Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 50
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR34
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. stell, 6. drykkur, 8. langur, 9. bók-
stafur, 11. nudd, 12. skopleikrit, 14.
græða, 16. samtök, 17. skörp brún,
18. fálm, 20. til, 21. stefna.
LÓÐRÉTT
1. vísupartur, 3. eftir hádegi, 4.
unglinga, 5. hyggja, 7. ótvíræður, 10.
frjó, 13. atvikast, 15. sóða, 16. ái, 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sett, 6. te, 8. hár, 9. eff,
11. nú, 12. farsi, 14. lækna, 16. aa, 17.
egg, 18. fum, 20. að, 21. ismi.
LÓÐRÉTT: 1. stef, 3. eh, 4. táninga,
5. trú, 7. efalaus, 10. fræ, 13. ske, 15.
agða, 16. afi, 19. mm.
Hátt
og
snjallt!
Nýr leik-
maður?
Já! hann
stóðst læknis-
skoðun í dag!
með glans!
Ég er svo þreytt á því að
vera einkabílstjóri sonar
okkar!
Þegar ég er nýkomin heim
eftir að hafa skutlað honum
hringir hann og biður mig
um að sækja sig!
Ég get ekki
beðið eftir
því að hann
fái bílpróf!
Svona
stutt???
Ekki ég
heldur!
Og það eru
tíu mánuðir í
það!
Jæja, þar fór þetta
gamla orðatiltæki.
Sjáið þið?
Ha! Full-
komin jól!
Engir hjólastólar,
eða ryksugur, eða
jarðýtur...
Jólasvein-
arnir
komu
aftur og
sóttu allt
dótið.
Hjúkk...
Þeir
tóku líka
Range
Rover-
inn.
Hvað var í jólaglögg-
inu sem þú gafst
mér í gær?
Á!
Kirkjuhúsalandslag Íslands er að breyt-ast. Verða moskur, hindúamusteri,
sýnagógur og aðrar byggingar trúfélaga við
hliðina á „kirkjunum okkar“ í framtíðinni?
Nokkrir Íslendingar mótmæla kröftuglega
byggingu mosku. Ýmis rök eru færð og
hvíslað er um að slíkar byggingar geti orðið
gróðrarstíur samfélagslegrar mengunar.
Tortryggnisraddir heyrast í samfélaginu.
Gagnrýni er góð en rógur ólíðandi.
HVAÐ SEGIR kirkjan um trúarbyggingar
aðrar en kirkjur? Ætti kirkjan að stugga við
fólki, sem er ekki kristið og jafnvel koma
því úr landi? Nei, hlutverk kirkjunnar er
að vera farvegur fyrir umhyggju Guðs. Sú
ást varðar alla, hverrar trúar eða banntrú-
ar sem þau eru. Jesús Kristur var afar
umhyggjusamur gagnvart fólki. Og
kirkjan og kristnir menn reyna að
fylgja fordæmi meistara síns. Í hans
anda heldur kristið fólk fram mann-
réttindum og ver þau. Frelsi er dýr-
mæti, sem við eigum að verja og
rækta. Að iðka trú er þáttur þess
frelsis.
ÉG ER prestur í þjóðkirkjunni og
elska starf hennar og líf. Ég veit
hversu gjöfult, hressandi og bless-
andi trúarlíf og trúariðkun í kirkju
getur verið. Því skil ég vel, að fólk af
annarri trú en minni, hafi svipaðar
samfélagslegar þarfir við trúariðkun. Það á
rétt á að njóta sömu réttinda og sömu mögu-
leika og mín trúsystkin. Fólk á ekki bara að
njóta frelsis til að trúa á sinn hátt, heldur
líka að mega byggja guðshús, sem hæfa
átrúnaði þeirra. Og þessum rétti fylgja líka
skyldur að fara ekki út fyrir réttinn og þann
siðaramma sem hér ríkir.
KRISTNIN Á sameiginlegt með helstu
trúarbrögðum heims að verja manngildið.
Íslendingar eiga að láta kristin og mikil-
væg vestræn gildi stýra för. Yfirborðslegt
frjálslyndi er ekki affarasælt í samskiptum
fólks með ólíkan bakgrunn. Við eigum að
gera kröfur til sjálfra okkar og gera ámóta
kröfur til innflytjenda. Við eigum að hafna
algerlega kúgun kvenna, sem meðal annars
hefur birst í sinni verstu mynd í heiðurs-
morðum. Við eigum að hafna tuddastælum
– hvers eðlis sem þeir eru. Og verum sam-
kvæm, réttsýn og umhyggjusöm.
ÓTTI OG tortryggni eru afar slæmt bygg-
ingarefni samfélags. Traust, virðing og
réttlæti eru mun hentugri og friðvænlegri.
Viðurkennum guðshúsaþarfir múslíma og
annarrar trúar fólks. En höfnum vitleysum,
okkar eigin og annarra. Iðkum kærleika
með skynsemi. Þjóðkirkjan á að gæta réttar
innflytjenda, líka í trúarefnum. Leggjum
okkar lóð á vogarskálar og gerum það í
góðri trú, með umhyggju og góðu viti.
Moskumótmælin