Fréttablaðið - 02.02.2012, Side 4
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR4
MENNTUN Hjallastefnan átti
lægsta tilboð í rekstur leikskól-
ans Sóla í Vestmannaeyjum.
Stýrihópur á vegum bæjarins
leggur til að gengið verði til
samninga við Hjallastefnuna.
Þrjú tilboð bárust og uppfylltu
tvö sett skilyrði sem sett voru.
Hjallastefnan bauð dvalargildi
á 11.905 krónur, en önnur tilboð
hljóðuðu upp á 12.449 krónur og
14.440 krónur. - þeb
Hjallastefnan átti lægsta boð:
Starfa í Eyjum
VÍSINDI Bandarískir vísindamenn
hafa breytt erfðaefni þriggja
katta með þeim afleiðingum að
þeir urðu sjálflýsandi. Tilgangur-
inn var þó ekki að hanna áhuga-
verðari gæludýr, þar sem tilraun-
in mun nýtast við rannsóknir á
HIV-veirunni.
Vísindamennirnir skeyttu
prótíni úr marglyttu saman við
vírus, sem síðan var sprautað í
þrjú frjóvguð egg læðu. Kettirnir
þrír líta eðlilega út nema þegar
ákveðnum ljósgeislum er beint
að þeim, en þá verða þeir fagur-
grænir og sjálflýsandi. Tilraun-
inni er ætlað að auka skilning á
því hvernig flytja megi erfðaefni
á milli lífvera. - bj
Genarannsóknir á HIV-veiru:
Gerðu þrjá ketti
sjálflýsandi
SJÁLFLÝSANDI Kettirnir virðast eðlilegir
í dagsbirtu en verða sjálflýsandi grænir
við ákveðin birtuskilyrði. MYND/MAYO CLINIC
VIÐSKIPTI Daðason & Biering
hefur verið bannað að nota heitið
Ísbú og lénið isbu.is. Neytenda-
stofa komst að þessu eftir að
hafa brugðist við kvörtun Ísbús
Alþjóðaviðskipta.
„Taldi Neytendastofa að Daða-
son & Biering hefði mátt vera
ljóst að skráning og notkun á lén-
inu og heitinu gæti valdið rugl-
ingi,“ segir á vef Neytendastofu.
Bæði fyrirtæki hafa með höndum
smásöluverslun sem Neytenda-
stofa telur að mörgu leyti beinast
að bændum. - óká
Neytendastofa bannar afnot:
Mátti vera ljós
ruglingshætta
GENGIÐ 01.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
222,0485
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,91 123,49
193,61 194,55
161,28 162,18
21,693 21,819
21,095 21,219
18,166 18,272
1,6149 1,6243
190,29 191,43
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í frétt um að Anna Hildur Hildibrands-
dóttir hafi tekið við starfi hjá NOMEX
kom fram að dönsk yfirvöld hefðu
lagt tvær milljónir danskra króna í
NOMEX. Hið rétta er að Norræna ráð-
herranefndin lagði fram peningana.
LEIÐRÉTT
VÍTAMÍN-FJÖLSKYLDAN
Mætir þörfum allra á heimilinu
sjá nánar á vitamin.is
Icepharm
a
20%
AFSLÁTTUR
1.FEB-29.FEB
Ekki er rétt sem sagði í blaðinu í
gær að bæjarstjórn Norðurþings
hafi ákveðið að samþykkja ekki að
stækka blandað svæði hefðbundinnar
hafnarstarfsemi og annarrar atvinnu-
starfsemi í Húsavíkurhöfn. Hins vegar
hafði skipulagsnefnd sveitarfélagsins
lagt til að hætt yrði við breytinguna
en bæjarstjórnin féllst ekki á það.
BJÖRGUN Ekki hefur gengið að
laga óeðlilegan titring í vél varð-
skipsins Þórs þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir sérfræðinga frá Rolls
Royce verksmiðjunum. Líklegt er
að skipið þurfi að fara til Noregs
til viðgerðar, að því er segir á vef
Landhelgisgæslu Íslands.
Í ljós kom í desember að titr-
ingur í annarri af aðalvélum Þórs
var yfir viðmiðunarmörkum frá
Rolls Royce, sem framleiddi vél-
arnar. Þær eru í ábyrgð hjá verk-
smiðjunum. Tilraunir til að gera
við vélarnar hér á landi skiluðu
ekki tilætluðum árangri.
Verði skipið sent til Noregs til
viðgerðar verður það væntanlega
frá í nokkrar vikur. - bj
Viðgerðir á Þór ganga illa:
Fer líklega utan
til viðgerðar
ÚR LEIK Gæsluskipin Ægir og Týr verða
við gæslustörf þurfi Þór að fara í viðgerð
í Noregi. MYND/LANDHELGISGÆSLAN
VELFERÐARMÁL Hundruð barna hafa
verið seld mansali á Norðurlönd-
unum frá árinu 2006, en engin slík
mál hafa komið upp á yfirborðið á
Íslandi. Þetta kemur meðal ann-
ars fram í nýrri skýrslu UNICEF,
barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna,
um viðbrögð Norðurlandanna við
mansali á börnum. Skýrslan var
kynnt í gær.
Erfitt er að afla nákvæmra
gagna um umfang mansals á börn-
um og löndin taka mismunandi
upplýsingar saman. 217 börn voru
skilgreind sem möguleg fórnar-
lömb mansals í Noregi á árunum
2007 til 2009. Frá 2006 til 2009
voru níu börn staðfest fórnarlömb
í Finnlandi og þrettán til viðbótar
talin möguleg fórnarlömb. Á sama
tímabili var tilkynnt um 170 man-
salsmál gegn börnum í Svíþjóð. Í
Danmörku voru málin tvö.
