Bændablaðið - 08.04.2009, Page 21
21 Bændablaðið | miðvikudagur 8. apríl 2009
Rafmótorar
TRAUSTAR
VÖRUR...
...sem þola álagið!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Rafmótorar og gírmótorar
www.falkinn.is- Það borgar sig að nota það besta
Gírmótorar
Gírmótorar
Há nýtni Gott yfirálagsþol
Stærðir: 0,09 - 500kW
www.salka.is
Passíusálmarnir,
eitt helsta trúarrit
Íslendinga, er
komið í nýrri og
glæsilegri útgáfu.
PÍSLARSAGA JESÚ
Gullfalleg gjöf
Íslensk náttúra
Markmið náms í náttúru- og umhverfi sfræði er að útskrifa
nemendur með góða undirstöðu í náttúrufræðum með
sérþekkingu á íslenskri náttúru. Námið tengist störfum við
stjórn og skipulag umhverfi smála og landnýtingar, mat á
umhverfi sáhrifum, náttúruvernd, kennslu o.fl . LbhÍ býður
háskólamenntun til BS- og MS-gráðu.
Kynntu þér nám í náttúru- og umhverfi sfræði
á heimasíðu skólans: www.lbhi.is
U
M
H
V
E
R
F
IS
D
E
IL
D
í hávegum höfð
P
L
Á
N
E
T
A
N
Landsvirkjun kannar nú mögu-
leika á því að auka vinnslu jarð-
hita við Kröflu með því að reisa
nýja virkjun. Rannsóknamiðstöð
ferðamála gerði rannsókn þar
sem metin voru möguleg áhrif
fyrirhugaðra framkvæmda á
ferðamennsku umhverfis Kröflu
og Mývatn.
Uppbygging virkjunarinnar
verður gerð með hliðsjón af áætlaðri
vinnslugetu jarðhitasvæðisins við
Kröflu. Mývatnssveit hefur lengi
haft aðdráttarafl fyrir ferðamenn og
er Kröflusvæðið hluti af því aðdrátt-
arafli sem dregur ferðamenn til
Mývatnssvæðisins. Í kjölfar virkj-
anaframkvæmda við Kröflu á átt-
unda áratugnum var lagður vegur að
virkjanasvæðinu vestan við Kröflu
sem gjörbreytti aðgengi almenn-
ings að svæðinu. Kröflueldar sem
brunnu frá 1975-1984 höfðu fengið
mikla athygli í fjölmiðlum og vakið
forvitni margra á að heimsækja
svæðið. Náttúruperlur á borð við
Víti og Leirhnjúk urðu í framhald-
inu jafn sjálfsagður hluti ferðaáætl-
ana ferðamanna á hringferð um
landið og Gullfoss og Geysir. Til
að mæta síauknum fjölda ferða-
manna hefur Landsvirkjun staðið
að töluverðri uppbyggingu innviða
fyrir ferðamenn á Kröflusvæðinu.
Sumarið 2008 er áætlað að um
hundrað þúsund ferðamenn hafi
komið á Kröflusvæðið.
Markmið þessarar rannsóknar
er að meta möguleg áhrif fyrirhug-
aðra framkvæmda vegna byggingu
Kröfluvirkjunar II á ferðamennsku
umhverfis Kröflu og Mývatn.
Viðhorf helstu hagsmunahópa til
fyrirhugaðra framkvæmda voru
könnuð með viðtölum. Að mati
viðmælenda liggur gildi svæðisins
fyrir ferðamennsku fyrst og fremst
í verðmætum náttúruperlum, fjöl-
breyttri náttúru og einstakri jarð-
fræði, en ekki síður í góðu aðgengi
að þessum náttúruauðlindum fyrir
ferðamenn. Það að Kröflusvæðið
er jafnframt dyr að víðernunum
norður af Mývatni eykur á gildi
náttúruupplifunar svæðisins, segir í
frétt um útkomu skýrslunnar.
Rannsóknin er unnin af
Rannsóknamiðstöð ferðamála fyrir
Landsvirkjun að beiðni verkfræði-
stofunnar Mannvits. Skýrsluna
unnu dr. Rannveig Ólafsdóttir sér-
fræðingur við miðstöðina og sá
Eva Sif Jóhannesdóttir um gagna-
öflun og skrif.
Gildi Kröflusvæðisins liggur í
verðmætum náttúruperlum