Bændablaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 18
Bændablaðið | fimmtudagur 27. október 201118
Dagana 4.- 8. október sl. héldu
alþjóðasamtökin Rare Breeds
International, sem vinna að vernd-
un erfðafjölbreytileika búfjár, ráð-
stefnu í Háskólanum í Tekirdag í
Tyrklandi. Samtökin hafa starfað
um tveggja áratuga skeið og var
þetta 8. heimsráðstefnan sem þau
halda. RBI eiga góða samvinnu við
ERFP (Samstarfshóp um verndun
búfjárkynja í Evrópu), EAAP
(Búfjárræktarsamband Evrópu)
og FAO (Matvæla- og landbúnað-
arstofnun Sameinuðu þjóðanna).
Svo sem áður hefur komið fram
hér í blaðinu, síðast í 16. tbl., 15.
september sl. bls. 28 og 30, hefur sá
sem þetta ritar tekið virkan þátt í
þessu verndunarstarfi um áratuga
skeið og flutti að þessu sinni erindi
um vernd og nýtingu landnáms-
kynjanna með tilliti til sjálfbærra
búskaparhátta og fæðuöryggis
þjóðarinnar.
Háskóli við Marmarahaf
Ráðstefnan var haldin í Namik
Kemal -háskólanum í borginni
Tekirdag við Marmarahaf í
Evrópuhluta Tyrklands, nánar til-
tekið í Þrakíu, um tveggja tíma
akstur frá Istanbúl, og skammt
frá landamærunum við Grikkland.
Heitir háskólinn eftir einu þekkt-
asta skáldi Tyrkja sem uppi var á
19. öld. Búvísindakennslan hófst
þar árið 1982 og sá starfsfólk og
hópur nemenda búfjárræktardeildar
að mestu um undirbúning og fram-
kvæmd ráðstefnuhaldsins af mikilli
prýði undir traustri stjórn dr. Ihsan
Soysal prófessors, en hann er mér að
góðu kunnur úr ERFP-samstarfinu.
Nutu þau góðs stuðnings nokk-
urra annarra tyrkneskra háskóla,
Landbúnaðarráðuneytis Tyrklands í
Ankara og borgarstjórnar Tekirdag.
Þátttakendur voru um 200 frá 38
þjóðum og var allt efni erinda og
veggspjalda gefið út á bók, auk þess
að vera aðgengilegt á veraldarvefn-
um (www.rbiglobalconf2011.nku.
edu.tr/kongre_sunular).
Þess má geta að búvísindanám
stunda 400 af 20.000 nemendum
Háskólans í Tekirdag, sem er í
landbúnaðarhéraði þar sem fjöl-
þætt búfjárrækt og akuryrkja eru
stundaðar, en meðal veigamestu
atvinnugreina í borginni eru marg-
vísleg þjónusta og vinnsla landbún-
aðarafurða svo og ferðaþjónusta.
Einnig vegur háskólinn þungt í
borg sem telur um 70.000 íbúa.
Móttökurnar voru með afbrigðum
góðar enda Tyrkir þekktir fyrir
gestrisni. Gróska er í vísinda- og
rannsóknarstarfsemi, en minna ber
á Tyrkjum í samfélagi búvísinda-
fólks en vert væri vegna tungumála-
örðugleika. Reynt er að bæta úr, svo
sem með enskunámskeiðum fyrir
háskólafólk. Í Tyrklandi er fjöldi
búfjárkynja og mikill áhugi á að
vernda þau, nýta landsins gæði og
treysta fæðuöryggið í ljósi hækk-
andi matvælaverðs í heiminum.
Þess má geta að þar um slóðir, og í
löndunum austurundan, var vagga
ræktunar búfjár fyrir þúsundum ára.
Fagleg og markviss umræða
Mikið var fjallað um búfjárkyn og
erfðaeiginleika sem eiga í vök að
verjast og eru í útrýmingarhættu.
Nú þegar hefur mikið tapast og
mörg þeirra kynja sem fjallað var
um telja aðeins nokkur hundruð
gripi, líkt og íslenska geitfjárkynið.
