Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.02.2012, Blaðsíða 8
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR8 1. Hversu mikið hefur verð á bensíni hækkað frá áramótum? 2. Hvenær hófst litla ísöldin? 3. Hvaða erlendi leiklistarskóli heldur inntökupróf á Íslandi? SVÖR: 1. Um 18 krónur. 2. Á árabilinu 1275 til 1300. 3. Film-Teaterskolen Holberg. SVÍÞJÓÐ Fimmtán voru hand- teknir í fyrradag á sautján stöð- um í Svíþjóð vegna gruns um vörslu barnakláms. Öllum nema einum var sleppt að loknum yfir- heyrslum en þeir liggja enn undir grun um að hafa sent og eða tekið við barnaklámi, að því er segir í frétt sænska ríkisútvarpsins. Þá fann lögreglan tölvur með 20 þúsund myndum með barna- níði og 127 hreyfimyndum. Rann- sóknin leiddi í ljós að einn maður hafði sent myndirnar til fjölda manns og það voru þeir sem handteknir voru í fyrradag. - ibs 15 handteknir í Svíþjóð: Með barna- klám í tölvum DANMÖRK Danska lögreglan hefur nú greint frá því að þau nær 14 kíló af brúnu heróíni sem fund- ust nýlega í Háskólanum í Kaup- mannahöfn hafi alls ekki verið heróín heldur lyf í duftformi við höfuðverk. Lögreglan segir hins vegar að hægt sé að nota duftið til þess að blanda saman við hreint heróín og það hafi stundum verið gert. Húsvörður Kaupmannahafn- arháskóla var handtekinn í Þýskalandi í byrjun janúar vegna gruns um fíkniefnabrot. - ibs Heróínfundur í háskóla: Meint heróín var verkjalyf AKUREYRI Barnabókasetur, rann- sóknarsetur um barnabókmennt- ir og lestur barna, verður opnað við Háskólann á Akureyri á laug- ardag. Markmiðið með setrinu er að stunda rannsóknir og fræðslu um barnabókmenntir og lestur á Íslandi og að vinna að framgangi lestrarmenningar meðal barna og unglinga. Þá mun setrið einnig standa fyrir málþingum og stuðla að útgáfu fræðilegs efnis á svið- inu. Amtsbókasafnið og Minjasafn- ið á Akureyri standa að Barna- bókasetrinu auk háskólans. - sv Barnabókasetur við HA: Barnabækur rannsakaðar HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Katrín Jakobs- dóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, opnar fyrsta verkefni setursins á laugardag, sýninguna „Yndislestur æsku minnar“. Garðlönd hækka um 60% Framkvæmdaráð Kópavogs hefur samþykkt að hækka leigu í garð- löndum bæjarins um 60 prósent milli ára. Þannig hækkar 25 fermetra mat- jurtarskiki úr 2.500 krónum í 4.000 krónur næsta sumar. KÓPAVOGUR FJÁRMÁL Nýtt útibú umboðs- manns skuldara á Akureyri verð- ur opnað á mánudag. Þar verða starfandi tveir ráðgjafar. Í tilkynningu frá umboðsmanni skuldara segir að það sé von hans að embættið muni eiga gott sam- starf við fyrirtæki á Akureyri við að aðstoða einstaklinga í greiðslu- erfiðleikum. Þetta er annað útibúið sem umboðsmaður skuldara opnar utan Reykjavíkur. Útibú umboðs- manns í Reykjanesbæ opnaði í desember 2010. - bj Umboðsmaður á Akureyri: Útibú opnar á mánudaginn SVÍÞJÓÐ Rúmlega þrítug kona sem er í lífstíðarfangelsi í Svíþjóð hefur kvartað yfir því við yfir- völd að hún fái ekki sumarleyfi. Konan var dæmd árið 2005 fyrir að myrða fyrrverandi kær- asta sinn. Frá því í febrúar 2010 hefur hún verið í vinnu í fangels- inu og finnst nú tímabært