Bændablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 2012 Sauðfjárbændur í Eyjafirði komu saman til aðalfundar: „Þurfa bændur að laumast með sín kjaramál til að valda ekki óánægju í þjóðfélaginu?" – spurði Birgir Arason, formaður Félags sauðfjárbænda í Eyjafirði „Er ástæða til bjartsýni á þessum síðustu og verstu, eins og sagt er, þegar endalausar álögur eru born- ar á okkar borð og okkur gert skylt að innbyrða, hvað sem okkur kann að finnast um þær? Enn hækkar eldsneytið sem við þurfum til rekst- urs á okkar búum og til einkanota. Verður einhver var við vilja stjórn- valda til að lækka þessar álögur?“ spurði Birgir Arason, bóndi í Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit og formaður Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð, á aðalfundi félagsins sem haldinn var fyrir skömmu. Óeðlilegt að mega ekki ræða kjör sín Birgir spurði hvort til stæði að koma á þannig löggjöf að bændur hefðu ekkert um það að segja hverjir færu yfir land þeirra, utanaðkomandi aðilar gætu jafnvel skipulagt ferðir um eignarlönd bænda og tekið fyrir gjald sjálfum sér til handa án þess að bóndinn fengi nokkuð í sinn hlut. Hann hélt áfram og spurði hvort tímarnir væru orðnir svo breyttir að bændur þyrftu að laumast með kjaramál sín til að valda ekki óánægju í þjóðfélaginu og vera „sakaðir um einokun af aðilum sem sjálfir stunda einokun á markaði“. Síðar sagði hann það í hæsta máta óeðlilegt að mega ekki ræða kjör sín við þá aðila sem taka við afurðum bænda. Þá væri sérkennilegt að skoðanir bænda um eigin afkomu mættu hvergi koma fram öðruvísi en að fram á ritvöllinn stykkju langskólagengnir embættis- menn á launum hjá hinu opinbera sem rangtúlkuðu flest það sem við kæmi starfi bænda. Birgir velti einnig fyrir sér hvort ekki væri kominn tími til að ræða breytingar á núverandi stuðningi við greinina og gera hann þannig að kynslóðaskipti yrðu auðveldari. „Eða eigum við að einangrast í því kerfi sem við búum við í dag; horfa upp á þá sem vilja hætta búrekstri lokast inni og geta ekki hætt, því enginn geti tekið við þar sem ekki virðist rekstrargrundvöllur sökum mikillar skuldsetningar?“ Finna þarf lausn á förgunarmálinu Birgir kom inn á gjaldtöku dýralækna fyrir garnaveikibólusetningu í erindi sínu á fundinum og sagði talsverðan mun vera á milli bæja í þeim efnum. Eitt sveitarfélag á Eyjafjarðarsvæðinu tekur þátt í kostnaði við bólusetn- inguna en annars staðar greiða bændur kostnaðinn alfarið. Förgun dýraleifa kom einnig til tals, enda umræðan þar um fyrirferðarmikil í lok liðins árs en Birgir sagði ljóst að endurskoða þyrfti þessi mál frá grunni til að ná niður kostnaði sem málaflokknum fylgdi. Nefndi hann að fyrir fáum árum hefði mikið kapp verið lagt á að byggja moltuverk- smiðju í Eyjafirði, sem átti að taka við öllum úrgangi. „Nú situr þetta fyrirtæki sem fangi í höndum stjórn- málamanna sem virðast taka ákvarð- anir eftir því hvort vindurinn blæs úr austri eða vestri,“ sagði Birgir. Tvö ávörp voru flutt á fund- inum, annars vegar ræddi Þórarinn Pétursson bóndi á Grýtubakka og núverandi formaður Landssamtaka sauðfjárbænda um málefni LS og Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir MAST fjallaði um stofnunina og hlutverk hennar. /MÞÞ Birgir Arason, bóndi í Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit og formaður Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð, hefur ekki orðið var við vilja stjórnvalda til að lækka álögur á eldsneyti - fremur að ætlun þeirra sé að rýja bæði bændur og búalið inn að skinni með sífelldum hækkunum, svo gripið sé til myndlíkingar sem á vel við myndina. Hún var tekin í fjárhúsi Birgis að Gullbrekku fyrir fáum árum, þegar starfsfólk Glófa kynnti sér hvernig menn bera sig að við rúning. Sjúkrahúsið á Akureyri tekur þátt í Norðurslóðaverkefni Evrópusambandsins: Leita lausna til að halda í starfsfólk í strjálbýli Sjúkrahúsið á Akureyri er þátt- takandi í stóru samstarfsverkefni á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins, sem heitir „Recruitment and Retention of Health Care Providers and Public Service Sector Workers in Remote Rural Areas“. Slík verkefni bjóða upp á möguleika á því að finna nýjar leiðir til að fást við sameiginleg viðfangsefni og uppgötva ný tækifæri. Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og bráða-, fræðslu- og gæðasviðs Sjúkrahússins á Akureyri, segir að megininntak verkefnisins felist fyrst og fremst í því að finna lausnir á viðvarandi vandamálum sem tengist því að ráða og halda í heilbrigðis- starfsfólk á strjálbýlum svæðum í Norður-Evrópu. Samstarfsaðilar koma frá Noregi, Svíþjóð, Kanada, Írlandi, Grænlandi og Skotlandi, en Skotar leiða verkefnið. Auk Sjúkrahússins á Akureyri taka þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Hikandi við tilhugsunina að vinna í strjálbýli „Við munum m.a. leita svara við því af hverju heilbrigðisstarfsfólk er hikandi við þá tilhugsun að vinna í strjálbýli og hvað þarf til þess að það haldi áfram að vinna í strjálbýli. Einnig verður horft á hvaða þættir það eru sem veita heilbrigðisstarfs- fólki ánægju af því að vinna í strjál- býli og þá með tilliti til fjölskyldu, skóla, afþreyingarmöguleika og fleira,“ segir Hildigunnur. Í upp- hafi verður upplýsinga aflað með viðamikilli rafrænni könnun í öllum löndunum þar sem heilbrigðisstarfs- fólk /-nemar í þéttbýli og dreifbýli verða beðnir um að svara. Verkefnið er einnig stefnumót- andi, að sögn Hildigunnar, að því leyti að ef vel tekst til verður hægt að nýta væntanlegar niðurstöður fyrir fleiri starfshópa en heilbrigðis- starfsmenn. Hildigunnur segir að ávinningur þessa verkefnis verði mikill, þar sem verið sé að leita svara við því hvað þurfi til að halda fólki í starfi með tilliti til faglegra og félags- legra þátta auk umhverfis- og fjöl- skyldusjónarmiða. „Einnig skapast með þátttöku góð alþjóðleg tengsl sem eru mikilvæg í verkefnum sem þessum,“ segir hún. Verkefnið er til þriggja ára, hófst í júní 2011 og lýkur í júní 2014. Vinnutilhögun hópsins er slík að hópurinn fundar allur tvisvar á ári en þess á milli starfa vinnuhópar. Sameiginlegur fundur stendur yfir þessa dagana; hófst síðastliðinn þriðjudag og lýkur í dag, fimmtudag, en um 30 erlendir gestir sækja fund- inn. /MÞÞ Sjúkrahúsið á Akureyri er þátttakandi í stóru samstarfsverkefni á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins, en vinnufundur vegna verk- efnisins var haldinn á Akureyri í apríl. Á myndinni eru fulltrúar frá Íslandi og Skotlandi en um 30 erlendir gestir sóttu fundinn. Íslenskar kartöflur senn á þrotum Íslenskar kartöflur eru um það bil að verða búnar í verslunum, flestir framleiðendur eru þegar búnir að senda frá sér síðustu birgðirnar en nokkir eiga örlítið eftir og eru að ganga frá síðustu sendingunum. Bergvin Jóhannsson, bóndi á Áshóli í Grýtubakkahreppi og for- maður Félags kartöflubænda, segir að staðan um miðjan apríl sé sú að íslenskar kartöflur séu svo gott sem búnar. Uppskera í fyrrahaust var heldur lakari en verið hefur undanfarin ár og því hefur gengið hratt á íslensku kartöflurnar í vetur. Bergvin segir að víða séu kartöflubændur búnir með birgðir sínar, m.a. hann og fleiri í Grýtubakkahreppi, einhverjir eigi smáslatta eftir og séu að ganga frá síðustu sendingunum í verslanir um þessar mundir. „Það verður eitthvað til af íslenskum kartöflum í verslunum út mánuðinn, en síðan tekur innflutn- ingurinn alfarið við,“ segir Bergvin. Hann nefnir að kartöflubændur í Þykkvabæ hafi nýtt íslenska fram- leiðslu í vinnslukartöflur nú á liðnu hausti