Þá fékkst þarna prýðilegt yfirlit yfir
þá erfðatækni sem beitt er við rann-
sóknir á uppruna og eiginleikum
búfjárkynja og stofna, þar sem
byggt er á sameindalíffræði og
erfðafræði. Víða eru komnar upp
rannsóknarstofur með fullkominn
tækjabúnað, bæði á vegum háskóla
og líftæknifyrirtækja.
Enn er merkingu og skrásetn-
ingu búfjár víða ábótavant, hjarðir
eru ekki alltaf staðbundnar og
víða herja búfjársjúkdómar sem
torvelda verndunarstarfið. Þá taka
stríðsátök og náttúruhamfarir sinn
toll. Margar leiðir eru farnar, allt
frá söfnun sæðis og fósturvísa til
djúpfrystingar í genabönkum, yfir
í þróun og markaðssetningu afurða
til að renna styrkari stoðum undir
efnahag bænda sem t.d. halda búfé
í útrýmingarhættu. Þar koma einnig
Slow Food samtökin mjög við sögu.
Þá skipta styrkir verulegu máli og
má geta þess að slíkur stuðningur
hófst, eftir því sem næst verður
komist, fyrst hér á landi með stofn-
verndarframlagi fyrir skýrslufærðar
geitur árið 1966. Þá voru þær aðeins
165 en eru nú orðnar 729 að tölu.
Hefur framlagið tvímælalaust haft
jákvæð áhrif en meira þarf að koma
til, þ.e.a.s. nýting geitafurða til
tekjumyndunar.
Best er að verndun, ræktun og
nýting fari saman, þannig varð-
veitum við gömlu kynin best. Er
ánægjulegt að geta sagt frá því á
erlendum vettvangi hve áratuga
kynbótastarf í hrossarækt, naut-
griparækt og sauðfjárrækt hefur
skilað miklum árangri hér á landi.
Og það án íblöndunar við aðflutt
búfjárkyn, sem víða um lönd
hefur veikt stöðu heimakynjanna
eða útrýmt þeim, og stuðlað að
umfangsmiklum, ósjálfbærum verk-
smiðjubúskap.
Er þróunin sjálfbær?
Skipuleggjendur ráðstefnunnar
vörpuðu fram þeirri áleitnu spurn-
ingu hvort alheimsvæðingin í
búfjárræktinni, þar sem verið er að
nota tiltölulega fá kyn, sé í raun
sjálfbær. Væri það ekki mótsagna-
kennt að halda uppi stefnu, sem
leiðir til minnkandi erfðafjölbreytni
á sama tíma og verið er að berjast
fyrir verndun? Ég var á meðal þeirra
frummælenda sem gengu hreint til
verka og drógu ályktanir af því sem
hefur verið og er að gerast víða um
heim. Tengslin eru reyndar aug-
ljós á milli eyðingar erfðaefnis (e.
genetic erosion) annars vegar, og
hins vegar hnattvæðingar þar sem
viðskiptahagsmunir og nýfrjáls-
hyggja ráða ríkjum. Með öðrum
orðum, málið er stórpólitískt hvað
sem öllum vísindum líður, og það
varðar líka fæðuöryggi, aðgerðir
gegn útblæstri gróðurhúsaloft-
tegunda, sjálfbæra þróun og margt
fleira. Mér hefur oft fundist meira
rætt um afleiðingar en orsakir
hnignunar eða eyðingar erfðaefnis
búfjár, að sumir vísindamenn vilji
ekki ræða um slíkt undir yfirskini
hlutleysis. Þarna í Tekirdag urðu að
mínum dómi þáttaskil. Umræðan
var markvissari og opinskárri en
áður og æ fleiri eru að átta sig á
því að hamslaus markaðshyggja er
veigamikill orsakavaldur þeirrar
óheillaþróunar sem herjar á líf-
fræðilega fjölbreytni, fæðuöryggi,
umhverfi og byggðaþróun um allan
heim. Mér finnst ýmislegt benda til
þess að hugmyndafræði græns hag-
vaxtar fari að vaxa ásmegin.
