Bændablaðið - 08.04.2009, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | miðvikudagur 8. apríl 2009
Líf og starf
Af umræðunni að dæma mætti
ætla að salmonella væri ekki
útbreitt vandamál hér á landi.
Það er rétt að flestu leyti, hér
hefur ekki komið upp alvar-
legur faraldur í fólki frá árinu
2000. Hins vegar komu upp þrjú
nokkuð alvarleg tilvik á árinu
2008 þar sem dýr áttu í hlut, tvö
þeirra í Hvalfirði þar sem folöld
og alifuglar urðu fyrir barðinu á
smiti og það þriðja í Mosfellsbæ
sem fjallað var um í næstsíðasta
tölublaði Bændablaðsins en þar
féllu 25 hross sem höfðu komist í
vatn sem salmonellusmit greind-
ist í.
Þessi tilvik ættu að verða okkur
áminning um að vaka á verðin-
um því eins og nýleg dæmi frá
Bandaríkjunum, Kanada og Dan-
mörku sýna getur salmonellan
birst þar sem hún ætti alls ekki að
þrífast. Í Bandaríkjunum og Kan-
ada kom upp faraldur sem rakinn
var til hnetusmjörsframleiðand-
ans PCA en þar sýktist á sjötta
hundrað manns og af þeim dóu
níu. Framleiðsla þessa fyrirtæk-
is er ekki á markaði hér á landi. Í
Danmörku hafa sóttvarnaryfirvöld
barist mánuðum saman við að finna
uppruna salmonellusmits sem hefur
lagt fleiri hundruð manns í rúmið
og fellt níu. Sú leit hefur enn ekki
borið árangur, en grunurinn hefur
einkum beinst að svínakjöti, ekki
síst vegna þess að smitið nær til
allra aldurs- og þjóðfélagshópa
nema múslima.
Fóðrið liggur undir grun
Á fræðslufundi sem haldinn var
hjá Matvælastofnun ekki alls fyrir
löngu var greint frá stöðu þess-
ara mála hér á landi. Þar kom fram
að þótt smit í fólki af innlend-
um ástæðum hafi verið í algeru
lágmarki (5 af hverjum 100.000
íbúum árið 2007) frá aldamótum
varð salmonellu vart í nokkrum
alifugla- og svínabúum á árinu sem
leið.
Ekki varð vart við neitt smit
í sýnum sem tekin voru fram-
an af ári, en í ágúst fóru svínabú
að falla í flokki vegna smits sem
komst hæst í tæplega 5% af teknum
sýnum. Gripið var til ráðstafana og
er þetta smit nú að fjara út. Þá varð
að innkalla einn sláturhóp frá kjúk-
lingabúi í byrjun mars, alls tæplega
10.000 kjúklinga, vegna gruns um
salmonellu.
Sigurborg Daðadóttir dýralæknir
og gæðastjóri hjá Matvælastofnun
sagði í viðtali við Bændablaðið
að uppruni salmonellunnar í þess-
um síðastnefndu dæmum væri enn
óviss, en þó beindist grunurinn
helst að því að smitið hafi borist
með fóðri.
„Eftirlit með fóðri er að mestu
leyti í höndum fóðurinnflytjenda.
Þeir taka sýni við löndun á lausu
fóðri. Sýnin eru tekin úr ryksíum
á dælunum og er skipt um síur
þegar skipt er um fóðurtegund.
Matvælastofnun tekur svo sýni ef
tilefni þykir til þess og það var gert
sl. sumar,“ sagði Sigurborg.
Smitleiðirnar eru margar
Hún bætti því við að varnir í fóður-
fyrirtækjunum sjálfum væru mis-
munandi eftir því hvers konar fóður
ætti í hlut. „Fóður sem ætlað er
nautgripum og alifuglum er hitað
upp í 82°C þegar það er kögglað en
það á að nægja til að drepa salmon-
ellu. Svínafóður er hins vegar hrá-
fóður og því er hætta á að salmon-
ella berist með því. Bændum er
ráðlagt að blanda sýru í fóðrið en
hún veldur því að salmonellan á
erfiðara með að fjölga sér í melt-
ingarvegi svínanna.“
Smitleiðir geta verið margar.
