Bændablaðið - 03.05.2012, Page 15
Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 2012 15
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!
Engin samstaða um Héraðsskólann
á Laugarvatni
Slitnað hefur upp úr viðræðum
Bláskógabyggðar og Fasteigna rík-
isins um leigu á rými undir aðstöðu
embættis Skipulags- og bygginga-
fulltrúa uppsveita Árnessýslu og
Flóa, í húsnæði Héraðsskólans á
Laugarvatni.
Helgi Kjartansson, formaður
byggðaráðs Bláskógabyggðar, þekkir
vel til málsins.
„Já, varðandi Héraðsskólamálið
þá tókum við tillögu að leigusamn-
ingi frá Fasteignum ríkisins fyrir á
síðasta fundi byggðaráðs, þann 28.
mars sl.
Þessi samningur var þess eðlis
að við gátum engan veginn gengið
að honum. Samningurinn var óhag-
stæðari en síðasta tilboð ríkisins. Það
eru skrítin vinnubrögð hjá ríkinu að
bjóða samning sem er óhagstæðari
en síðasta tilboð þaðan.
Ríkið hefði frekar átt að koma
með samning sem væri einhver
möguleiki á að sveitarfélagið gæti
gengið að.
Við höfðum hugsað okkur að taka
húsnæðið á leigu undir starfsemi
Skipulags- og byggingafulltrúa-
embættis uppsveita Árnessýslu og
Flóahrepps. En með þessu síðasta
tilboði ríkisins virðist það vera úr
sögunni.
Á síðasta fundi sveitarstjórnar,
sem var haldinn á Laugarvatni 12.
apríl, samþykkti sveitarstjórn að
ráðstafa allri efri hæð hússins að
Dalbraut 12 á Laugarvatni undir
Skipulags- og byggingafulltrúaem-
bættið frá og með 1. júlí n.k. Það
hefur legið fyrir í nokkurn tíma að
embættið þarf meira rými og betri
aðstöðu og með því að fá alla hæðina
undir starfsemina er það mál leyst.
Þetta þýðir það að sem heilsugæslan
sem hefur verið með aðstöðu í húsinu
þarf að fara annað. Við vonumst til að
finna góðan stað fyrir heilsugæsluna,
en mikilvægt er að þessi þjónusta
verði áfram í boði á Laugarvatni,“
sagði Helgi. /MHH
Sakavottorðs krafist
í Bláskógabyggð
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
hefur samþykkt að stjórnendur
allra stofnana sveitarfélagsins sjái
til þess að aðilar, sem eiga að starfa
með börnum og ungmennum,
þurfi að framvísa sakavottorði
áður en þeir taki til starfa hjá
sveitarfélaginu.
„Við teljum mikilvægt að
þeir aðilar sem starfa með börn-
um og unglingum hafi hreinan
skjöld, annað gengur ekki upp,"
sagði Helgi Kjartansson, odd-
viti Bláskógabyggðar, er hann var
spurður um málið. /MHH
Icetrack ehf. - Umboðsaðili
ATZ
mtdekk.is
28”-38”
Söluaðilar:
Hljóðlát og endingargóð