Bændablaðið - 08.04.2009, Page 16
16 Bændablaðið | miðvikudagur 8. apríl 2009
Forvitni og heimska! Þannig
svarar Guðmundur Jón
Guðmundsson bóndi í Holtseli,
aðspurður hvernig á því stóð
að hann og eiginkonan Guðrún
Egilsdóttir hófu ísgerð á bænum
fyrir um þremur árum. Þau
hafa einnig opnað kaffihús og
ísbar á millilofti ofan við fjósið,
sem hefur verið vel sótt og notið
vinsælda. Það var sem sagt í
apríl árið 2006 sem Guðmundur
Jón fletti bresku bændablaði og
rakst á auglýsingu um tæki til
ísgerðar. Forvitnin rak hann
til að senda fyrirspurn til fyr-
irtækisins, sem er í Hollandi. Þá
var ekki aftur snúið. „Við vorum
komin út að skoða viku síðar og
gengum frá kaupunum,“ segir
hann. Ísgerðin átti að vera eins
konar tómstundagaman til hlið-
ar við önnur störf á búinu en
tekur nú æ meiri tíma. Holtsel
er í Eyjafjarðarsveit, um 19 kíló-
metra sunnan Akureyrar.
„Ætli maður hafi ekki álpast út í
þetta eins og kálfur út í fjóshaug,“
bætir Guðrún við. Hvernig svo
sem upphafið var, segja þau að nú
sé engin leið til baka; ekki verði
aftur snúið eftir að þau hafi lagt
út í yfir 10 milljóna króna fjárfest-
ingu. „Nú er bara að halda ótrauð
áfram,“ segja þau, hvergi bangin.
Á nýliðnu Búnaðarþingi fengu þau
Guðmundur og Guðrún landbún-
aðarverðlaun 2009 fyrir dugnað,
framtakssemi og nýsköpun í land-
búnaði. „Í Holtseli hefur verið sýnt
fram á að hægt er að reka hefð-
bundinn landbúnað á snyrtilegan og
jákvæðan hátt, bæði gagnvart neyt-
andanum, náttúrunni og dýrunum
og að hægt er að vinna eftirsótta
hágæða vöru úr íslensku hráefni
og skapa ný störf á atvinnusvæði
sem, eins og önnur, hefur þörf fyrir
nýsköpun,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon landbúnaðarráðherra
þegar hann afhenti þeim hjónum
viðurkenninguna.
Nær 100 ára samfelld búseta
Afi og amma Guðrúnar, þau Guðrún
Leósdóttir og Eggert Jónsson,
hófu búskap á Holtseli vorið 1911.
Foreldrar hennar, Svanhildur
Eggertsdóttir og Egill Halldórsson,
tóku við jörðinni og bjuggu þar til
ársins 1980, þannig að brátt verður
liðin öld frá því búseta ættarinn-
ar á jörðinni hófst. Þau Guðrún og
Guðmundur búa nú á Holtseli með
um 50 kýr sem gefa af sér um 300
þúsund lítra af mjólk á ári. Þá stunda
þau kornrækt og stefna að því að
auka hana enn frekar, auk þess að
rækta skjólbelti af miklum móð
með það að markmiði að auka skjól
fyrir gripi sína. Nýlega er lokið
umfangsmiklum breytingum á fjósi
og hlöðu heima á bænum, settir
voru upp legubásar fyrir kýrnar,
hlöðunni breytt í gjafaaðstöðu og
settir upp legubásar fyrir geldneyti.
Dýnur eru í legubásunum og þær
eru með kodda fyrir kýrnar, gúmmí-
dúkur er á gólfi og heilfóðurvagn
er til staðar sem blandar fóðrið
og matar færiband sem skammt-
ar hverri hjörð fyrir sig. Blandað
er saman hálmi, rýgresi, byggi og
ertublöndu, melassa, kjarnfóðri og
öðru sem til þarf í gott heilfóður og
er Holtselsbúið trúlega eitt af þeim
fyrstu til að blanda og gefa heilfóð-
ur.
Heilmikið umstang kringum
ísgerðina
Nú á síðari árum er búið að líkind-
um þekktast fyrir framleiðslu og
sölu á rjómaís sem gengur undir
nafninu Holtsels-Hnoss. „Það
er heilmikið umstang í kringum
ísgerðina, mörg handtökin, en við
gerum allt sjálf. Ísinn er auðvit-
að búinn til í vélinni, en það sem
á eftir kemur er allt handavinna.
Svo þarf að panta vörur, umbúð-
ir og fleira, sinna bókhaldinu og
halda utan um þetta allt saman,
ísgerðin sjálf er minnsta málið,“
segir Guðrún. Hún nefnir að við
uppbygginguna hafi verið haft
náið samráð við framkvæmda-
stjóra Heilbrigðiseftirlitsins á
Norðurlandi eystra, sem gefið hafi
mörg góð ráð um hvernig best væri
að standa að málum. „Það var
ómetanlegt,“ segir Guðrún.
Í fyrstu stóð bara til að búa til
ísinn og selja hann í verslunum,
en ekki leið á löngu þar til fólk
var farið að vappa á hlaðinu og
falast eftir ís til kaups. Nýsköpun
Holtselshjónanna spurðist hratt
út og æ fleiri gerðu sér ferð heim
á bæ, „þannig að við sáum ekki
annan kost í stöðunni en að útbúa
einhverja aðstöðu til að taka á móti
fólki, þannig hefur þetta undið
upp á sig og ómögulegt að segja
fyrir um hvar þetta endar,“ segir
Guðmundur.
