Bændablaðið - 03.05.2012, Side 32

Bændablaðið - 03.05.2012, Side 32
32 Bændablaðið | fimmtudagur 3. maí 2012 Nýlega lauk við Landbúnaðar- háskóla Íslands sameiginlegri námskeiðaröð Grænni skóga I á Suðurlandi og Vesturlandi. Námskeiðaröðin fól í sér 16 sjálfstæð námskeið sem haldin voru á þremur árum til skiptis í starfsaðstöðu LbhÍ á Reykjum og á Hvanneyri. Námskeiðin voru oftast í formi fyrirlestra, en á ein- staka námskeiði voru verklegar æfingar. Í lok flestra námskeiða var farið í vettvangsferðir í nær- liggjandi skóglendi og viðfangsefni námskeiðsins skoðað ásamt leið- beinendum. Síðasta námskeiðið var kynning nemenda á lokaverkefnum sem þau höfðu skrifað. Flest tengdust verk- efnin skógrækt og skógræktarsögu í landi nemandans. Voru verkefnin mjög góð og mörg hver yfirgrips- mikil þar sem nemendur höfðu kafað langt aftur í aldir til að skrá ábúendatal o.fl. Í lok námskeiðs- ins voru nemendur útskrifaðir úr Grænni skógum I og fengu þá bókina Íslenskar lækningajurtir í útskriftargjöf frá hagsmunaaðilum sem tengjast Grænni skógum, þ.e. félögum skógarbænda á Suðurlandi og Vesturlandi, Suðurlandsskógum, Vesturlandsskógum, Norðurlands- skógum, Skógræktinni, Skógræktar- félagi Íslands og Landgræðslunni. Það var svo Landbúnaðarháskóli Íslands sem veitti viðurkenningu fyrir bestu ritgerðina, það var Októ Einarsson sem hlaut viðurkenn- inguna fyrir ritgerð sína. Þetta var níunda námskeiðaröðin sem kláraðist frá því að Grænni skógar hófu göngu sína árið 2001 við Garðyrkjuskóla ríkisins í Hveragerði. Á þessum árum hafa um 300 manns sótt námskeiðarað- irnar og hefur þekking skógrækt- enda sem sótt hafa námskeiðin aukist gríðarlega. Í dag eru fjórar námskeiðar- aðir Grænni skóga I og II í gangi víða um landið, á Austurlandi, tvær sameiginlegar fyrir Suðurland og Vesturland og svo eru Grænni skógar II á Norðurlandi. Grænni skógar Útskriftarhópur í námskeiðaröð Landbúnaðarháskóla Íslands, Grænni skógum. Októ Einarsson hlaut viðurkenningu fyrir lokaritgerð sína. Hollvinafélag Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar hefur undan- farið ár unnið með sveitar- stjórn Eyjafjarðarsveitar að því að fá húsakynni í Saurbæ í Eyjafjarðarsveit til afnota fyrir Búnaðarsögusafn. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2012 var sam- þykkt heimild til handa mennta- og menningarmálaráðherra til að semja við sveitarstjórn um afhend- ingu bæjarhúsanna í því skyni að koma þar upp safni. Fyrsti aðalfundur Hollvina- félagsins var haldinn á dögunum, en það var stofnað í mars í fyrra. Sigurður Steingrímsson var kjör- inn formaður stjórnar og tók við af Bjarna Kristjánssyni. Fyrsta stjórn félagins vann einkum að því með sveitarstjórn að fá húsnæði í Saurbæ til formlegra afnota fyrir Búnaðarsögusafn, en stjórnvöld höfðu gefið fyrirheit þar um fyrir mörgum árum. Hvorki gekk þó né rak í þeim málum árum saman. Stjórnin vann einnig að tillögum um nýtingu húsnæðisins og umhverfis þess, hvernig ætti að koma vélum og tækjum þar fyrir og móta stefnu um framtíð safnsins og helstu verkefni þess. Megináherslan var á húsnæðis- málin enda taldi stjórnin sér ekki fært að leggja í mikla vinnu á svæðinu nema búið væri að leysa þau mál. Ekkert þokaðist árum saman Þrátt fyrir mikinn eftirrekstur og bréfaskipti við stjórnvöld árum saman hafði ekkert þokast fyrr en við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2012, en þar er loksins samþykkt heimild til handa mennta- og menn- ingarmálaráðuneytinu til að „semja við Eyjafjarðarsveit um afhendingu bæjarhúsanna í Saurbæ í safnaskyni“ en það er 8-10 árum eftir að málið var fyrst vakið og ádráttur gefinn um afhendingu húsanna. Saga þessa máls hefur verið með miklum ólík- indum og aldrei hefur fengist nein skýring á því hvað olli þessum drætti á afgreiðslu þess, segir í fundargerð frá aðalfundi Hollvinafélagsins. „Við fögnum því að heimildin sé fyrir hendi. Nú er unnið að samningi á milli sveitarstjórnar og ráðuneytisins og við gerum ráð fyrir að í kjölfarið muni Hollvinafélagið semja við sveitarstjórn um afnot af húsakynnunum og svæðinu umhverfis þau,“ segir Sigurður. Smámunasafnið hefur verið í Sólgarði um árabil, en á staðnum er fyrirhugað að