Fréttablaðið - 02.02.2012, Side 36
4 •
POPPSKÚRINN
Horfðu á
Sykur flytja
þrjá dúndurs-
melli í Popp-
skúrnum á
Vísi.is.
Elektró poppsveitin
Sykur er ein heitasta
hljómsveit landsins
um þessar mundir.
Lagið Reykjavík
hefur slegið í gegn
og fetar það í fót-
spor Viltu Dick? sem
einnig naut mikilla
vinsælda.
Orð: Freyr Bjarnason
Myndir: Anton Brink
ELEKTRÓTÓNLIST
MEÐ VÉLMENNINU
Elektró poppsveitin Sykur hefur
komið gríðarsterk inn í nýja árið
með laginu Reykjavík sem er
tekið af annarri plötu hennar,
Mesópótamía, sem kom út fyrir
síðustu jól við góðar undirtektir.
Í laginu rappar ný söng-
kona sveitarinnar, Agnes Björt
Andradóttir, af miklum krafti og
fádæma öryggi. Ekki vita þó allir
að það var þessi frammistaða
sem tryggði henni söngvara-
stöðuna í hljómsveitinni og að
Reykjavík var frumflutt hér á
landi fyrir einu og hálfu ári.
„Það var frumflutt á Menn-
ingarnótt 2010 fyrir fullu Banka-
stræti. Svo tók við mikið stúdíó-
tímabil hjá okkur þar sem við
vorum að klára nýjustu plötuna
okkar. Þá datt lagið aðeins niður
og núna er það fyrst að komast
í gang,“ segir Halldór Eldjárn
úr Sykri. Auk hans og Agnesar
Bjartar eru í sveitinni frændi hans
Kristján Eldjárn og Stefán Finn-
björnsson.
Aðspurður segist Halldór vera
mjög ánægður með framlag
Agnesar Bjartar til hljómsveitar-
innar. Hún gekk til liðs við hana
eftir að hafa verið beðin um að
semja textann við Reykjavík. „Svo
kom hún nokkrum mánuðum
seinna með fullunninn texta og
rappaði sig í gegnum þetta. Ég
leyfði strákunum að heyra og þá
sögðum við: „Við verðum að fá
þessa inn í hljómsveitina“,“ segir
hann.
Lagið Viltu Dick? var langvin-
sælasta lag fyrstu plötu Sykurs,
Frábært eða frábært, sem kom
út 2009. Þar rappaði Blazroca
eins og hann ætti lífið að leysa.
Kom aldrei til greina að fá hann
til að syngja Reykjavík? „Erpur er
allt öðruvísi rappari og þetta er
kannski mýkra lag en Viltu Dick?.
Þetta samstarf átti mjög góðan
hápunkt í Viltu Dick?. Það er svo
auðvelt að fara að endurtaka sig
ef maður notar sömu formúluna
aftur, þannig að við prófuðum að
gera eitthvað allt annað.“
Vinsældir lagsins hafa valdið
því að salan á Mesópótamíu
hefur tekið mikinn kipp upp á
síðkastið. „Við vorum líka dálítið
eftir á að gefa hana út. Hún átti
að koma út fyrir Airwaves en
er búin að taka fínan kipp núna
og við erum virkilega þakklát
fyrir það. Við erum búin að spila
dálítið upp á síðkastið og erum
að fara að spila meira. Það hefur
mikil áhrif líka.“
Talandi um spilamennsku þá
steig Sykur tvisvar á svið erlendis
í fyrra, eða í Eistlandi og London.
Um miðjan febrúar er svo ferðinni
heitið til Óslóar á bransahá-
tíðina by:Larm. Þar spila einnig
GusGus, Helgi Hrafn Jónsson,
Mugison, Prinspóló, Sóley og
Snorri Helgason. „Við erum
ótrúlega spennt og höldum að
Norðmenn eigi eftir að taka vel í
þetta. Ég held að þessi hátíð hafi
haft mjög mikið að segja fyrir
margar hljómsveitir í gegnum
tíðina og það láta allir mjög vel
af henni. Það er góður kjarni af
Íslendingum að fara út með okkur
og það er rosalega gaman að
vera með íslenskum hljómsveitum
í útlöndum,“ segir Halldór.
