Fréttablaðið - 02.02.2012, Síða 31

Fréttablaðið - 02.02.2012, Síða 31
FIMMTUDAGUR 2. febrúar 2012 NÝ SENDING AF SKÓM Allir á 10.800 –12.800 kr. AUSTURSTRÆTI 8–10 SÍMI 534 0005 „Þetta er alveg frábært og ótrúlega spennandi,“ segir Sara María Júlíu- dóttir, fatahönnuður sem flestir kenna við Nakta apann eða For- ynju, sem flutt er norður á Sauðár- krók og farin að sinna sölustörfum fyrir Sjávarleður. „Ég bara gat ekki hafnað þessu tilboði. Starfið felst fyrst og fremst í því að selja fiski- leður; karfa-, lax-, hlýra- og þorsk- leður, í Evrópu og Ameríku en ég mun fara á ýmsar sölusýningar til dæmis í Le Cuir í París og Linea- pelle í Bologna á Ítalíu sem eru sér- hæfðar sýningar fyrir hönnuði sem eru í leit að góðu leðri. Auk þess fer ég í söluferðir til New York og Evr- ópu og reikna með að vera mikið á ferðinni að hitta ýmsa hönnuði og fulltrúa stórfyrirtækja á borð við Givenchy, Alexander Wang, Nine West, Sonia Rykiel og Sergio Rossi svo að ég er alveg svakalega spennt að fá að spreyta mig í þessu nýja starfi,“ segir Sara María. Hvað verður um þína eigin línu og Forynju? „Forynja hættir núna um helgina svo að það eru síðustu forvöð að næla sér í góða flík á góðu verði.“ Hvað getur fólk gert ef því langar að eignast föt eftir þig en kemst ekki í Forynju um helgina? „Það verður bara að bíða,“ segir Sara María og hlær. „Ég vil ekki vera að plana of mikið núna því ég er nýbyrjuð í mjög spenn- andi starfi sem segja má að sé eins konar framhald á því sem ég hef verið að gera. Vinna með efni og vera í kringum skapandi fólk svo ég er bara mjög spennt yfir að fá tækifæri til þess að vinna með fyrirtæki sem er á fullri siglingu á alþjóðamarkaði. Ég verð samt áfram með Facebook-síðu Forynju og fólk getur fylgst með í gegnum hana.“ Sara María á ekki orð til að lýsa viðtökunum á Sauðárkróki. „Þetta er bara í einu orði sagt æðislegt. Ég átti alveg von á því að ég yrði með heimþrá til að byrja með en ég finn ekki fyrir neinu slíku. Það er yndis- legt fólk í verksmiðjunni og góður mórall og allir tilbúnir til að aðstoða mann með hvað sem er. Sama er að segja um bæjarbúa. Það eru allir ótrúlega hjálplegir hérna og hafa tekið vel á móti mér. Ég sé ekki eftir neinu.“ fridrikab@frettabladid.is Forynja hættir - Sara María til Sjávarleðurs Verslunin Forynja hættir um helgina, Hönnuðurinn Sara María Júlíudóttir er flutt á Sauðárkrók og byrjuð að selja fiskileður á alþjóðamarkaði fyrir Sjávarleður. Hún fékk tilboð sem hún gat ekki hafnað. Sara María er alsæl á Sauðárkróki og segist hlakka mikið til að takast á við starfið hjá Sjávarleðri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.