Sigurborg benti á að aðstæður eins
og verið hafa á heimsmarkaði með
fóður þar sem verð hefur hækkað
mikið og framboð dregist saman
gætu komið niður á gæðum fóð-
ursins. Sýnataka við löndun er alls
ekki óbrigðul svo þar getur mengað
korn sloppið í gegn. Í flutningum
getur smit fundið sér leið, svo sem
ef ekki er gætt fyllsta hreinlætis
þegar skipt er um farma á bílum
eða við sótthreinsun dælubúnaðar.
Svo gæti orðið krosssmit ef hita-
meðhöndlað fóður lendir óvart í
sílói sem áður geymdi hráfóður.
Loks getur skapast smithætta ef
bændur spara við sig sýruna í fóðr-
ið, en slíkt gæti verið freistandi
vegna kostnaðar og vegna þess að
þeim er ekki skylt að nota sýru.
Eftirlitið hert
En þrátt fyrir þessi dæmi um salm-
onellusmit sem upp hafa komið að
undanförnu er ástand sóttvarna hér
á landi mjög gott og stenst fyllilega
samanburð við þau lönd Evrópu
þar sem ástandið er best, það er að
segja Noreg, Svíþjóð og Finnland.
Það má þakka því eftirliti sem haft
er með öllu framleiðsluferlinu. Að
sögn Sigurborgar er verið að herða
það, breyta eftirlitinu á þann hátt
að meiri sýnataka verður framar
í fæðukeðjunni en verið hefur og
tengist það innleiðingu nýrrar mat-
vælalöggjafar. Samkvæmt henni er
hægt að sækja um viðbótartrygg-
ingu gagnvart innflutningi á hráu
kjöti frá Evrópulöndum.
„Til þess að fá slíka tryggingu
þurfum við að geta sýnt fram á það
með vísindalegum hætti að smit
hafi verið undir 1% á öllum stigum
framleiðslunnar samfleytt í tvö ár.
Hvað svínin varðar hefur ástandið
verið mjög gott en þau fóru þó í
einu prófi upp fyrir 1% í fyrrasum-
ar. Í svínaræktinni var tekið upp
nýtt kerfi árið 2006. Samkvæmt
því var tekið upp kjötsafapróf eftir
slátrun þar sem leitað var að mót-
efnum sem dýrið kann að hafa
myndað gegn salmonellu. Í öðru
lagi eru tekin stroksýni af skrokk-
unum áður en þeir fara í vinnslu
og á markað. Í þriðja lagi eru tekin
saursýni í hverju búi einu sinni á
ári. Þar er verið að leita svara við
því hvaða afbrigði bakteríunnar er
á viðkomandi búi.
Salmonella er nefnilega alls
staðar í náttúrunni, hættan af henni
skapast hins vegar ef henni fer að
fjölga úr hófi. Það eru til þúsundir
afbrigða af salmonellu, en af þeim
eru nokkur skæðari en önnur. Þess
vegna er mikilvægt að gera rann-
sóknir á erfðaefni salmonellunnar
til þess að greina hvaða afbrigði
eru á ferðinni. Evrópusambandið
tekur mið af því að tvö afbrigði,
Salmonella enteritidis og Salmon-
ella typhimurium, valdi 80% sýk-
inga í fólki og þess vegna skuli
eingöngu leita að þeim í afurðum.
Á Norðurlöndunum er viðhorfið
hins vegar það að öll salmonella sé
hættuleg fólki og því þurfi að leita
að öllum afbrigðum hennar og það
er reyndar forsenda fyrir því að fá
fyrrnefnda viðbótartryggingu gagn-
vart innflutningi á hráu kjöti,“ segir
Sigurborg.
