Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 32
Ef tískuhönnun karla og kvenna er skoðuð kemur í ljós að þar er talsverður munur á. Við getum verið sammála um að karlar hafa ákveðna líkam- lega ágalla til að skilja konur, til dæmis hvernig flík á að falla niður af öxlum, umlykja brjóst- in eða mittið. Kannski er það þess vegna sem karlar eru oft að reyna við hið ómögulega eða ótrúlega því kvenmyndin sem þeir skapa er draumur hönnuð- arins um konuna eða hvað konan á að vera. Þegar litið er á kvenhönnuði í Frakklandi sem sumar hverjar eru lítið þekktar utan landstein- anna þá eiga þær margar það sameiginlegt að hanna það sem þær vilja sjálfar nota og hafa oft byrjað feril sinn þannig. Með tímanum hafa þær svo reynt að víkka út sjóndeildarhringinn fyrir fleiri og stækka viðskipta- vinahópinn. Þetta eru hönn- uðir eins og Isabelle Maront, Veronique Leroy, Anne-Valérie Hash og Vanessa Bruno í yngri hópnum en af þeim eldri má nefna Agnès B. eða Nathalie Rykiel sem nýlega tók við stjórn tískuhúss Soniu Rykiel af móður sinni. Þessir kvenhönnuðir njóta nú sífellt meiri vinsælda í Bandaríkjunum og má spyrja hvort þessi þægilegi fatnaður höfði nú sterkar til kvenna en áður. Hvort sem það er Marant, Bruno eða Leroy þá eiga þær allar sameiginlegt að hafa fund- ið upp kjóla sem passa öllum, peysur sem seljast eins og heitar lummur eða boli sem allar konur vilja eiga. Skór eru með eða án hæla en alltaf þægilegir. Tösk- ur eru til þess að nota en ekki bara til skrauts og svona mætti áfram telja. Hugsunin að baki er að þær vilja geta notað allt sem þær hanna og þess vegna höfðar hönnunin svo sterkt til nútíma- kvenna. Munurinn á tískusýningum kven- og karlhönnuða er oft sláandi þar sem hjá körlum er mikið gert úr sýningunni sjálfri, enda kvenveran sem sýnd er ekki til. Þess vegna er alltaf hægt að ganga lengra í öfg- unum. Kvenhönnuðirnir leggja mun meiri áherslu á fötin sjálf en sýninguna sem oft er þá einfaldari. Á tískuvikum eru mun færri kvenhönnuðir sem sýna en þeim fer fjölgandi. Hjá Chloé, Celine og McQueen eru konur til dæmis nú við stjórn. Væri ekki gaman að sjá hvað kvenhönnuður myndi gera hjá Dior ef hún kæmi í stað Gallianos? Væri hægt að breyta glamúr Dior-konunni í konuna í næstu blokk eða þá í húsinu á horninu sem er „working nine to five“ eins og Dolly Parton söng um árið í „Working girl“ þar sem konurnar voru á íþróttaskóm og með hælaskóna í töskunni. Sjálfsdáleiddir karlar og konur með jarðsamband ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá Nice Nýleg umfjöllun um Bláa lónið í tískutímaritinu Elle er jákvæð fyrir vetrarferðamennsku á Íslandi. Blaðamaður breska tískutímarits- ins Elle fór lofsamlegum orðum um Bláa lónið í nýlegri umfjöllun. Í greininni segir blaðamaðurinn Suzanne Scott, sem sótti Lónið heim, það hafa verið mikla upplif- un að baða sig utandyra í heitum jarðsjó þó úti hafi verið íslensk stórhríð og norðurheimsskauts- kuldi. Hún segir hitastig lónsins gera það að verkum að gestir geti notið eiginleika þess allan árs- ins hring og meðal annars sefað þurra og viðkvæma húð. Magnea Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Bláa lónsins, segir umfjöllunina jákvæða fyrir vetrarferðamennsku á Íslandi. „Scott fjallar á jákvæðan hátt um íslensk jarðvarmaböð en þau eru lykilþáttur í íslenskri heilsuferða- þjónustu.