Fréttablaðið - 02.02.2012, Side 57
FIMMTUDAGUR 2. febrúar 2012 41
S
B
30057 12/2011
Panodil Zapp (parasetamól, 500 mg). Ábendingar: Höfuðverkur, tannverkur, hiti sem fylgir kvefi, tíðaverkir, vöðva- og liðverkir, verkjastillandi við gigtarverkjum, hár hiti. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1 2 töflur á 4 6 klst.
fresti, að hámarki 8 töflur á sólarhring. Börn 10-15 mg/kg líkamsþyngdar á 4 6 klst. fresti, að hámarki 4 sinnum/sólarhring. Gæta skal varúðar ef um skerta nýrnastarfsemi og lifrarsjúkdóm er að ræða. Skal ekki notað með öðrum verkjalyfjum sem innihalda
parasetamól (t.d. samsettum lyfjum). Hærri skammtar en ráðlagðir eru geta valdið hættu á mjög alvarlegum lifrarskemmdum. Aukaverkanir: Mjög sjaldgæfar: Almennar: Ofnæmisviðbrögð. Útbrot, ofsakláði, ofsabjúgur. Lifrarskemmdir. Lifrarskemmdir
af völdum parasetamóls hafa komið fram í tengslum við misnotkun áfengis. Við langtímanotkun er ekki hægt að útiloka hættuna á nýrnaskemmdum. Pakkning: Filmuhúðaðar töflur 500 mg, 20 stk.. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli lyfsins. Nánari upplýsingar
eru á http://www.serlyfjaskra.is. Panodil er skrásett vörumerki GlaxoSmithKline fyrirtækjasamstæðunnar.
HRAÐVIRK
LINUN SÁRSAUKA.
KRÖFTUG HITALÆKKANDI
OG VERKJASTILLANDI ÁHRIF.
Panodil Zapp frásogast helmingi hraðar en
venjulegar parasetamól töflur, þannig næst hratt sú
vel þekkta og öfluga verkjastilling sem þú getur treyst.
en venjulegar parasetamól töflur
Dr. Margaret Cormack færði
Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum dýrmæta
gjöf þann 26. janúar, bókina
Super librum Sapientiae sem
eru útleggingar á Speki Salóm-
ons eftir Robert Holkot (d. 1349).
Bókin var prentuð árið 1489 í
Basel af prentaranum Johanni
Amerbach og Johanni Petri de
Langendorff.
Um mikið fágæti er að ræða að
því er fram kemur í frétt stofn-
unarinnar. Johann Amerbach var
þekktur prentari og úr prent-
smiðju hans eru varðveittar um
75 bækur, sem eru í metum fyrir
vandaðan texta sakir náinnar
samvinnu Amerbachs við ýmsa
lærdómsmenn eins og Ólafur
Pálmason segir frá í grein um
vögguprent í Landsbókasafni í
Árbók safnsins árið 1987.
Margaret hefur um árabil dval-
ið við fræðistörf á Árnastofnun
um lengri eða skemmri tíma og
hefur tengst stofnuninni og land-
inu sterkum böndum. Veturinn
2011-12 dvelur hún einmitt við
rannsóknir á stofnuninni.
Gaf Árna-
stofnun bók
frá 15. öld
Síðasta sýningarhelgi á sýn-
ingu Önnu Líndal, Kortlagning
hverfulleikans, í Listasafni ASÍ
fer nú í hönd. Anna verður með
listamannaspjall sunnudaginn 5.
febrúar klukkan þrjú.
Um sýninguna segir Anna
meðal annars: „Rannsókn á lítilli
einingu – dregur fram fjölbreytni
innan stærri heildar. Þannig er
hægt að komast sem næst því
að kanna hvað hafi legið að baki
ákvörðunum sem teknar voru
fyrir fjölmörgum árum, jafnvel
öldum, og munu hafa áhrif á hvað
gerist á morgun eða eftir mörg
hundruð ár. Tengsl mannsins við
fortíðina á meira skylt við mynd-
líkingar en staðreyndir.“
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 13 til 17 og
aðgangur er ókeypis.
Listamanna-
spjall Önnu
KORTLAGNING HVERFULLEIKANS Anna
Líndal sýnir í Listasafni ASÍ.