Bændablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 52

Bændablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 2012 Íslensk hönnun Fyrirtækið Sólóhúsgögn er að miklu leyti þjónustuaðili og hönnunarstofa fyrir íslenska hönnuði sem fá góða hugmynd að nýjum stól eða borði. Einnig framleiðir fyrirtækið mikið af stólum fyrir fyrirtæki og á gott samstarf við aðra húsgagnafram- leiðendur hérlendis. Upphaf: „Sólóhúsgögn voru stofnuð árið 1960 og hafa sérhæft sig í smíði húsgagna úr járni og tré. Kristinn Guðmundsson trésmiður og Atli Jensen stofnuðu fyrirtækið en síðan keypti ég það árið 1989 eftir að einn aðili hafði átt það í millitíðinni í um það bil eitt ár. Mig langaði sjálfan að vera með rekstur, þó ætlunin hafi kannski ekki verið að ílengjast í greininni. Reksturinn hefur verið nokkuð jafn, við fórum ekkert upp í brjálæðinu sem var hér á landi og því fundum við lítið fyrir efnahagshruninu árið 2008. Nú eru sex starfsmenn með mis- munandi menntun í vinnu hjá Sólóhúsgögnum,“ útskýrir Björn Ástvaldsson, tæknifræðingur og eigandi Sólóhúsgagna. Starfsemi: „Við framleiðum fyrst og fremst fyrir fyrirtæki og einstaklinga, eigum gott samstarf við aðra hús- gagnaframleiðendur og framleið- um íhluti í þeirra framleiðslu, að- allega úr stáli. Einnig vinnum við mikið með hönnuðum og fylgjum þeim eftir í að útfæra sínar hug- myndir. Við eigum einnig sam- starf við bólsturverkstæði þegar stærri verkefni koma inn á borð. Mjög vinsælt er meðal einstak- linga að koma til okkar og velja sér stól alveg eins og menn vilja, og geta þá leikið sér með mismun- andi liti á grind og áklæði,“ segir Magnús J. Magnússon sölustjóri. Vörur: „Gömlu, góðu stólarnir frá 1960 eru vinsælastir hjá okkur, við- skiptavinirnir þekkja þá og vita að þeir virka. Síðan er lífstíðar- ábyrgð á öllum stellum frá okkur. Greinilegur áhugi er hjá fólki fyrir eldri húsgögnum, við finnum fyrir því,“ segir Björn og Magnús bætir við: „Núna erum við að endurvekja Sindrastólinn með afmælisútgáfu og framleiðum 50 sérmerkt eintök, því 50 ár eru liðin frá því hann kom fyrst á markaðinn. Þetta er samstarfsverkefni Sólóhúsgagna og G.Á. húsgagna, þar sem Sólóhúsgögn framleiða stellið, gæran kemur frá Loðskinni á Sauðárkróki og plastskelin, sem er úr trefjaplasti, er framleidd af bátasmiðjunni Ikan á Akranesi. Tappana undir stólinn framleiðir Termó í Reykjavík og G.Á. hús- gögn sjá um bólstrun. Þannig er stóllinn eins íslenskur og hann getur orðið. Einnig endurvöktum við á síðasta HönnunarMarsi stólinn Þórshamar eftir Halldór Hjálmarsson, sem kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1963, en áður höfðum við endurframleitt Skötuna eftir Halldór sem kom á markað árið 1959.“ Framundan: „Við höfum framleitt fyrir marga aðila, t.d. leikhússæti í menningar- húsið Hof á Akureyri í samstarfi við Prologus-hönnunarhús. Einnig höfum við framleitt húsgögn fyrir Viðeyjarstofu og íslenska sendi- ráðið í Berlín svo dæmi séu tekin. Annars er mikið líf í veitinga- og ferðamannageiranum og við finnum fyrir því. Fyrir 20 árum þegar ég tók við voru félagsheim- ilin úti á landi stórir viðskiptavinir en í dag eru örfá þeirra í rekstri. Markaðurinn hér heima er ágætur í dag og við kvörtum ekki. Við höfum reynt að þreifa fyrir okkur með útflutning og fundum fyrir áhuga en gengið var svo vitlaust á þeim tíma að því var sjálfhætt. Það er líka víða kreppa erlendis og við eigum nóg með innanlands- markaðinn eins og er,“ segir Björn. /ehg Stólar og borð af öllum stærðum og gerðum Magnús J. Magnússon sölustjóri og Björn Ástvaldsson, eigandi Sólóhús- gagna, í sýningarsal fyrirtækisins. Eldrauður Funi. Gömlu stólarnir eru vinsælastir um þessar mundir. Skatan eftir Halldór Hjálmarsson var til að mynda keypt í mennin- garhús Dalvíkinga og í félagsheimilið í Dimmuborgum. Hér sjást Skötustólar með litríku og skemmtilega útfærðu borði. Nýverið var Sindrastóllinn endurvakinn og 50 númeruð eintök framleidd í tilefni af 50 ára hönnunarafmæli stólsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.