Bændablaðið - 27.10.2011, Side 23
23Bændablaðið | fimmtudagur 27. október 2011
Íbúar í Grýtubakkahreppi héldu
upp á 30 ára afmæli Grenivíkur-
skóla þann 13. október og var
mikið um dýrðir, en því var fagnað
að þrír áratugir væru liðnir frá
því að flutt var í nýtt og glæsilegt
húsnæði. Áður hafði skólinn verið
í húsnæði sem byggt var árið 1925
og var það löngu orðið of lítið.
Skólinn er nú starfandi í 620 fer-
metra húsnæði og er það á tveimur
hæðum, sundlaug sem byggð var
árið 1990 er við skólann og íþrótta-
hús var reist fjórum árum síðar.
Nýbygging við íþróttamiðstöð var
vígð haustið 2005.
Nemendur og starfsfólk hófu
afmælisdaginn á samverustund og
mældu trefil sem þau höfðu í sam-
einingu prjónað. Takmarkið var
að prjóna 30 metra trefil, en hann
reyndist heldur lengri eða 43 metrar.
Fengu fótboltaspil og
Skólahreystigræjur
Hátíðardagskrá var í íþróttahús-
inu síðdegis þar sem flutt voru
ávörp, núverandi skólastjóri, Ásta
F. Flosadóttir ávarpaði samkomuna
og tveir fyrrverandi skólastjórar
einnig, þeir Björn Ingólfsson og
Valdimar Víðisson. Nemendur
sungu „Næturljóð úr Fjörðum“,
Gunnar Örn Arnórsson, fyrrverandi
nemandi, lék á gítar og söng og annar
slíkur, Ingólfur Ásgeirsson, rifjaði
upp gamlar minningar úr skólanum.
Séra Bolli Pétur Bollason flutti einn-
ig ávarp. Þá var sýning á gömlum
tækjum í eigu skólans og eins gátu
gestir kíkt inn í opinn spilatíma á
vegum tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Skólanum bárust fjölmargar
gjafir í tilefni dagsins en má þar
nefna að Sænes ehf. gaf skólanum
fótboltaspil og Kvenfélagið Hlín og
Karlfélagið Hallsteinn færðu skól-
anum Skólahreystigræjur.
Dagskráin endaði á því að skólinn
fékk Grænfánann formlega afhentan
í þriðja sinn. Að lokum fengu allir
kökur sem nemendur skólans höfðu
bakað í tilefni dagsins.
Hugur, hönd og heimabyggð
Nemendur í Grenivíkurskóla eru 61
talsins í vetur. Ásta Fönn Flosadóttir
skólastjóri segir að flestir hafi þeir
verið rúmlega 90 um miðjan 9. ára-
tuginn en fækkað á fimmtán árum
alveg niður í 43. Nemendafjöldi
hefur nú verið um 60 í nokkur ár.
Ásta Fönn segir að samkennsla sé í
bekkjum og er kennt í 6 námshópum
í vetur.
„Við leggjum mikla áherslu á
umhverfismennt í skólanum og eru
nemendur í 1.- 8. bekk í útiskóla
einu sinni í viku. Starf skólans
byggir á leiðarljósum, skólastefnu
Grýtubakkahrepps; Hugur, hönd og
heimabyggð,“ segir hún. Skólaheit
Grenivíkurskóla er: „Ég kem í skól-
ann til að læra og gera mitt besta”. Í
skólaheitinu felst að skólinn leitast
við að haga skólastarfinu í sem
fyllstu samræmi við eðli og þarfir
nemenda og stuðla að alhliða þroska
hvers og eins. Áhersla er lögð á að
nýta námstímann vel og að allir geti
nýtt hæfileika sína til fulls,“ segir
Ásta Fönn. /MÞÞ.
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Þessir vilja ólmir
komast í sveitina!
Kynntu þér úrval notaðra bíla á
www.askja.is
Opið virka daga frá 9-18
Laugardaga frá 12-16
Verð kr. 2.590.000
Mitsubishi L200 Instyle 4x4
árg. 2006, ekinn 111 þús. km
2477cc, dísel, beinsk.