en árið á undan notast við innfluttar kartöflur og það sé einnig skýringin á því hve snemma íslenskar kartöflur hverfi úr hillum verslana þetta árið. Bergvin segir að almennt sé minna til af kartöflum í heiminum en oft áður og telur að erfitt geti reynst að verða sér úti um nægilegt magn, birgðir hvarvetna séu minni nú en þær hafi áður verið. „Það gildir nánast um öll matvæli, sýnist mér, samkvæmt skýrslum þar um,“ segir hann. Á góðum sumrum má vænta þess að íslenskar kartöflur komi í verslanir í lok júlí eða byrjun ágúst. /MÞÞ á liðnu hausti og sögðu þær að oft hefði meira verið undir grösunum. Til stendur í sumar að gera til- raun til að þróa ný kartöfluyrki í þeim tilgangi að bæta uppskeru og bragðgæði og eins er markmiðið að reyna að finna yrki sem hentar til lengri geymslu. Í áranna rás hafa mismundandi kartöfluyrki verið þróuð, en hér á landi eru algengustu yrkin gullauga, rauðar íslenskar, premier og Helga. Bergvin Jóhannsson, formaður félags kartöflubænda og kartöflufram- leiðandi á Áshóli í Grýtubakkahreppi, segir að um sé að ræða tilraun sem taki á ýmsum þáttum. „Við erum m.a. að leita að nýjum yrkjum sem henta íslenskum jarðvegi og aðstæðum, eru heppileg til vinnslu og henta vel til lengri tíma geymslu,“ segir hann. Mikilvægt er að sögn Bergvins að kartöflur séu hnöttóttar og með grunn augu, en þeir eiginleikar valda því að rýrnun verður með minnsta móti við afhýðingu í vélum. Mikil afföll séu jafnan hvað íslensku kartöflurnar varðar, því þær hafi djúp augu. Framfarirnar í betri geymslu Bergvin segir að þegar horft sé til vinnslunnar skipti geymslueiginleik- ar miklu, sem og bragðgæði. „Bættar aðferðir við geymslu verða til þess að kartöflur líta betur út og höfða þannig meira til neytenda, sem vilja fjölbreytt úrval. Kartöflubændur voru á ferðinni í Skotlandi í fyrra- sumar og kynntu sér m.a. nýjar aðferðir hjá Grampian Growers við þurrkun kartaflna, en þær hafa bætt gæði og lengt geymslutíma þeirra.“ Bergvin segir að reynsla Skota sýni að mestu framfarir varðandi kart- öflur á liðnum árum snúi að bættu og betra geymsluhúsnæði. Verkefnið sem um ræðir og hafist verður handa við nú í vor er unnið í samvinnu við Benny Jensen, kartöfluráðunaut hjá BJ Agro í Danmörku, Sigurgeir Ólafsson og ráðunauta Bændasamtaka Íslands. „Þessi tilraun tekur til nokkurra þátta, m.a. að reyna ný yrki kartaflna við íslenskar aðstæður. Eins verða mismunandi aðferðir í baráttu við illgresi skoðuð, áhrif áburðar, bæði mismunandi magn og gerðir og þá verða borin saman gæði kartaflna eftir geymslu að undangenginni tvenns konar formeðhöndlun,“ segir Bergvin. Verkefnið snýst um nokkra þætti Alls stendur til að prófa allt að 10 ný yrki af borð- og vinnslukartöflum og eins af svonefndum salatkartöflum, 5-10 ný yrki. Tvenns konar spír- unaraðferðir verða reyndar, annars vegar sú sem tíðkast nú um stundir, innandyra, og hins vegar utandyra. Hvað illgresið varðar verður borin saman vélræn hreinsun og eyðing með varnarefnum. Þá verður gerð einföld áburðartilraun með þrenns konar styrk og tveimur tegundum áburðar. Að lokum verða kartöflur meðhöndlaðar á tvenns konar vegu fyrir geymslu, með þeirri aðferð sem bændur viðhafa nú og eins verður sér- stök þurrkun fyrir sáragræðsluferlið, þar sem vifta verður notuð til að sjúga loft í gegnum kassa í allt að sólar- hring áður en kartöflurnar eru settar í sáragræðslu. „Við teljum að rannsóknin muni nýtast kartöflubændum og ráðgjöfum til að bæta gæði íslenskra kartaflna,“ segir Bergvin. /MÞÞ Tilraun gerð í sumar til að þróa nýtt kartöfluyrki – Tilgangurinn að bæta uppskeru og bragðgæði sumar prófa vél af gerðinni Grimmer, sem er eins konar arfaklóra, hún rífur upp og tætir arfann meðfram hryggjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.