Fjárbú heimsótt
Eitt það ánægjulegasta við slíkar
ráðstefnu- og fundaferðir er heim-
sóknir til bænda þar sem m.a. gefur
að líta staðbundin búfjárkyn sem
flestum eru ókunnug. Um 25 km
austur af Tekirdag fengum við að
heimsækja fjárbú með um 500
sauðfjár af Kivircik-kyni og 50
geitur af Saanen- og Kilis-kynjum.
Aðallega er um kjötframleiðslu að
ræða en einnig er nokkur mjólkur-
framleiðsla. Búið, sem ber heitið
„Kilisli“, er einnig með nokkra
alifuglarækt og eigandinn sýndi
okkur stoltur 25 vetra gamlan veð-
hlaupahest sem hann á. Um tíu
ára skeið hefur eigandi þessa bús
einnig rekið veitingastað í Istanbúl
sem heitir líka „Kilisli“ og þangað
fer allt kjötið. Taldi hann sig hafa
sögulegar heimildir fyrir því að
Tyrkjasoldánar (Ottómanar) hafi
helst viljað hafa kjöt af Kivircik-fé
á borðum sínum. Hann sagði gesti
sína spyrja um náttúruafurðir, helst
með lífræna vottun, og stefndi hann
sem mest inn á þá braut. Skrokkarnir
eru með um 15 kg meðalfallþunga.
Flest er féð hvítt, ærnar kollóttar og
hrútarnir hyrndir.
Verndunarstyrkir
Evrópusambandsins
Síðasta morguninn fundaði svokall-
aður SUBSIBREED-hópur undir
stjórn Drago Kompan frá Slóveníu.
Hópurinn er að draga saman upp-
lýsingar um stofnverndarstyrki í
Evrópulöndum og verður væntan-
lega gefin út bók um efnið að sumri.
Þar sem ég hef svarað spurninga-
könnunum hópsins sem tengiliður
Íslands, nú síðast í haust, var mér
boðið að vera með á fundinum og
varð margs vísari um þá styrki sem
þeir bændur njóta sem vilja taka
þátt í verndun búfjárkynja, bæði í
Evrópusambandinu og utan þess.
Þar með var rædd sú hugmynda-
fræði og þær reglur sem lagðar eru
til grundvallar við slíkar styrkveit-
ingar. Þetta gæti skipt máli í viðræð-
um vegna umsóknar Ríkisstjórnar
Íslands um ESB-aðild. Hef ég undir
höndum ýmsar upplýsingar sem að
gagni gætu komið.
Frumkvöðlar heiðraðir
Tveir frumkvöðlar að stofnun RBI
voru heiðraðir í lok ráðstefnunnar,
þeir Keith Ramsay frá Suður-Afríku,
fyrrverandi forseti, og Lawrence
Alderson frá Bretlandi, núverandi
forseti. Hafa þeir báðir unnið mikið
og gott starf í þágu verndunar erfða-
efnis búfjár, sem hófst með björgun
kynja í útrýmingarhættu en nær nú
til allra búfjárkynja um allan heim.
Lawrence þekki ég frá fyrri tíð en
þarna sá ég Keith í fyrsta skipti og
varð margs vísari í viðræðum við
hann.
Höfundurinn, Dr. Ólafur R.
Dýrmundsson, er landsráðunautur
hjá Bændasamtökum Íslands,
stofnfélagi í Geitfjárræktarfélagi
Íslands, Eigenda- og ræktenda-
félagi landnámshænsna og
Forystufjárræktarfélagi Íslands, og
formaður þess síðastnefnda.
Nánari upplýsingar ord@bondi.is
Verndun búfjárkynja stuðlar að fæðuöryggi
– Tímamótaráðstefna í Tyrklandi
Kilis og Saanen geitur á „Kilisli“ búinu skammt frá Tekirdag.
Kivirick ær og hrútur. Mynd IS
Anddyri ráðstefnuhallar Namik Kemal Háskóla i Tekirdag.
Starfsfólk Tyrkneska Ríkissjónvarpsins tók viðtöl við skipuleggjendur ráðstefnunnar og bóndann á "Kilisli" búinu
fyrir búnaðarþáttinn sem er fastur dagskrárliður. Lawrence Alderson forseti RBI stendur lengst t.v. og Ihsan Soysal
prófessor í Tekirdag er að tala í hljóðnemann.