Fréttablaðið - 02.02.2012, Page 26

Fréttablaðið - 02.02.2012, Page 26
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR26 timamot@frettabladid.is Móðir okkar, Svava Sigurðardóttir, áður til heimilis að Skúlagötu 20, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Rúdolf Ingólfsson Unnur Ingólfsdóttir Jean Jensen Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ása Guðmundsdóttir hússtjórnarkennari frá Harðbak, lést sunnudaginn 29. janúar sl. Útförin fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 16. febrúar kl. 15.00. Guðmundur Þorgeirsson Bryndís Sigurjónsdóttir Gestur Þorgeirsson Sólveig Jónsdóttir Eiríkur Ingvar Þorgeirsson Ragnheiður Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Kristinn Helgi Gíslason fyrrverandi bæjarverkstjóri, Hornbrekkuvegi 5, Ólafsfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar 29. janúar sl. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 4. febrúar klukkan 14.00. Sigríður Vilhjálms Gísli Kristinsson Ragnhildur Vestmann Sigurður Kristinsson Þorgerður Jósepsdóttir Íris Hrönn Kristinsdóttir Ingvar Karl Þorsteinsson afabörn, langafabörn og systkini hins látna. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Jóns Helgasonar Mýrarvegi 111, Akureyri. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar, starfsfólks Lerki- og Asparhlíðar og alls þess góða fólks, sem annaðist hann í erfiðum veikindum. Snjólaug F. Þorsteinsdóttir Ólína E. Jónsdóttir Halldór M. Rafnsson Þorsteinn St. Jónsson Hildur Edda Ingvarsdóttir Helgi Rúnar Jónsson Olga Hanna Möller Margrét Elfa Jónsdóttir Arnór Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, Guðlaug Sigurðardóttir Skipalóni 27, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Sigurður S. Szarvas Elisabeth Haugen Sindri Ó. Szarvas Andri A. Szarvas Sveinn Sigurðsson Kolbrún Oddbersdóttir Pétur Sigurðsson Agnes Sigurðardóttir Björn Birgir Björgvinsson Gunnar Sigurðsson Hafdís Jensdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, Bjarkeyjar Sigurðardóttur sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 16. janúar sl. Páll Sveinsson Unnur Pálsdóttir Gylfi Pálsson Delia Neri Guðlaug M. Pálsdóttir Gunnar Stefánsson og barnabörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, stuðning og hlý- hug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Svavars F. Kjærnested Kleppsvegi 134, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar E-13 Landspítalanum Hringbraut, starfsfólki Líknardeildarinnar í Kópavogi, sem og Heimahjúkrun. Svanlaug Jónsdóttir Borgþór S. Kjærnested Ragnheiður Kjærnested Ásmundur Jónsson Erna S. Kjærnested Gunnar Benediktsson Kolbrún Svavarsdóttir Heiðar Bjarndal Jónsson Erling S. Kjærnested Anna Sigurrós Össurardóttir Þórhildur S. Kjærnested Kristinn Friðjónsson Sigrún Alda S. Kjærnested Kristófer Kristófersson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þóra Jónsdóttir Thorlacius frá Moldhaugum, lést þann 23. janúar sl. á Dvalarheimilinu Hlíð. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð. Fyrir hönd aðstandenda, Arnþór Jón Þorsteinsson Guðlaug H. Jónsdóttir Ester Þorsteinsdóttir Þröstur Þorsteinsson Saard Wijannarong Rósa Þuríður Þorsteinsdóttir Bjarni Rafn Ingvason Eygló Helga Þorsteinsdóttir Baldur Jón Helgason Margrét Harpa Þorsteinsdóttir Oddur Helgi Halldórsson Ása Björk Þorsteinsdóttir Kristþór Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn JAMES JOYCE skáld (1882-1941) fæddist þennan dag. „Þjóð er fólk sem býr á sama stað.“ Guðrún Ingólfsdóttir rannsakaði meðal annars handritamenningu kvenna í doktorsritgerð sinni sem gefin hefur verið út í bókinni „Í hverri bók er mannsandi.“ Handritasyrpur – bókmenning, þekking og sjálfsmynd karla og kvenna á 18. öld. Hún segir frá niðurstöðum sínum í fyrirlestrinum Bóklausar og blindar? Handrit í höndum kvenna sem fram fer á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum í stofu 132 í Öskju í dag klukkan tólf. „Í rannsókn minni gerði ég skrá yfir handrit í eigu kvenna og komst meðal að því að bókaeign þeirra var fjölbreyttari en mig óraði fyrir. Það er töluvert af mýtum í gangi um þátt kvenna í bókmenningu og mikið hefur verið gert úr því að konur hafi einkum lesið og átt trúarleg rit. Ég komst að því að svo er ekki,“ segir Guðrún sem fór skipulega yfir handrit frá 17., 18. og 19. öld til þess að rannsaka bóka- eign kvenna. Doktorsritgerð hennar einskorð- ast þó við 18. öldina. „Ég hef mikinn áhuga á 18. öldinni, hún er svo dýna- mísk, upplýsingin var helsta hug- myndastefnan á þeirri öld og margir fræðimenn álíta að þá höfum við stað- ið á þröskuldi nútímans. Sérhæfn- in var að verða meiri á þessum tíma með auknum rannsóknum, þannig að örðugra var að hafa yfirsýn yfir allan heiminn. En einmitt þess vegna er spennandi að skoða handrit frá tíma- bilinu og athuga hvernig menn reyndu að höndla heiminn í einu handriti.“ Handritin sem Guðrún rannsakaði eru svokallaðar handritasyrpur en það eru handrit með fjölbreytilegu efni, skrifuð af einum skrifara. „Það má segja að skrifararnir séu höfundar bókanna þó að þeir séu ekki höfundar efnisins. Þeir sönkuðu efninu að sér og skipuðu því niður,“ segir Guðrún sem leitaði logandi ljósi að handrita- syrpu frá 18. öld sem væri skrifuð af konu. „Mér tókst ekki að finna slíka en ég fann handrit sem var skrifað fyrir konu, Þóreyju Björnsdóttur, húsmóður á menningarheimili við upphaf aldar- innar, sem ég rannsakaði sérstaklega.“ Ýmsar ályktanir um heimsmynd manna og lífssýn má draga af hand- ritasyrpunum að sögn Guðrúnar. „Ég hef ástæðu til að ætla að Þórey hafi haft hönd í bagga með að velja efnið í handriti hennar og það segir því ýmislegt um stöðu hennar sem hús- móður og uppalanda. Uppistaðan í handriti hennar er kveðskapur og þar er einnig ýmiss konar fræðslu- efni, til dæmis stærðfræði og tíma- talsfræði, en ýmsar fyrri alda konur voru sleipar í tímatalsútreikningi. Í aftasta hluta handritsins er svo kveð- skapur til að skemmta Þóreyju sjálfri, þar eru til dæmis lausavísur eftir Pál Vídalín sem var hálfgerður poppari þess tíma.“ Guðrún segir meira til af handrit- um úr eigu íslenskra kvenna frá 19. öld og þau sýni að konur hafi haft áhuga á veraldlegum kveðskap og fjölbreytt- um fróðleik. „Konurnar vildu ekki bara sitja með sálmabók í skauti.“ sigridur@frettabladid.is GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR: RANNSAKAÐI BÓKMENNINGU KVENNA HEIMURINN Í EINU HANDRITI GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR Bókaeign kvenna á fyrri tíð var fjölbreyttari en gert hefur verið ráð fyrir til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.