Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 34
2 • TÓNLEIKAR „ÉG HEF ÓTAK- MARKAÐAN AÐGANG AÐ SJÓSKÍÐUM Á FÁSKRÚÐSFIRÐI OG Í REYKJAVÍK“ SÍÐA 6 PLATAN POPP er tónlistarblað og kemur út annan hvern fimmtudag. Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Umsjón: Atli Fannar Bjarkason Forsíðumynd: Anton Auglýsingar: Sverrir Birgir Sverris- son sverrirbs365.is Popp, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 500 VICKY CAST A LIGHT ★★★ POPPAÐ EN KRAFTMIKIÐ Í kvöld: Hljómsveitin Lights on the Highway er að fara í hlé um ókomna tíð. Af því tilefni heldur hljómsveitin kveðjutónleika á Gauknum þar sem hléið er afsakað og tímabilið frá 2003 til 2012 gert upp. Húsið verður opnað klukkan 21 og tónleikarnir hefjast klukkan 22. Miðaverð er 1.000 krónur. Á morgun: Úlfur úlfur og Emmsjé Gauti koma fram á Cafe Amour á Akureyri. Húsið verður opnað klukkan tíu og það er frítt inn. Ekki á morgun heldur hinn: Trums spilar á English Pub í Hafnarfirði. Húsið opnar klukkan 21.30. Hljóm- sveitina skipa Richard Scobie, Guðmundur Jónsson, Davíð Þór Hlínarson, Pétur Kolbeinsson og Guðmundur Guðlaugsson. Cast a Light er önnur plata hafnfirsku rokkhljómsveit- arinnar Vicky, en hún er skipuð þremur stelpum og einum strák. Eygló syngur, Ástrós spilar á bassa, Karlotta á gítar og Orri á trommur. Vicky er mjög öflugt og skemmtilegt tónleika- band og hefur meðal annars vakið mikla athygli á Iceland Airwaves undanfarin ár. Tónlistin sem þau spila er kraftmikið gítarrokk með poppuðu ívafi. Lagasmíðarnar á Cast a Light eru fínar, ryþma- parið er þétt og gítarleikarinn er að gera mjög góða hluti. Eygló er líka hörku rokksöngkona og verður bara betri. Það eru tíu lög á plötunni og þau standa öll fyrir sínu, þó að ég haldi einna mest upp á Feel Good, Lullaby, Cast a Light og lokalagið Gold, sem sker sig nokkuð úr: Rólegt og óraf- magnað popplag með víóluleik. Cast a Light kom út í haust, en flaug frekar lágt. Vicky hefur vakið athygli erlendis og m.a. spilað bæði í Bandaríkjunum og Kína, auk þess sem sjálfur David Fricke hjá Rolling Stone mælti sérstaklega með Cast a Light ný- lega. Tónlistin sem Vicky spilar er ekki það ferskasta í dag, en Cast a Light er samt sem áður mjög vel unnin og heilsteypt rokkplata. Sem sagt: Heilsteypt og vel unnin rokkplata - TJ Hamborgari mánaðarins Opið alla dag kl. 11-22 Kíktu á matseðilinn á www.burgerinn.is 1.590,- Aðeins kr. Gráðostahambó! M / káli, gráðosti, hvítlaukssósu, rauðlauk, og paprikku. Franskar og gos með Fj ar ða rp ós tu rin n 20 12 HLJÓMSVEITIN VIGRI HEFUR NÝLOKIÐ SAMSTARFI VIÐ BRESKA DANSTÓNLISTAR- MANNINN CHICANE. HANN HEFUR UNNIÐ MEÐ TOM JONES, CHER OG BRYAN ADAMS Á FERLI SÍNUM. Breski danstónlistarmaðurinn Chicane eyddi fimm dögum á Íslandi fyrir skömmu við upp- tökur með hljómsveitinni Vigra. Chicane, sem er stórlax í danstónlistarsenunni, hefur gefið út fimm hljóðversplötur og er einna þekktastur fyrir Ibiza-smellinn Offshore. Hann hefur unnið með Tom Jones, Cher og Bryan Adams en valdi í þetta sinn að starfa með Vigra en hljómsveitin blandar saman poppi, þjóðlagatónlist og klassík á draum- kenndan hátt. „Hann var að tala um að að hann hefði heyrt í okkur í útvarpi í Frakklandi og fann síðan plötuna okkar á netinu,“ segir Bjarki Pjeturs- son í Vigra og á þar við Pink Boats sem kom út í fyrra. Chicane samdi og tók upp tvö lög með Vigra hér á landi og áætlað er að þau verði á næstu plötu hans sem kemur út í mars. „Dans- tónlistin er kannski ekki alveg okkar kaffibolli en það var mjög gaman að vinna svona öðruvísi verkefni,“ segir Bjarki, sem hafði ekki hugmynd um hver Chicane var þegar hann fékk póst frá honum. „Ég fór bara á Youtube og tékkaði strax á honum og hann er eitthvað svaka nafn.“ Samstarfið gekk eins og í sögu og lokuðu þeir sig af í hljóðveri þar sem lögin tvö voru unnin. „Við vorum að vinna allan tímann og hann náði ekki að sjá neitt. Hann var bara inni í stúdíói og það var lítið sofið,“ segir Bjarki. „Það kom dálítið á óvart hversu svakalegur fagmaður hann var. Hann vissi hvað hann var að gera og er algjör toppmaður. Við gerðum nákvæmlega okkar hljóm. Við vorum ekkert að dansvæna okkur neitt upp. Svo blandar hann þessu saman og býr til dansútgáfu af laginu.“ Inntur eftir því hvort þetta samstarf eigi ekki eftir að veita þeim frægð og peninga í vasann segist Bjarki vona það. Á meðan á dvöl Chicane á Íslandi stóð lýsti hann yfir áhuga á að halda tónleika hér á landi og sýndu Vigra-piltarnir honum helstu tónleikastaðina í Reykjavík. Vigri er ekki með útgáfusamning erlendis en þeir félagar vonast til að dreifingarsamningur verði undirritaður í náinni framtíð. Tónleikaferð um Evrópu er einnig í bígerð á þessu ári . - fb CHICANE HEILLAÐIST AF VIGRA Í FRAKKLANDI Hljómsveitin Vigri í góðu stuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.