“ Bláa lónið í Elle Blaðamanni Elle þótti magnað að baða sig í heitum jarðsjó þó úti væri norður- heimsskautskuldi. Ármúla 18, 108 Reykjavík Sími 511-3388 Opið mán-fös 9-18, lau 11-15 Kynning – í dag frá kl. 16–18 Tösku og hanskabúðin Skólavörðustíg 7 101 Reykjavík Sími 551 5814 www.th.is AFSLÁTTUR AF ÖLLUM FERÐATÖSKUM Á 2 HJÓLUM 20% FERÐATÖSKUDAGAR í 3 daga frá fimmtudegi til laugardags Splunkunýjar vörur Grímsbær-Bústaðarvegi Efstaland 27, 108 Rvk., Sími 527-1999 Opið: mán-fös. 11-18 laugd. 11-15 Vertu vinur á facebook ;) Útsölulok í dag 2. febrúar Allt að 70% afsláttur. FATNAÐUR, SKÓR, SKART OG TÖSKUR Fyrir skvísur á öllum aldri. Komdu og gerðu frábær kaup. Sjáumst í Grímsbæ Opið frá kl. 11-21.00 NIP+FAB hefur algjörlega slegið í gegn og er sem dæmi notað af öllum helstu stjörnum Hollywood um þessar mund- ir, meðal annars leikkonunum Kristen Stew- art, Kelly Brook og Charlize Theron og fleir- um,“ segir Sesselja Sveinbjörnsdóttir, þjálfari hjá fyrirtækinu Forval, um bresku húðvöru- línuna NIP+FAB sem hefur farið sigurför um heiminn. Breska fyrirtækið Rodial stendur að baki NIP+FAB-línunni en það var stofnað af Mariu Hatzistefanis árið 1999. Hún kynnti merkið til sögunnar tveimur árum síðar eftir að hafa gert markaðsrannsóknir sem leiddu í ljós að brýn þörf var á vandaðri og ódýrri húðvörulínu. „Niðurstaðan varð náttúruleg grunnlína án parabena bæði fyrir andlit og líkama sem gefur frábæran árangur,“ upplýsir Sesselja. Allir geta notað NIP+FAB línuna segir hún og tekur dæmi. „Eitt kremið er „primer“ fyrir andlitið. Yfirleitt er „primer“ notaður yfir dag- krem og undir farða til að halda honum full- komnum allan daginn. Sérstaða NIP+FAB „primers“ er að það má nota hann einan og sér því hann gefur góðan raka og ljær húð- inni fallegan og ferskan blæ. Silkimjúka áferð sem meira að segja karlmenn geta öðlast eftir rakstur.“ Annað krem í línunni hefur ekki síður vakið athygli, svokallað „Bust Fix Gel“ sem Sesselja segir gætt þeim eiginleika að móta og stinna brjóstin, styrkja brjóstasvæð- ið upp að hálsi og viðhalda fallegri brjósta- skoru, eitthvað sem allar konur dreymir um. Þá segir Sesselja NIP+FAB klæðskerasniðið fyrir íslenskar aðstæður. „Línan er full af and oxunarefnum og styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar. Hún veitir hins vegar ekki vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar enda þurfum við á þeim að halda á sumrin.“ Stjörnurnar nota NIP + FAB kremin Breska húðvörulínan NIP+FAB frá Rodial er náttúruleg og án allra parabena. Varan þykir bæði vönduð og ódýr. NIP+FAB hentar öllum húðgerðum. Kynning - auglýsing Charlise Theron NIP+FAB líkamslínan er mjög virk og sýnilegur árangur kemur fljótt í ljós. ● Tummy Fix: sléttur og flottur magi ● Bust Fix: stinnari brjóst, flottari brjóstaskora ● Cellulite Fix: slétt, stinn og fallegri húð Útsölustaðir NIP+FAB Reykjavík: Hagkaup; Kringla, Holtagarðar, Skeifan, Spöngin. Snyrtivöruverslun Hygea Kringla. Verslanir Lyfju. Reykjavíkur Apótek. Kópavogur: Hagkaup Smára- lind, Snyrtivöruverslun Hygea Smáralind. Lyfja Smáratorg. Garðabær: Hagkaup Garðabæ, Lyfja Garðatorgi. Reykjanesbær: Hagkaup Njarðvík. Akureyri: Hagkaup Akureyri, Betri Líðan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.