Bændablaðið - 08.04.2009, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 08.04.2009, Blaðsíða 27
27 Bændablaðið | miðvikudagur 8. apríl 2009 Fram skal haldið að endursegja efni úr bókinni um framtíðarkýrn- ar. Það sem hér verður sagt frá eru rannsóknir á Langhill tilrauna- stöðinni í Skotlandi sem nokkrir þekktir skoskir kynbótafræðingar fjalla um. Ég hef áður í greinum í Nautgriparæktinni fyrir allmörgum árum sagt frá úrvalstilrauninni í Langhill sem er meðal þeirra þekkt- ustu slíkra í heiminum. Þarna eru tveir ræktunarhópar af kúm, annar sem valinn er fyrir hámarksafurðum (úrvalshópur), en hitt er samanburð- arhópur. Síðan er þessum úrvals- hópum skipt í tvo mismundandi meðferðarhópa með tilliti til fóðr- unar, annar er fóðraðar á ákaflega orkuríku fóðri (til hámarksafurða) en hinn hópurinn er fóðraður mjög einhliða á gróffóðri. Þannig eru þarna fjórir mismunandi til- raunahópar sem skapa nær einstaka möguleika til að bera kýr saman með tilliti til mögulegra samspils- áhrifa erfða og umhverfisþátta. Ræktun á kúm til að fá fram „robust“ (harðgerðar – fjölhæf- ar) gripi hefur í nokkur ár verið á umræðustigi í Bretlandi og til- raunahóparnir m.a. notaðir til að kanna ýmsa þætti sem ástæða þykir til að velta nánar í fyrir sér í sambandi við þetta. Hér verður fjallað um þann þátt greinarinnar sem fjallar um breyt- ingar í frjósemi kúnna, en í næsta blaði greint frá seinni hluta grein- arinnar þar sem fjallað er um mögu- leg tengsl á skapeiginleikum hjá kúnum við þessa þætti (robustness). Það er alkunna að mjög víða hefur frjósemi kúnna hrakað umtalsvert á síðustu áratugum samhliða auknum afurðum kúnna. Þessar breytingar blasa við í gögnum sem safnað er í skýrslu- haldi. Hvað er það sem raunveru- lega hefur breyst hjá kúnum? Tilraunahóparnir á Langhill gefa sérstakra möguleika til að skoða nánar ýmsa þætti sem engir mögu- leikar eru til að fylgjast með og mæla dreift á búum bænda. Á rann- sóknarstöðinni voru um þriggja ára skeið gerðar nákvæmnismæling- ar á prógesteron hormóni í mjólk kúnna fyrstu fimm mánuðina eftir burð en á þann hátt er mögulegt að setja upp nákvæman mældan feril einstakra gripa í slíkum frjósem- ismælingum og bera þær saman við hefðbundnar mælingar sem notaðar eru fyrir frjósemisþætti. Einnig þá gefa skráningar þeirra í tilraunahópunum þeim möguleika til að skrá nákvæmlega breytingar í orkujafnvægi hjá einstökum kúm á þessu tímabili. Á þennan hátt fást einstök gögn til að bera saman þessa þætti og reyna þannig að fá gleggri greiningu á orsökum breyt- inga og einnig frekari skilning á lífeðlisfræðilegum þáttum sem valda breytingunum. Í ljós kom að hjá kúnum í sam- anburðarhópnum fór regluleg kyn- starfsemi í gang fyrr eftir burð en hjá kúnum í úrvalshópnum og var þannig fyrsta beiðsli þeirra eftir burð hálfum mánuði fyrr. Í tilraun- inni var hins vegar sú vinnuregla að ekki var farið að sæða kýrnar fyrr en fyrsta lagi sex vikum eftir burð og það leiddi til þess að í hefð- bundnum mælingum á frjósemi kom ekki fram neinn marktækur munur á hópunum og jafnvel að mælingar á einstökum eiginleikum væru kúnum úr úrvalshópnum í vil. Vísbendingar voru samt aðeins meiri um dulbeiðslu kúnna í úrvals- hópnum. Áhrif mismunar í fóðrun voru öllu skýrari í frjósemisþáttunum en munurinn á ræktunarhópunum. Þannig voru kýrnar sem fóðraðar voru á miklu gróffóðri að jafnaði fyrri til að taka upp kynstarfsemi eftir burðinn en hins vegar héldu þær verr en kýrnar sem fengu mikla orkufóðrun þannig að frjó- semi þeirra mældist með flestum hefðbundnum mælingum lakari. Í þessum mælingum komu hins vegar ekki fram neinar vísbend- ingar um samspil á milli erfða- og meðferðarþáttanna í þeim eig- inleikum sem tengdust frjósemi kúnna og þarna voru mældir. Þegar frjósemismælingarnar voru skoðaðar í samhengi við orku- jafnvægi og holdastigun kúnna kom í ljós að þeir