Flokka má Sykur í sama tón-
listargeira og sveitir á borð
við Blood group og FM Belfast.
Eruð þið öll góðir vinir eða ríkir
samkeppni á milli ykkar? „Við
erum öll alveg ótrúlega góðir
vinir og þetta er mjög skemmti-
legur hópur. Maður talar ekkert
um samkeppni í tónlist. Þessar
hljómsveitir eru allar mjög mis-
munandi. Þær hafa sína hópa
sem skarast en svo er þetta
líka bara skemmtileg tónlist.
Bloodgroup var til dæmis mín
fyrirmynd þegar ég var að byrja
að gera rapptónlist. Þá voru þau
líka frekar nýlega byrjuð. Svo
kynntumst við þeim og þau tóku
okkur eiginlega að sér. Það hefur
alltaf verið mjög gott samstarf
þar á milli og líka við FM Belfast,“
segir hann. Árni Vilhjálmsson
úr FM Belfast syngur einmitt í
laginu Shed Those Tears sem er á
Mesópótamíu, auk þess sem Lilja
Kristín Jónsdóttir, fyrrverandi
söngkona Bloodgroup, söng
kvenkynspartinn í Viltu Dick?.
Er samstarf við einhverja fleiri í
bígerð á næstunni? „Við vonumst
til að geta fengið einhvern tím-
ann að búa til elektrótónlist með
sprengjuleitarvélmenni Ríkislög-
reglustjóra. Burtséð frá tilgangi
sprengjuvélmennisins þá hljómar
það alveg rosalega skemmtilega
– krúttsprengjuvélmenni eitt-
hvað.“ Þannig að þið leggið hér
með fram beiðni um það? „Já, en
samt án þess að það hljómi eins
og einhver sprengjuhótun.“
Fram undan hjá Sykri er spila-
mennska á böllum á Akranesi,
Akureyri og hjá Kvennaskólanum.
Spurður út í sviðsframkomuna
segir Halldór hana eitt af aðals-
merkjum Sykurs. „Hverjir einustu
tónleikar sem við spilum eru flug-
eldasýning út í eitt. Við leggjum
gríðarlega mikinn metnað í að
enginn fari út þurr á enninu og
öðrum líkamspörtum. Þetta er
bara partí fjör og snilld í bolla.“
Hljómsveitin er á mála hjá
Record Records hér heima. Hún
er einnig með erlendan umboðs-
mann sem hefur unnið í því að
koma henni að úti í heimi. „Hann
er að vinna með okkur í að plana
og plotta.“
Þannig að það er metnaður í
ykkur að ná langt? „Já, já og líka
fyrst og fremst að hafa gaman og
skemmta öðrum.“
„VIÐ VONUMST TIL AÐ GETA FENGIÐ
EINHVERN TÍMANN AÐ BÚA TIL
ELEKTRÓTÓNLIST MEÐ SPRENGJULEIT-
ARVÉLMENNI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA.“
Sykur er ein heitasta hljóm-
sveit landsins um þessar
mundir.
Umm ... beikonbragð!
Kartöflugratín með beikoni er fljótlegt og auðvelt
í matreiðslu. Þú rífur einfaldlega plastfilmuna af bakkanum,
stráir osti yfir og það tekur aðeins 20 mínútur að hita
kartöflugratínið í ofni. Auðveldara getur það ekki verið!
Kartöflugratín - alltaf ljúffengt
– íslensk gæði eftir þínum smekk!
N
ýt
t
Síðumúla 20 Reykjavík S.: 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Sunnuhlíð 12 Akureyri S.: 462 1415 www.tonabudin.is
ÚT
SALAALA
LALLA
LA...
ALLT AÐ
70%
AFSLÁT
TUR