verði eins konar safnasvæði. Kyrrstaða að baki Af þessum ástæðum var því kyrr- staða allt síðastliðið ár í öllum fram- kvæmdum og fyrirætlunum þeim, sem stjórnin setti sér. „Við vonumst til að geta að einhverju leyti byrjað í sumar,“ segir Sigurður en mikið verk er framundan; m.a. þarf að taka til á svæðinu, skipuleggja það og ýmislegt fleira áður en eiginleg starfsemi Búnaðarsögusafns getur hafist. Sigurður segir að stefnt sé að því að kynna safnið í Sólgarði, sýna gripi og kynna áform. Stofnaður hefur verið vinnuhópur sem hefur það verkefni að afla ýmiss konar heimilda sem tengjast sögu og þróun landbúnaðar á svæðinu, í þeim tilgangi að gera söguna sýnilegri í máli og myndum. Hópurinn er að koma skipulagi á söfnun ljósmynda meðal íbúa Eyjafjarðarsveitar, mynda sem gætu verið hluti af eins konar þjóðháttalýsingu. Söfnunin er unnin í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri og menningarmálanefnd sveitarfélagsins. „Okkur þykir miklvægt að halda þessu til haga og varðveita söguna,“ segir Sigurður, en m.a. er leitað eftir myndum af fólki við bústörf á ýmsum tímum um allan Eyjafjörð. Þá mun nefndin hafa umsjón með sýningu véla og tækja á Handverkshátíðinni í Eyjafjarðarsveit í sumar og gerð upp- lýsinga- og kynningarefnis í því sam- hengi. Heimildahópinn skipa Bjarni Kristjánsson, Leifur Guðmundsson og Valdimar Gunnarsson. Vegna sumarsýningarinnar fær hópurinn aukinn liðstyrk frá Ásdísi Ívarsdóttur og Arnþóri Örlygssyni. /MÞÞ Hollvinafélag Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar: Loksins fengin heimild í fjárlögum fyrir afhendingu húsanna í Saurbæ Stjórn Hollvinafélags Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar. Handverk og matvæli úr héraði Í gamla kaupfélagshúsinu á Hvolsvelli er starfræktur sveita- markaður sem opinn er alla daga ársins nema yfir jólahátíðina. Þar selja hátt í 200 aðilar handverk sitt og á sumrin lifnar enn frekar yfir starfseminni þegar uppskera frá bændum í héraðinu kemur í hús. „Við opnuðum hérna um mitt sumar árið 2010 og þetta hefur gengið vel. Sveitarfélagið stóð fyrir stofnun markaðarins á sínum tíma en margir aðilar koma að rekstrinum. Ákveðið var að finna aðstöðu fyrir fólk úr héraðinu til að selja sínar vörur. Í byrjun var þetta hugsað eins og Kolaportið þar sem eingöngu væri opið um helgar en fljótlega breyttum við því í daglega opnun. Þegar við byrjuðum vorum við að selja hand- verksvörur frá um 20 aðilum en í dag eru þetta tæplega 200 manns sem við fáum vörur frá. Allt er þetta fólk héðan úr héraðinu eða úr nálægum héruðum. Einnig erum við með um 40 birgja sem selja matvæli sín,“ segir Ásbjörn Jensen, sem sér um daglegan rekstur sveitamarkaðarins. /ehg Ásbjörn Jensen sér um daglegan rekstur sveitamarkaðarins á Hvolsvelli handverkinu seljist lopapeysurnar best. Myndir / ehg mikið úrval frá ýmsum aðilum sem tengist jólahátíðinni. Þórunn Sigurðardóttir á Hellu fékk hugmynd að kertastjökunum í kjölfar Eyjafjallajökulsgossins árið 2010 en Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs: Eymundur í Vallanesi tilnefndur Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi á Fljótsdalshéraði og eig- andi fyrirtækisins Móðir jörð ehf. er meðal þeirra ellefu sem tilnefnd- ir eru til náttúru- og umhverfis- verðlaun Norðurlandaráðs. Jens- Kjeld Jensen frá Færeyjum er einnig tilnefndur í sama flokki en þeir þykja með grasrótarstarfi sínu hafa unnið að því að varð- veita fjölbreytileika náttúrunnar í nærumhverfi sínu. Verðlaunaféð nemur 350.000 dönskum krónum. Tilkynnt verður hver hlýtur verðlaunin í Ósló þann 22. maí, á degi SÞ um líffræðilegan fjölbreytileika, og verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki þann 30. október. Um Eymundur er sagt að hann hafi undanfarin 25 ár stundað lífræn- an búskap og gróðursett skjólbelti með staðbundnum trjátegundum sem eru grundvöllur vistkerfa þar sem aðrar plöntur þrífast. Hann hefur einnig lagt áherslu á mann- legan fjölbreytileika: ár hvert starfa hjá honum ungir sjálfboðaliðar og mynda þannig alþjóðlegan félags- skap sem er trúr jörðinni og lærir að sýna umhverfi sínu virðingu. Eymundur Magnússon.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.