Nýtt kerfi í alifuglaræktinni
Ástandið í alifuglaræktinni er einn-
ig mjög gott og hefur verið það
frá því átak hófst árið 1992 til að
útrýma salmonellu úr greininni.
„Fyrir þann tíma var algengt að
20-25% kjúklinga væru innkallaðir
mengaðir en nú hefur þetta hlutfall
verið undir 1% í tólf ár samfleytt.
Þar var nýtt eftirlitskerfi tekið í
notkun 1. nóvember 2008 til þess
að undirbúa okkur fyrir matvæla-
lögin. Við höfum lengi haft gott eft-
irlit með sláturfuglunum en erum
að auka eftirlitið með stofnfuglum
og varphænum. Nú er fylgst með
stofnfuglunum frá fæðingu og í
uppeldinu og auk þess tekin sýni
á tveggja vikna fresti meðan þeir
eru að framleiða frjóvguð egg. Hjá
varphænunum eru nú tekin sýni á
fimmtán vikna fresti meðan á varpi
stendur.
Sýnataka hefur verið gerð mark-
vissari en áður en hún er eftir sem
áður í höndum bænda og hins opin-
bera. Það vildi vera misbrestur á
sýnatökumnni í varphænum en nú
getum við gert kröfu um að sýna-
taka úr sláturfuglum fyrir slátrun
sé mjög skilvirk, að öðrum kosti
fá bændur ekki slátrað. Við tökum
sýni af hálsaskinni eldisfuglanna
við slátrun áður en þeir fara á
markað. Það tekur fimm daga að
rækta sýnin, en ef eitthvað finnst
eru afurðir viðkomandi sláturhóps
innkallaðar, þær hitameðhöndlaðar
eða þeim fargað. Nú bera allir slát-
urfuglar rekjanleikanúmer svo það
er auðvelt að kalla inn tiltekinn hóp
úr tilteknu húsi,“ sagði Sigurborg
og bætti því við að hún væri von-
góð um að þetta nýja eftirlitskerfi
nægði til þess að Ísland fengi við-
bótartryggingu.
Hún lauk máli sínu á því að
ítreka að salmonella væri víða í
umhverfi okkar og þess vegna
þyrfti sífellt að brýna fyrir fólki að
vera á varðbergi gagnvart henni.
„Þar skiptir mestu að gæta að
smitvörnum, svo sem að nota ekki
sömu áhöld í hrátt kjöt og soðið eða
steikt. Sé kjöt vel matreitt á hættan
að vera hverfandi, en ef við notum
sama hnífinn til að skera hrátt
kjöt og salat bjóðum við hættunni
heim,“ segir Sigurborg Daðadóttir
gæðastjóri Matvælastofnunar. –ÞH
Salmonella greindist í nokkrum tilvikum á síðasta ári
„Eftirlitið hefur komið í veg fyrir faraldra“
segir Sigurborg Daðadóttir gæðastjóri hjá Matvælastofnun
Dularfull sótt hefur stungið sér
niður á þýskum og belgískum
kúabúum og lagt yfir 100 kálfa
að velli. Um það bil tvö ár eru
síðan fyrstu kálfarnir féllu úr
þessari sótt en dýralæknar
standa enn ráðþrota gagnvart
henni. Ýmsar kenningar eru á
lofti um orsakir sjúkdómsins en
engin þeirra hefur enn reynst
standast nánari skoðun.
Sóttin herjar á kálfana rétt eftir
burð og lýsir sér heldur óhugn-
anlega. Tveggja til þriggja vikna
gamlir kálfar byrja skyndilega að
„svitna blóði“, þeim blæðir út um
heila húð, svo fá þeir hita og drep-
ast yfirleitt eftir örfáar klukku-
stundir, oft eftir að hafa liðið
miklar kvalir. Þegar hafa verið
skráð yfir 100 tilfelli í Þýskalandi,
flest þeirra í Bæjaralandi, en einn-
ig hafa einhver tilvik verið skráð í
Belgíu. Óttast er að um mun fleiri
tilvik sé að ræða þar sem bændur
hafa ekki hirt að tilkynna um sjúk-
dóminn.
