Bændablaðið - 03.05.2012, Side 8
Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 20128
Fréttir
Gestur Helgason á Landamóti í
Kinn og Þórarinn Kristjánsson,
kenndur við Gúmmívinnsluna
á Akureyri, hafa stofnað félagið
GPO ehf., en tilgangur þess og
markmið er að endurvinna plast,
einkum rúllubaggaplast til að
byrja með og breyta því í olíu.
Hafa félagarnir fest kaup á þar til
gerðri vél sem vinnur olíu úr plasti.
„Við erum tveir í þessu enn sem
komið er, en nokkrir aðilar hafa
sýnt áhuga á að taka þátt með okkur
og ég geri ráð fyrir að fleiri bætist
í hópinn,“ segir Gestur, en hann lagði
leið sína til Japan í fyrra til að kynna
sér vélar sem þarlendir framleiða í
því skyni að vinna olíu úr plasti. Nú
nýlega kom svo til landsins plastend-
urvinnsluvél, sú heitir Be-h Desktop
og er eins konar „heimilisvél“, þ.e.
hún er framleidd með það í huga að
allur almenningur geti nýtt sér hana
á heimilum sínum. „Þessi vél er enn
það dýr að hún er ekki í almennri
notkun, en hugsunin á bak við fram-
leiðslu hennar er engu að síður sú að
hún verði notuð á heimilum,“ segir
Gestur.
Álíka stór og uppþvottavél!
Að sögn Gests er talsvert um það
í Japan, heimalandi vélarinnar, að
skólar og stofnanir hafi fest kaup
á tækinu, en þar í landi sé börnum
kennt að rusl sé ekki endilega bara
rusl. Í háskólum nýtist vélar af þessu
tagi til kennslu í efnafræði. Vélin er
um 50 kíló að þyngd og álíka stór
og uppþvottavél, hún er tölvustýrð
og auðveld í notkun að sögn Gests,
sem þegar er farinn að skoða hvernig
hún virkar og líst vel á. Þá eru vélar
af þessu tagi hljóðlausar og menga
ekki út frá sér.
Vélin er heima á Landamóti, en í
vikunni er fyrirhugað að flytja hana
til Akureyrar þar sem hún verður
staðsett og þar sem Gestur gerir ráð
fyrir að starfsemi fyrirtækisins muni
fara fram í framtíðinni. „Við ætlum
okkur að nota þessa vél í rannsóknar-
vinnu, höfum kynnt hana fyrir starfs-
fólki í Háskólanum á Akureyri og
væntum þess að samstarf takist við
háskólafólk um rannsóknarþáttinn,“
segir Gestur.
Með nýrri og öflugri vél fer
starfsemin í fullan gang
Gestur segir að félagið muni til að
byrja með einbeita sér að vinnslu
á rúllubaggaplasti, það sé einfalt
þar sem því sé safnað skipulega
og magnið sem til falli umtalsvert.
Plast af einni rúllu er um það bil
1200 grömm og úr því má vinna
um það bil einn lítra af olíu. Gestur
segir eiginleika plasts mismunandi
og sumt henti ekki til olíuvinnslu,
en allt venjulegt, mjúkt plast dugi,
plast sem ber stafina PP, PE og PS.
„Plast er af mismunandi gerðum og
gefur því ekki allt jafnmikla olíu, en
við erum að fara af stað núna með
rannsóknir á þessum þætti,“ segir
Gestur og bætir við að þeir félagar
vilji þó einkum sýna fram á að þetta
sé hægt; sé raunveruleiki en ekki bara
eitthvert bull.
Þeir Gestur og Þórarinn hafa
pantað aðra og stærri vél, eins konar
verksmiðjuútgáfu og vona að hún
verði komin til landsins og í notkun
næsta haust. „Þá getum við byrjað
þessa starfsemi af fullum krafti,“
segir Gestur. Vélin er mun stærri en
sú sem fyrir er og getur framleitt um
1.200 lítra af olíu á sólarhring.
Olía til húshitunar og á
skipaflotann
Sú olía sem til verður er hráolía og
segir Gestur að hana sé t.d. hægt að
brenna til húshitunar þar sem þar til
gerðir brennarar eru til staðar, en eins
sé hægt að nýta hana til að kynda
vélar skipa. Með einföldum hætti
er svo hægt að breyta hráolíunni í
bæði bensín og dísil. „Með því að
bræða plastið við mismunandi hita
fáum við úr því þrenns konar afurðir;
bensín, dísilolíu og steinolíu,“ segir
Gestur. Hann hefur einkaleyfi á inn-
flutningi á vélum af þessu tagi hér á
landi, í Færeyjum og á Grænlandi og
hyggst beina sjónum að Íslandi fyrsta
kastið, safna eigin reynslu hér áður
en farið verði að kynna nágrönnum
okkar kosti vélarinnar, en það verði
hins vegar gert í nánustu framtíð.
