Bændablaðið - 03.05.2012, Síða 11

Bændablaðið - 03.05.2012, Síða 11
Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 2012 11 Gylfaflöt 16-18 · 112 Reykjavik · Sími 553 5200 · solo.is Ásgeir Einarsson hönnuður Sindrastólsins (1927 – 2001) Í tilefni 50 ára afmælis Sindrastólsins verða framleidd 50 stk. af stólnum í sérstakri afmælisútgáfu þar sem hver og einn stóll verður sérmerktur og númeraður. Viðskiptavinir geta valið þá gæru og litaafbrigði sem þeir vilja á sinn stól sem gerir hvern stól einstakan. Stóllinn er alfarið framleiddur á Íslandi. Söluaðilar: Sólóhúsgögn og G.Á. Húsgögn Stóll 162.000 kr. Skemill 48.000 kr. Sindrastóllinn 50 ára afmælisútgáfa (1962 – 2012) Búnaðarsamband Eyjafjarðar: Sigurgeir áfram formaður Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar var haldinn í Hlíðarbæ, í kræklingahlíð, í síðasta mánuði. Kosnir voru tveir menn í stjórn þar sem Guðmundur Bjarnason á Svalbarði og Helgi Þór Helgason á Bakka höfðu setið sitt kjörtímabil. Guðmundur gaf ekki kost á sér til endurkjörs en Helgi var endurkjör- inn, ásamt Guðmundi Sturlusyni á Þúfnavöllum. Varamenn í stjórn voru kosnir þeir Árni Arnsteinsson Stóra-Dunhaga og Birgir Arason Gullbrekku. Fyrir í stjórn sitja Sigurgeir Hreinsson Hríshóli, formaður, Gunnhildur Gylfadóttir Steindyrum og Þórarinn Pétursson Grýtubakka. Sigurgeir var endurkjörinn for- maður og Gunnhildur varaformaður. Þórarinn Pétursson á eftir eitt ár af sínu kjörtímabili í stjórninni, en hann tilkynnti á fundinum að hann myndi draga sig í hlé í ljósi nýfengins embættis sem formaður LS. Fyrir vikið kemur fyrsti varamaður, Árni Arnsteinsson, inn í stjórn. Eiríkur Blöndal, framkvæmda- stjóri Bændasamtaka Íslands, flutti ávarp á fundinum og Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri SAM og fyrrverandi landbúnaðar- ráðherra var með erindi. Auk þess kynntu ráðunautar Búgarðs, þau Sigurður Þór Guðmundsson, Sigríður Bjarnadóttir, Ingvar Björnsson og María Svanþrúður Jónsdóttir, nokkur nýleg ráðgjafarverkefni sem í gangi eru á Búgarði. / MÞÞ Búnaðarsamband Eyjafjarðar 80 ára Búnaðarsamband Eyjafjarðar var stofnað árið 1932 og fagnar því 80 ára afmæli sínu í ár. Hjá sambandinu starfa 17 manns í 14 stöðugildum, en helstu verkefni sem sambandið sinnir eru leið- beiningar í landbúnaði, bókhalds- þjónusta fyrir bændur, kortagerð, sæðingar, búfjáreftirlit og þá rekur sambandið klaufskurðarbás. Vignir Sigurðsson, framkvæmda- stjóri BSE, segir að ýmislegt verði gert til að minnast þessara merku tímamóta en stærsti viðburðurinn verði landbún- aðarsýning sem haldin verður í tengslum við Handverkshátíð á Hrafnagili aðra helgina í ágúst á komandi sumri. Þar verður mikið um dýrðir og búist við fjölda gesta. Þá verður blásið til afmæl- isfagnaðar síðar á árinu, auk þess sem sambandið mun gefa út bókina Byggðir Eyjafjarðar og segir Vignir að vinnu við það verk- efni miði ágætlega. Í ritnefnd eru þeir Valdimar Gunnarsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Guðmundur Steindórsson. Í þessari bók verður fjallað um sögu Búnaðarsambandsins á árunum 1990 til 2010, lýsingar verða á hinum fimm sveitarfélögum héraðsins og taldar þær breytingar sem orðið hafa frá síðustu útgáfu. Yfirlitskort verður af hverju svæði ásamt götukortum af þéttbýlisstöðum og gerð verður grein fyrir hverri byggðri jörð, m.a. legu hverrar jarðar lýst og sagt frá búskap sem þar er stundaður. Ábúendatal verður einnig í ritinu auk mynda af bæjum og ábúendum og sama gildir um stök íbúðarhús sem bera sérnöfn og íbúa þeirra. Birtar verða íbúaskrár minni þéttbýlisstaða á svæðinu og eyðibýlaskrá. /MÞÞ Sigurgeir Hreins- son, formaður stjórnar Búnaðar- sambands Eyja- fjarðar, sker fyrstu sneiðina af afmæl- iskökunni.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.