Skýringum vísað á bug
Dýralæknar eru slegnir óhug yfir
þessum sjúkdómi sem þeir hafa
enga skýringu á. Við krufningu
hafa komið í ljós miklar innri
blæðingar. Auk þess er beinmerg-
ur kálfanna skaddaður og hafa
dýralæknar lýst honum þannig að
hann sé hlaupkenndur. Þá virðist
vanta storknunarefni í blóðið og
hvítu blóðkornin eru talsvert færri
en eðlilegt getur talist.
En þótt birtingarform sjúk-
dómsins sé ljóst eru orsakir hans
enn á huldu. Bændur hafa að sjálf-
sögðu velt vöngum yfir þessu og
sett fram ýmsar kenningar. Þær
útbreiddustu eru að kenna um
erfðabreyttu fóðri og bólusetning-
um, svo sem gegn sjúkdómnum
blátungu, en þær hófust um svip-
að leyti og sjúkdómsins varð fyrst
vart. Rannsóknir hafa þó sýnt að
mæður sumra kálfanna sem dráp-
ust höfðu ekki verið bólusettar
gegn blátungu.
Dýralæknar hafa líka útilokað
erfðabreytt fóður því kálfar hafa
drepist á lífrænum býlum þar sem
ekkert erfðabreytt fóður er notað.
Sama máli gegnir um erfðabreyt-
ingar af völdum kynbóta því kálf-
arnir sem vitað er um tilheyra ekki
færri en þremur kúakynjum. Þá
hafa þeir útilokað bakteríur eða
veirur því sjúkdómurinn virðist
ekki smitast milli dýra.
Hvað er í broddinum?
Það er einkum tvennt sem vís-
indamenn beina sjónum sínum
að um þessar mundir. Annars
vegar er það bólusetning gegn
magaveiki í nautgripum sem kall-
ast BVD – Bovine Viral Diarrhea.
Sú veiki getur birst með svipuðum
hætti og þessi óþekkta kálfasótt
en málið er að ekki er vaninn að
sprauta kálfa gegn henni. Hún
gæti þó hugsanlega borist frá for-
eldrum kálfsins.
Hins vegar er það broddurinn
sem dýralæknar skoða. Kálfarnir
sýna engin einkenni um sóttina
þegar þeir koma í heiminn en svo
er þeim gefinn broddur á fyrstu
klukkutímunum. Hugsanlega
gætu leynst í broddinum einhverj-
ar leifar af mótefnum sem ráðast á
beinmerginn og eyðileggja hann.
Um þetta eru þó engar sannan-
ir, en nú ætla þýsk dýralæknayfir-
völd að hefja markvissar prófanir
og rannsóknir á mjólk og blóði
úr kúm og kálfum í því skyni að
varpa ljósi á sjúkdóminn.
–ÞH/Der Spiegel
Dularfull kálfasótt í Þýskalandi
Stjórn Ístex hf.
Greiðslu fyrir
vetrarull og
snoð flýtt
Á stjórnarfundi Ístex hf. sem
haldinn var 3. apríl sl. var
ákveðið að fyrri greiðsla eða
70% af upphæð afreiknings
verði sem hér segir:
Ull sem skráð var í mars
verður greidd 1. maí og ull sem
skráð er í apríl verður greidd 1.
júní.
F.h. stjórnar Ístex hf.
Guðjón Kristinsson
Sigurborg Daðadóttir gæðastjóri
fyrir utan höfuðstöðvar Matvæla-
stofnunar á Selfossi. „Við höfum
verið að herða eftirlitið til þess að
mæta kröfum nýrrar matvælalög-
gjafar, en þar verður heimild til
þess að sækja um viðbótartrygg-
ingu vegna salmonellu við innflutn-
ing á hráu kjöti.“