að hún fái frí. Hún segir vinnulöggjöf eiga að gilda og hún eigi allavega að fá borgaða frídaga sem hún hefði annars fengið í venjulegri vinnu. Fangelsisyfirvöld eru ósammála þeirri túlkun. - þeb Hefur unnið í fangelsinu: Lífstíðarfangi vill fá sumarfrí MENNTUN Spjaldtölvur þykja bjóða upp á fjölmarga möguleika í skóla- starfi. Þróunin í þá átt er þegar hafin víða erlendis og nú þegar hafa skólar á Íslandi tekið fyrstu skrefin. Menntastefna um spjaldtölvur í íslensku skólastarfi fer fram í dag á Grand hóteli og stendur frá klukkan 9 til 17. Epli.is efnir til þessarar ráð- stefnu, en meðal þeirra sem munu koma þar fram eru Rasmus Borch, frá Odder í Danmörku, en þar hefur verið fjárfest í 2.500 spjaldtölvum handa öllum nemendum og kenn- urum sveitarfélagsins. Hann mun kynna kennslufræðilegt sjónar- horn á spjaldtölvunotkun og ávinn- inginn sem bæjaryfirvöld telja sig hljóta af slíku. Þá mun Daryl Hawes frá Bandaríkjunum kynna lausnir og stuðning Apple við skóla og menntastofnanir sem notast við spjaldtölvur. Loks mun Rakel Sölvadóttir, fulltrúi Hjallastefnunnar, kynna áform fyrirtækisins um notkun spjaldtölva í skólum þeirra. Þar að auki verður fjöldi vinnu- stofa á ráðstefnunni þar sem meðal annars verða kynnt hin ýmsu til- raunaverkefni um notkun tölva og spjaldtölva í skólum landsins. - þj Menntastefna um notkun spjaldtölva í íslensku skólastarfi: Rætt um möguleika spjaldtölva IPAD Spjaldtölvur eins og iPad eru sífellt að ryðja sér frekar til rúms í skólastarfi um allan heim. Menntastefna verður haldin í dag um möguleikana í þeim efnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÚRMA, AP „Það er mjög auðvelt að undirrita friðarsamning. Þú getur gert það á fáeinum mínútum. En framkvæmdin er annað mál,“ segir Simon Htoo, prestur karena- þjóðflokksins að lokinni messu í fimmtíu þúsund manna flóttabúð- um í Taílandi, rétt handan landa- mæra Búrma. Framkvæmdin, segir hann, ræðst ekki af „brosinu á andlitum þeirra heldur einlægni þeirra, því sem í raun býr í hjörtum þeirra“. Í messunni stuttu áður hafði hann talað af ákefð um vonina, sem hefur vaknað eftir að her- foringjastjórnin í Búrma breytti skyndilega um tón, tók að boða frið og sættir eftir áratuga kúgun. „Stríð á sér sinn tíma, og friður á sér sinn tíma. Sextíu og þrjú ár eru nógu langur tími fyrir dráp,“ sagði hann í predikun sinni. „Ég vonast til að sjá ykkur öll fljótlega í landinu okkar fagra.“ Karenar í útlegð eru farnir að hugsa sér til heimferðar. Þeir hafa í 63 ár barist hatrammri baráttu fyrir aukinni sjálfstjórn við stjórn- arherinn í Búrma. Fyrir nokkrum vikum var undirritað friðarsam- komulag, og þótt tortryggni gæti enn þá sjá menn fyrir sér breytta tíma. Fleiri þjóðflokkar, sem átt hafa í áratugalangri baráttu gegn kúgun- aröflum stjórnvalda í Búrma, hafa undirritað friðarsamninga síðustu vikurnar. Átökin undanfarna ára- tugi hafa oft verið hörð og talið er að um þrjár milljónir flóttamanna frá Búrma séu nú í öðrum lönd- um, flestir í Taílandi og öðrum nágrannaríkjum. Valdaskipti urðu í herforingja- stjórninni eftir kosningar árið 2010. Síðan þá hafa stjórnvöld boðað og innleitt ýmsar umbæt- ur í