Gestur rekur netverslunina jar-
depli.com og selur þar bækur, fatnað,
varahluti og verkfæri til grisjunar
og skógarhöggs. Á þeirri síðu má
einnig kynna sér ýmislegt fleira um
plastendurvinnsluvélina.
/MÞÞ
GPO ehf. ætlar að endurvinna plast og breyta í olíu:
Einn lítri af olíu fæst úr plasti
af einum rúllubagga
– Félagið hefur þegar pantað verksmiðjuútgáfu af búnaði með um 1200 lítra framleiðslugetu á sólarhringÞúsundir gesta
heimsækja bændur
á hverju ári
Eins og síðustu ár opna bændur
bæi sína fyrir gestum og gangandi
undir merkjum Opins landbún-
aðar.
Alls eru 35 bæir víðs vegar
um land sem bjóða almenningi
gegn vægu gjaldi að virða fyrir sér
búskapinn og fræðast um þau störf
sem unnnin eru í sveitum landsins.
Sveitaheimsóknirnar njóta sívaxandi
vinsælda en á síðasta ári voru um
50 þúsund manns sem heimsóttu
bændur í Opnum landbúnaði. Stór
hópur er leikskólabörn og grunn-
skólanemar sem fara í vorheimsóknir
á meðan sauðburður stendur yfir en
þónokkur aukning er á vinnustaða-
ferðum og hópum erlendra ferða-
manna. Allar upplýsingar um bæi í
Opnun landbúnaði má nálgast á vef
Bændasamtakanna, www.bondi.is, og
í kynningarbæklingi Ferðaþjónustu
bænda sem kemur út á næstu vikum.
Jón póstur, sem notar mikla olíu, skoðar framleiðsluna hjá Gesti og líst vel á. Myndir: MÞÞ
Be-h plastendurvinnsluvélin er framleidd hjá fyrirtækinu Blest í Japan, en
þar í landi er algengt að skólar og stofnanir nýti sér vélar af þessu tagi. Vélin
vegur um 50 kíló og er að umfangi álíka og uppþvottavél.
Í fyrstu mun félagið einbeita sér að
rúllubaggaplasti en úr plasti af einni
rúllu má búa til einn lítra af olíu. Hér
vatninu.
Það fer ekki mikið fyrir þessu olíu-
gerðartæki.
Félag skógareigenda á Suðurlandi
fagnar 20 ára afmæli sínu á Hótel
Geysi í Haukadal nú um helgina
og verður blásið til aðalfundar
félagsins á laugardaginn 5. maí.
Skógarbændur héldu stofnfund
félagsins á Selfossi 7. mars 1992.
Sitthvað hefur áunnist hjá skógar-
bændum og í sögu nytjaskógræktar
á Íslandi þessi 20 ár sem liðin eru
en félagsmenn eru nú um 250.
Félagsstarfið er öflugt og skógar-
bændur mjög áhugasamir um að ná
sem bestum árangri í ræktuninni.
Aukin þekking og reynsla
María E. Ingvadóttir, formaður Félags
skógareigenda á Suðurlandi, segir að
þekking og reynsla á öllu sem við-
kemur skógrækt hafi aukist mikið á
þessum tuttugu árum. Það lúti m.a.
að aukinni þekkingu á jarðvegi, teg-
undum, gæðaeftirliti með plöntum
og áburðargjöf, svo að eitthvað sé
nefnt. Fræðsla og skoðunarferðir eru
stórir þættir í starfi félagsins. Nefna
má árlega Jónsmessugöngu, þar sem
skógarjörð er heimsótt og síðan glaðst
við grillið og ketilkaffið. Segir hún
að haustferðir félagsins séu einnig
árangursríkar, en þá eru fræðsla og
reynslusögur efst á dagskrá. Ýmis
réttindamál skógarbænda eru einnig
orðin fyrirferðarmeiri í starfi félagsins
en áður.
„Hjá mörgum bændum er komið
að grisjun og eru skemmtileg verk-
efni framundan varðandi úrvinnslu á
þeim viði og nýtingu annarra afurða
skógarins,“ segir María og býst við
skemmtilegum aðalfundi og að þetta
21. starfsár verði fjölbreytt og árang-
ursríkt.
Erindi og skoðunarferð
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa
mun Hörður Harðarson, fyrsti formað-
ur félagsins, segja frá stofnun þess og
Björn B. Jónsson, framkvæmdastjóri
Suðurlandsskóga, mun halda erindi
um stöðu Suðurlandsskóga og átaks-
verkefni í grisjun. Þá verður farið um
hérað, skoðaður 20 ára gamall skógur
í Hrosshaga, skógrækt í Gýgjarhóli,
handverksfólk í Gýgjarhólskoti heim-
sótt og haldið í Haukadalsskóg með
Böðvar Guðmundsson skógfræðing
í fararbroddi.
Félag skógareigenda
á Suðurlandi 20 ára