þættir skýrðu allan þann mun sem mældist í frjó- semisþáttunum á milli kúnna að einum þætti undanskildum. Þegar búið var að taka tillit til orku- jafnvægis og holdafarsins þá var óskýrður um viku munur á milli úrvalshópsins og samanburðarhóps- ins í því hve fljótt eftir burð kyn- starfsemi hæfist hjá kúnum, þeim í samanburðarhópnum í vil. Niðurstöður höfunda eru því að til skamms tíma séu helstu ráð breskra bænda til að bæta frjósemi kúnna að leitast við með fóðrun kúnna að halda sem bestu orku- jafnvægi og forðast að þær taki alltof skarpt af holdum á fyrstu vikunum eftir burð. Til lengri tíma litið eigi hins vegar að vænta breyt- inga í jákvæða átt í kúastofninum vegna þess úrvals sem nú á sér stað og byggir m.a. á frjósemiseinkunn þar sem m.a. er stuðst við upplýs- ingar um holdafar kúnna. Rannsóknir í Langhill Girðinganámskeið í Gunnarsholti Kennarar: Grétar Einarsson bútækni- fræðingur hjá LbhÍ og Hjörtur Bergmann Jónsson girðingarverktaki Tími: 15. apr, kl. 8:30- 18:00 í Gunnarsholti Verð: kr. 13.400 Heimavinnsla mjólkurafurða, Skref 1 Kennari: Þórarinn Egill Sveinsson mjólkur- verkfræðingur Tími: 15. apr, kl 13:00- 16:00 á Egilsstöðum Verð: kr. 4.000 Ræktum okkar eigin ber Í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands, Reykjavíkur- og Akureyrar deild og Græna geirann. Kennarar: Guðríður Helgadóttir forstöðu- maður LbhÍ Reykjum og Jón Kr. Arnarson verkefnisstjóri LbhÍ Tími: 18. apr, kl. 9:00- 15:00 á Hvanneyri Verð: kr. 12.000 Grunnnámskeið í skógrækt Kennarar: Björn B. Jónsson framkvæmda- stjóri Sls, Böðvar Guð- mundsson áætlanafulltrúi Sls, Hallur Björgvinsson svæðisstjóri Sls og Harpa Dís Harðardóttir svæðisstjóri Sls. Tími: 18. apr, kl. 10:00- 16:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 13.000 Útimatjurtir - grunn- námskeið fyrir byrjendur í samstarfi við Garð- yrkjufélag Íslands Ísafjarð- ardeild og Græna geirann Kennari: Gunnþór K. Guðfinnsson umhverfis- stjóri Ölfusi Tími: 18. apr, kl. 10:00- 16:00 á Ísafirði Verð: kr. 11.000 Beltin bjarga – ræktun skjólbelta Kennari. Samson B. Harðarson lektor við LbhÍ Tími: Boðið verður upp á fjögur námskeið: I: 22. apr. kl. 10:00-16:00 á Hvanneyri II: 27. apr. kl. 10:00-16:00 í Fnjóskadal III: 28. apr. kl. 10:00-16:00 á Egilsstöðum IV: 30. apr. kl. 10:00-16:00 á Suðausturlandi Verð: kr. 14.500 Heimavinnsla mjólkurafurða, Skref 2 Kennari: Þórarinn Egill Sveinsson mjólkurverkfræðingur Tími: 29. apr, kl 10:00- 17:00 á Egilsstöðum Verð: kr. 12.000 Grunnur að útstillingum Kennari: Hjördís Reykdal Jónsdóttir stundakennari við LbhÍ Tími: 5. maí, kl. 9:00-16:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: 9.900kr Níturbindandi tegundir í landgræðslu og skógrækt Kennari: Jón Guðmunds- son lektor við LbhÍ Tími: Boðið verður upp á tvö námskeið: I: 8. maí, kl. 14:00-17:00 á Hvanneyri II: 16. maí, kl. 9:00-12:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: 6.000kr Ræktun matjurta í sumarbústaðalandinu Kennarar: Gunnþór Guðfinnsson umhverfisstjóri Ölfuss og Úlfur Óskarsson lektor við LbhÍ Tími: 9. maí, kl. 9:00-15:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 12.000 Umhirða opinna svæða Kennarar: Guðríður Helgadóttir forstöðu- maður LbhÍ á Reykjum, Gunnþór K. Guðfinnsson umhverfisstjóri Ölfus og Siggeir Ingólfsson yfirverkstjóri Umhverfisdeildar Árborgar Tími: 20. maí, kl. 9:00- 15:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 9.900 Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 Námskeið fyrir þig! Weckman sturtuvagnar 6,5 tonn. 10 tonn. 12 tonn. 14 tonn. 17 tonn. 12 tonna flatvagnar Grjót- malarvagnar með föstum skjólborðum 12 tonn. - 16 tonn. H. Hauksson ehf Suðurlandsbraut 48 Sími: 588 1130 Fax: 588 1131 Jón Viðar Jónmundsson landsráðunautur í búfjárrækt Bændasamtökum Íslands jvj@bondi.is Kynbótastarf

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.