Endalaust hægt að prófa sig
áfram með bragðtegundir
Fjölbreytnin er mikil; hægt er að
velja á milli um 400 mismunandi
uppskrifta, en raunar er það hug-
myndaflugið sem ræður för eins
og best sést á því að í fyrrasumar
bjuggu þau til ís með hundasúru-
bragði. „Tengdamamma var send
út að tína hundasúrur, við próf-
uðum þetta og sumum þótti ís með
slíku bragði bara góður,“ segir
Guðmundur. Þá hafa margs konar
séróskir borist, m.a. í tengslum
við brúðkaup, þegar fólk biður um
ákveðna liti og bragð af ísnum.
„Við reynum hvað við getum að
koma til móts við óskir fólks,“
segir Guðrún. Þá má nefna að
ís úr bjórnum Kalda, sem fram-
leiddur er hjá Bruggsmiðjunni á
Árskógsströnd, er vinsæll og hið
sama má segja um ís fyrir sykur-
sjúka. Nýlega prófuðu þau að búa
til ís með kókos og rabarbara og
seldist hann sömuleiðis vel. „Það er
endalaust hægt að prófa sig áfram
og möguleikarnir eru fjölmargir.
Þeim eru engin takmörk sett, það er
bara hugmyndaflugið sem ræður,“
segja þau Guðmundur og Guðrún.
Ánægð með viðtökurnar
Þau eru ánægð með viðtökurnar, en
segja að vissulega hafi efnahags-
ástandið sett sitt strik í reikninginn,
ísinn sé munaðarvara og kosti pen-
inga. „Þetta er auðvitað vara sem
fólk getur verið án,“ segir Guðrún,
en samdráttur hefur þó ekki verið
jafn mikill og þau kannski bjugg-
ust við. Þannig hefur sala í lands-
byggðarverslunum Samkaupa, sem
selja ísinn, ekki dregist saman, slíkt
hefur frekar gerst á höfuðborg-
arsvæðinu. „Það er alltaf góð sala
í Melabúðinni og við eigum mikil
og góð viðskipti við hana. Hingað
koma líka á sumrin margir úr hópi
viðskiptavina búðarinnar til að for-
vitnast um uppruna íssins og það er
mjög gaman,“ segir Guðrún.
Holtselsbúið er aðili að sam-
tökunum Beint frá býli og má
segja að þau hafi að nokkru leyti
rutt brautina. „Guðmundur hefur
mjög gaman af því að stimpast
við kerfið og greiða úr alls konar
flækjum og reglugerðum,“ segir
Guðrún, en Holtsel er líklega fyrsta
býlið á landinu til að selja afurðir
úr mjólk beint úr fjósi allar götur
frá því Korpúlfsstaðabúið var lagt
niður fyrir margt löngu. Undanfarin
misseri hafa svo fjölmargir fylgt í
fótsporin og selja afurðir af ýmsu
tagi sem búnar eru til heima á býli.
MÞÞ
Guðrún og Guðmundur Jón í Holtseli í Eyjafjarðarsveit hlutu
landbúnaðarverðlaunin 2009
„Ætli maður hafi ekki álpast út í
þetta eins og kálfur út í fjóshaug!“
Guðrún Egilsdóttir og Guðmundur Jón Guðmundsson, bændur í Holtseli, í kaffistofu og ísbar sínum á millilofti
ofan við fjósið á bænum. Á milli áranna 2007 og 2008 jukust gestakomur um helming og þau eiga von á fjölda
gesta á komandi sumri.
Hægt er að velja um yfir 400 tegundir af bragðefnum í ísinn Holtsels-Hnoss,
en raunar er það bara hugmyndaflugið sem ræður. Hér hugar Guðmundur
Jón að bragðefnunum uppi í hillu.
Guðrún blaðar í uppskriftum.
Í fjósinu eru um 50 kýr, sem gefa rjómann í hinn ljúffenga ís.
Enn sigrar
Eyjólfur
Keppt var í fimmgangi í Meist-
aradeild VÍS í hestaíþróttum sl.
fimmtudag. Fjöldi góðra hesta
var skráður til leiks og ljóst að
um spennandi keppni yrði að
ræða. Sýningar tókust þó misvel
og einhverjir náðu ekki að klára
keppnina eins og þeir höfðu
vonast til.
Eftir forkeppni var Daníel Jóns-
son með Tón frá Ólafsbergi efstur
og töldu margir hann mjög sigur-
stranglegan en Eyjólfur Þorsteins-
son sem hefur leitt stigakeppni
deildarinnar var ekki á þeim bux-
unum og gerði hann sér lítið fyrir
og sigraði í B-úrslitum og vann
sér þátttökurétt í A-úrslitum þar
sem hann vann svo heildarkeppn-
ina. Eyjólfur reið hestinum Ögra
frá Baldurshaga og voru þeir vel
að sigrinum komnir enda sóttu
þeir stanslaust á allt til enda. Staða
Eyjólfs í stigakeppninni er sterk,
en hann trónir á toppnum með
41 stig og næstur honum kemur
svo Sigurbjörn Bárðarson með 30
stig. Í liðakeppninni stendur lið
Málningar efst með 198 stig, en
næst kemur lið Líflands með 182
stig. Næsta keppni í mótaröðinni
mun fara fram að Ármóti á sumar-
daginn fyrsta og þá verður keppt í
skeiðgreinum auk þess sem boðið
verður upp á stóðhestakynningu.
HGG
Eyjólfur Þorsteinsson og Ögri frá Baldurshaga. Ljósm.: ÖK