Pallhús
Dráttarkrókur
Verð kr. 1.690.000
Ford Escape 4x4
árg. 2005, ekinn 120 þús. km
2966cc, bensín, sjálfsk.
Álfelgur
Skyggðar rúður
Verð kr. 3.450.000
Nissan Qashqai SE 4x4
árg. 2009, ekinn 41 þús. km
2000cc, bensín, sjálfsk.
Álfelgur
Skyggðar rúður
Verð kr. 6.890.000
Toyota Land Cruiser GX 4x4
árg. 2008, ekinn 81 þús. km
3000cc, dísel, sjálfsk.
Sóllúga
Kastaragrind, húddhlíf
4 6
Nissan P thfinder 4x4
7 106 þús. km
2488
Álfelgur
Skyggða rúður
Verð kr. 3.390.000
Nissan Navara 4x4
árg. 2006, ekinn 93 þús. km
2500cc, dísel, sjálfsk.
Dráttarkrókur
Stigbretti
TILBO
ÐSVE
RÐ!
Kr. 1
.090.
000
Verð kr. 6.890.000
Toyota Land Cruiser GX 4x4
árg. 2008, ekinn 81 þús. km
3000cc, dísel, sjálfsk.
Sóllúga
Kastaragrind, húddhlíf
TILBO
ÐSVE
RÐ!
Kr. 5
.990.
000
TILBO
ÐSVE
RÐ!
Kr. 3
.990.
000
TILBO
ÐSVE
RÐ!
Kr. 2
.190.
000
Verð kr. 3.690.000
Kia Sorento EX 4x4
árg. 2008, ekinn 72 þús. km
2500cc, dísel, sjálfsk.
Álfelgur
3,5 tonna dráttargeta
TILBO
ÐSVE
RÐ!
Kr. 3
.290.
000
TILBO
ÐSVE
RÐ!
Kr. 3
.190.
000
TILBO
ÐSVE
RÐ!
Kr. 2
.990.
000
Dekkjainnflutningur
Viltu spara
Eigum á lager flestar stærðir traktors, vagna og
vinnuvéladekkja á góðu verði.
Einnig mikið úrval fólksbíla og jeppadekkja 31" 33"
35" 38" á lager 10% aukaafsláttur.
Verðdæmi:
Traktorsdekk 540/65 R30 kr. 170.000 m/vsk
Vagnadekk 600/50 -22,5 kr. 135.000 m/vsk
16.9/14-30 kr. 102.000 m/vsk
Verð gildir á afhendingastöðvar Landflutninga
um allt land.
Jason ehf
Hafnarstræti 88
Akureyri
Vinsamlegast hafið samband við
Ármann Sverrisson 896-8462 - e-mail manni@gott.is
Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124
Framleiðum
margar stærðir
af mykjudreifurum og
mykjudælum fyrir húsdýraáburð.
Sími 565-1800 - www.velbodi.is
Samtök ungra bænda
vilja minna á ljósmyndakeppnina fyrir
dagatal samtakanna fyrir árið 2012.
Síðasti dagur til að senda inn myndir
til þátttöku er 1. nóvember og sendast
á ungurbondi@gmail.com (300dpi).
Haldið upp á 30 ára afmæli Grenivíkurskóla
– Áhersla lögð á að allir geti nýtt hæfileika sína til fulls - Skólanum afhentur grænfáninn í þriðja sinn
Íbúar í Grýtubakkahreppi héldu upp á 30 ára afmæli Grenivíkurskóla þann
13. október og var mikið um dýrðir. Þrír áratugir voru þá liðnir frá því að utt
var í nýtt og glæsilegt húsnæði. Grenivíkurskóli fékk Grænfánann afhentan
á hátíðarsamkomunni og nú í þriðja sinn. Fer vel á því þar sem skólinn
hefur það að markmiði að auka umhver svitund nemenda, starfsfólks og
samfélagsins alls. Það voru nemendur 4. og 5. bekkja sem tóku við fánanum
og sýndu gestum.