Öll Norðurlöndin hafa sýnt
mikla viðleitni til að taka á þess-
um málum. Breytingar hafa verið
gerðar á lögum og sérhæfðum
stofnunum komið á fót.
Áherslan hjá stjórnvöldum á að
vera á eðli misnotkunar en ekki
hvernig barn lenti í viðkomandi
aðstæðum, samkvæmt niðurstöð-
um skýrslunnar. Grundvallarregl-
ur Barnasáttmálans, að gera það
sem barni er fyrir bestu, að mis-
muna ekki börnum og að börn eigi
rétt á að láta skoðanir sínar í ljós,
ættu að stýra nálgun stjórnvalda í
þessum málum. Með honum er best
hægt að vernda öll bágstödd börn,
sagði Gordon Alexander, yfirmað-
ur rannsóknamiðstöðvar UNICEF,
við kynningu skýrslunnar.
Nú er það svo að börn séu flokk-
uð eftir því hvort þau séu staðfest
fórnarlömb mansals eða annað, til
dæmis flóttamenn með eða án for-
eldra, fórnarlömb annarra glæpa
og svo framvegis. Þessi flokkun
getur haft áhrif á hvernig meðferð
og þjónustu þau fá. Neyð barna
sem ekki eru fórnarlömb mansals
getur hins vegar verið alveg jafn
mikil og hinna.
thorunn@frettabladid.is
Börn eru seld man-
sali á Norðurlöndum
Barnasáttmáli SÞ ætti að stýra nálgun stjórnvalda á mansali á börnum.
Hundruð barna á Norðurlöndunum hafa verið fórnarlömb undanfarin ár.
UNICEF hvetur íslensk stjórnvöld til að klára fullgildingu á alþjóðasamningum.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
11°
-2°
-8°
-3°
-5°
-8°
-5°
-5°
20°
2°
8°
7°
26°
-10°
-2°
16°
-6°Á MORGUN
10-15 m/s V-til,
annars hægari vindur.
LAUGARDAGUR
Snýst í stífa SV-átt
sunnantil.
4
3
0
2
0
1
1
4
8
4
-1
12
15
7
4
3
5
5
7
8
17
8
3
1
0
2
2 4 4
1 2
3
RYSJÓTT Febrúar
heilsar með
hverri lægðinni á
fætur annarri, það
skiptast á skin og
skúrir. Í dag verður
vætusamt, síst
N-til. Á morgun
léttir til og lægir
en á laugardaginn
hvessir á ný S-
til með rigningu
sunnanlands en
éljum annars stað-
ar, síst NA-lands.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
Í skýrslunni eru fjögur
atriði nefnd sem sér-
stök úrlausnarefni fyrir
Ísland. Í fyrsta lagi er
mælt með því að Ísland
fullgildi samning Evr-
ópuráðsins um mansal
og samning Evrópu-
ráðsins um vernd barna
gegn kynferðislegri mis-
neytingu og kynferðis-
legri misnotkun. Kveðið
er á um fullgildingu
þessara samninga
í aðgerðaáætlun
íslenskra stjórnvalda
gegn mansali, og vinna
við það stendur yfir í
innanríkisráðuneytinu.
Þá er mælst til þess
að þeir dómstólar sem
geta það nýti sér alltaf
þjónustu Barnahúss, en
nú eru dómstólar og
lögregla ekki skylduð
til að gera það. Þá er
lagt til að reglu um að
börn eldri en tólf ára fái
að tjá sig um mál sín
verði breytt og sá aldur
lækkaður.
Það sem Ísland ætti að bæta
DÓMSMÁL Aðalmeðferð fór fram
í máli Sigurjóns Þ. Árnasonar,
fyrrverandi bankastjóra Lands-
bankans, gegn bankanum í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Í
málinu er tekist á um lögmæti
einkalífeyrissjóðs Sigurjóns,
en hann færði sparnað sinn frá
Íslenska lífeyrissjóðnum í sjóð í
eigin nafni í apríl 2008.
Forsaga málsins er sú að í
nóvember 2008 gaf Sigurjón út
tvö veðskuldabréf, samtals að
fjárhæð 70 milljóna króna, sem
hann seldi eigin lífeyrissjóði. Í
kjölfarið krafðist Fjármálaeftir-
litið þess að
Landsbankinn
myndi slíta líf-
eyrissjóðnum
þar sem hann
gengi í ber-
högg við lög.
Þessu hefur
Sigurjón and-
mælt og krefst
fyrir dómi við-
urkenningar á
samningi milli hans og bankans
um lífeyrissparnaðinn og afhend-
ingar á skuldabréfum sem keypt
voru fyrir þennan sama sparnað.
Athygli vekur að frá því í apríl
2008 til september 2011 hækkaði
lífeyrissparnaður Sigurjóns úr
108 milljónum króna í 566 millj-
ónir. Stór hluti hækkunarinnar á
verðmæti sjóðsins er til kominn
vegna gengishagnaðar en Sigur-
jón keypti skuldabréf í erlendri
mynt í ágúst 2008. Var þar um að
ræða skuldabréf frá rússneska
olíurisanum Gazprom og orku-
fyrirtækinu TAQA frá Abú Dabí.
Þó ber að geta þess að Sigurjón
lagði 200 milljónir til viðbótar inn
í sjóðinn á árinu 2008.
- þþ
Aðalmeðferð í máli fyrrverandi bankastjóra gegn Landsbankanum fór fram í gær:
Tekist á um lífeyrissparnað Sigurjóns
SIGURJÓN Þ.
ÁRNASON