sem hlutfall af ríkisútgjöldum (rauða línan) og vergri landsframleiðslu (bláa línan). Innflutningur á hráefnum til fóðurgerðar Árið 2008 voru alls flutt inn 53.322 tonn af hráefnum til kjarnfóðurgerðar hér á landi að verðmæti (cif) 1.475 millj. króna. Mest er flutt inn af maís, síðan harðhveit og loks byggi til fóður- gerðar. Meðfylgjandi mynd sýnir þessa skiptingu. Verð á hráefnum í íslenskum krónum frá janúar 2008 til febrúar 2009 er sýnt á meðfylgjandi línu- riti. Veruleg lækkun varð á heims- markaðsverði á síðari hluta ársins 2008 en veiking íslensku krónunn- ar varð þess valdandi að hún skil- aði sér ekki nema að takmörkuðu leyti til framleiðenda hér á land. Með styrkingu hennar á ný á fyrstu mánuðum þessa árs hefur hráefna- verð lækkað enn frekar. EB Innflutt kjöt í janúar og febrúar 2009 kg Alifuglakjöt 52.320 Nautakjöt 22.046 Svínakjöt 7.102 Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 10.413 Samtals 91.881 Greitt Alls skv. samningi kr. Mismunur kr. Beingreiðslur mjólkur janúar 409.349.257 417.042.080 -7.692.823 febrúar 433.485.551 448.844.924 -15.359.373 mars 436.936.635 455.182.296 -18.245.661 Samtals 1.279.771.443 1.321.069.300 -41.297.857 Gripagreiðslur janúar 45.387.249 48.650.380 -3.263.131 febrúar 45.387.337 49.392.228 -4.004.891 mars 45.387.279 49.674.130 -4.286.851 Samtals 136.161.865 147.716.738 -11.554.873 Beingreiðslur sauðfjár febrúar 449.088.880 463.329.252 -14.240.372 mars 228.048.444 235.279.699 -7.231.255 Samtals 677.137.324 698.608.951 -21.471.627 Búvörusamningar og verðtryggingarákvæði Skerðingin þegar orðin 75 milljónir króna Skífuritið hér að ofan sýnir skiptingu innflutnings á hráefnum til fóðurgerðar milli tegunda. Línuritið sýnir cif- verð (innkaupsverð að viðbættum flutningskostnaði og tryggingu) á kg innfluttra hráefna.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.