mannréttindamálum og í lýð- ræðisátt. Hundruð pólitískra fanga hafa verið látin laus, dregið hefur úr ritskoðun og starfsemi verka- lýðsfélaga er nú heimiluð. Þessar umbætur hafa komið mörgum á óvart, en bæði stjórnar- andstæðingar í Búrma og alþjóða- samfélagið hefur tekið þeim fagnandi. Seint á síðasta ári tóku Bandaríkin stjórnvöld í Búrma í sátt og Bandalag Suðaustur-Asíu- ríkja hefur fallist á að Búrma fái forsæti í samtökunum árið 2014. Enn er þó mikil óvissa um fram- haldið. Enn sitja hundruð póli- tískra fanga í fangelsi í Búrma og herforingjastjórnin heldur enn um valdataumana. gudsteinn@frettabladid.is Flóttafólk undirbýr heimferð til Búrma Óvæntar og hraðar lýðræðisumbætur virðast hafa orðið í Búrma, landi herfor- ingjastjórnar sem áratugum saman hefur kúgað landsmenn. Nú eru þúsundir flóttamanna í nágrannaríkjunum farnir að huga að því að snúa aftur heim. KARENAR Í TAÍLANDI Ungir karenar í guðsþjónustu í flóttamannabúðum, þar sem presturinn ræddi um heimferðir. NORDICPHOTOS/AFP Stríð á sér sinn tíma, og friður á sér sinn tíma. Sextíu og þrjú ár eru nógu langur tími fyrir dráp. SIMON HTOO PRESTUR KARENAÞJÓÐFLOKKSINS VIÐSKIPTI Frestur til að skila bindandi tilboðum í hlut þrota- búa Landsbankans, sem á 67%, og Glitnis, sem á 10%, í Iceland Foods rann út á þriðjudagskvöld. Söluferlið hefur staðið yfir um nokkurra mánaða skeið. Alþjóð- legu stórbankarnir UBS og Bank of America Merril Lynch hafa haft umsjón með því og veitt þrotabúunum ráðgjöf. Í breskum fjölmiðlum hefur því verið haldið fram að þau vilji fá hátt í 1,2 milljarða punda, um 224 milljarða króna, fyrir hlut sinn. Páll Benediktsson, upplýs- ingafulltrúi þrotabús Landsbank- ans, segist ekkert geta gefið upp um hversu mörg eða há tilboðin voru né hverjir það voru sem skiluðu þeim inn. Reuters- fréttastofan greindi frá því í gær að búist hafi verið við því að fjárfest- ingasjóðirnir Bain Capital og BC Partners myndu skila inn tilboðum. Þá hafi verið áhugi til staðar hjá Wm Morrison-matvörukeðjunni að kaupa hlutinn auk þess sem Mal- colm Walker, forstjóri og minni- hlutaeigandi í Iceland, hefur unnið að því að koma saman til- boðshóp. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins munu stjórnend- ur þrotabúanna, ásamt ráðgjöf- um sínum, nú taka sér nokkra daga til að fara yfir hvort tilboð- in sem skilað var inn séu þess eðlis að vert sé að fara í frekari viðræður. Komist þeir að því að svo sé munu frekari viðræður fara fram. Enn er ekki útilokað að hætt verði við söluna. Iceland Foods er langstærsta seljanlega eign þrotabús Lands- bankans. Keðjan er með um 2,1% markaðshlutdeild í Bretlandi og selur vörur árlega fyrir á fimmta hundrað milljarða króna. - þsj Frestur til að skila inn bindandi tilboðum í Iceland Foods liðinn: Ákvörðun tekin á næstu dögum MALCOLM WALKER Leit hætt í Costa Concordia Aðstæður eru taldar orðnar of hættu- legar í þeim hluta farþegaskipsins Costa Concordia sem er á kafi í sjó. Því hefur verið blásin af leit kafara í skipinu. Fimmtán er þó enn saknað. Skipið steytti á skeri við vesturströnd Ítalíu um miðjan janúar. ÍTALÍA VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.