Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 36
4 • POPPSKÚRINN Horfðu á Sykur flytja þrjá dúndurs- melli í Popp- skúrnum á Vísi.is. Elektró poppsveitin Sykur er ein heitasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Lagið Reykjavík hefur slegið í gegn og fetar það í fót- spor Viltu Dick? sem einnig naut mikilla vinsælda. Orð: Freyr Bjarnason Myndir: Anton Brink ELEKTRÓTÓNLIST MEÐ VÉLMENNINU Elektró poppsveitin Sykur hefur komið gríðarsterk inn í nýja árið með laginu Reykjavík sem er tekið af annarri plötu hennar, Mesópótamía, sem kom út fyrir síðustu jól við góðar undirtektir. Í laginu rappar ný söng- kona sveitarinnar, Agnes Björt Andradóttir, af miklum krafti og fádæma öryggi. Ekki vita þó allir að það var þessi frammistaða sem tryggði henni söngvara- stöðuna í hljómsveitinni og að Reykjavík var frumflutt hér á landi fyrir einu og hálfu ári. „Það var frumflutt á Menn- ingarnótt 2010 fyrir fullu Banka- stræti. Svo tók við mikið stúdíó- tímabil hjá okkur þar sem við vorum að klára nýjustu plötuna okkar. Þá datt lagið aðeins niður og núna er það fyrst að komast í gang,“ segir Halldór Eldjárn úr Sykri. Auk hans og Agnesar Bjartar eru í sveitinni frændi hans Kristján Eldjárn og Stefán Finn- björnsson. Aðspurður segist Halldór vera mjög ánægður með framlag Agnesar Bjartar til hljómsveitar- innar. Hún gekk til liðs við hana eftir að hafa verið beðin um að semja textann við Reykjavík. „Svo kom hún nokkrum mánuðum seinna með fullunninn texta og rappaði sig í gegnum þetta. Ég leyfði strákunum að heyra og þá sögðum við: „Við verðum að fá þessa inn í hljómsveitina“,“ segir hann. Lagið Viltu Dick? var langvin- sælasta lag fyrstu plötu Sykurs, Frábært eða frábært, sem kom út 2009. Þar rappaði Blazroca eins og hann ætti lífið að leysa. Kom aldrei til greina að fá hann til að syngja Reykjavík? „Erpur er allt öðruvísi rappari og þetta er kannski mýkra lag en Viltu Dick?. Þetta samstarf átti mjög góðan hápunkt í Viltu Dick?. Það er svo auðvelt að fara að endurtaka sig ef maður notar sömu formúluna aftur, þannig að við prófuðum að gera eitthvað allt annað.“ Vinsældir lagsins hafa valdið því að salan á Mesópótamíu hefur tekið mikinn kipp upp á síðkastið. „Við vorum líka dálítið eftir á að gefa hana út. Hún átti að koma út fyrir Airwaves en er búin að taka fínan kipp núna og við erum virkilega þakklát fyrir það. Við erum búin að spila dálítið upp á síðkastið og erum að fara að spila meira. Það hefur mikil áhrif líka.“ Talandi um spilamennsku þá steig Sykur tvisvar á svið erlendis í fyrra, eða í Eistlandi og London. Um miðjan febrúar er svo ferðinni heitið til Óslóar á bransahá- tíðina by:Larm. Þar spila einnig GusGus, Helgi Hrafn Jónsson, Mugison, Prinspóló, Sóley og Snorri Helgason. „Við erum ótrúlega spennt og höldum að Norðmenn eigi eftir að taka vel í þetta. Ég held að þessi hátíð hafi haft mjög mikið að segja fyrir margar hljómsveitir í gegnum tíðina og það láta allir mjög vel af henni. Það er góður kjarni af Íslendingum að fara út með okkur og það er rosalega gaman að vera með íslenskum hljómsveitum í útlöndum,“ segir Halldór. Flokka má Sykur í sama tón- listargeira og sveitir á borð við Blood group og FM Belfast. Eruð þið öll góðir vinir eða ríkir samkeppni á milli ykkar? „Við erum öll alveg ótrúlega góðir vinir og þetta er mjög skemmti- legur hópur. Maður talar ekkert um samkeppni í tónlist. Þessar hljómsveitir eru allar mjög mis- munandi. Þær hafa sína hópa sem skarast en svo er þetta líka bara skemmtileg tónlist. Bloodgroup var til dæmis mín fyrirmynd þegar ég var að byrja að gera rapptónlist. Þá voru þau líka frekar nýlega byrjuð. Svo kynntumst við þeim og þau tóku okkur eiginlega að sér. Það hefur alltaf verið mjög gott samstarf þar á milli og líka við FM Belfast,“ segir hann. Árni Vilhjálmsson úr FM Belfast syngur einmitt í laginu Shed Those Tears sem er á Mesópótamíu, auk þess sem Lilja Kristín Jónsdóttir, fyrrverandi söngkona Bloodgroup, söng kvenkynspartinn í Viltu Dick?. Er samstarf við einhverja fleiri í bígerð á næstunni? „Við vonumst til að geta fengið einhvern tím- ann að búa til elektrótónlist með sprengjuleitarvélmenni Ríkislög- reglustjóra. Burtséð frá tilgangi sprengjuvélmennisins þá hljómar það alveg rosalega skemmtilega – krúttsprengjuvélmenni eitt- hvað.“ Þannig að þið leggið hér með fram beiðni um það? „Já, en samt án þess að það hljómi eins og einhver sprengjuhótun.“ Fram undan hjá Sykri er spila- mennska á böllum á Akranesi, Akureyri og hjá Kvennaskólanum. Spurður út í sviðsframkomuna segir Halldór hana eitt af aðals- merkjum Sykurs. „Hverjir einustu tónleikar sem við spilum eru flug- eldasýning út í eitt. Við leggjum gríðarlega mikinn metnað í að enginn fari út þurr á enninu og öðrum líkamspörtum. Þetta er bara partí fjör og snilld í bolla.“ Hljómsveitin er á mála hjá Record Records hér heima. Hún er einnig með erlendan umboðs- mann sem hefur unnið í því að koma henni að úti í heimi. „Hann er að vinna með okkur í að plana og plotta.“ Þannig að það er metnaður í ykkur að ná langt? „Já, já og líka fyrst og fremst að hafa gaman og skemmta öðrum.“ „VIÐ VONUMST TIL AÐ GETA FENGIÐ EINHVERN TÍMANN AÐ BÚA TIL ELEKTRÓTÓNLIST MEÐ SPRENGJULEIT- ARVÉLMENNI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA.“ Sykur er ein heitasta hljóm- sveit landsins um þessar mundir. Umm ... beikonbragð! Kartöflugratín með beikoni er fljótlegt og auðvelt í matreiðslu. Þú rífur einfaldlega plastfilmuna af bakkanum, stráir osti yfir og það tekur aðeins 20 mínútur að hita kartöflugratínið í ofni. Auðveldara getur það ekki verið! Kartöflugratín - alltaf ljúffengt – íslensk gæði eftir þínum smekk! N ýt t Síðumúla 20 Reykjavík S.: 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Sunnuhlíð 12 Akureyri S.: 462 1415 www.tonabudin.is ÚT SALAALA LALLA LA... ALLT AÐ 70% AFSLÁT TUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.