Fréttablaðið - 02.02.2012, Qupperneq 70
2. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR54
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér oftast eina litla skál
af léttri AB-mjólk, ávaxtasafa, ef
hann er til, og svo kaffi.“
Lovísa Arnardóttir, nemi og ráðgjafi hjá
UNICEF á Íslandi.
„Þegar við fórum að skoða tölurnar komust við að
því að það myndi frekar borga sig að einbeita sér
að því að reka skemmtistað,“ segir Ásgeir Kol-
beinsson, einn af eigendum skemmtistaðarins
Austur.
Ásamt því að vera skemmtistaður hefur Austur
verið rekið sem steikhús undanfarin misseri. Nú
hafa Ásgeir og félagar ákveðið að hætta því, en
halda eldhúsinu þó opnu fyrir hópa sem leggja stað-
inn undir veislur og aðra skemmtanir.
„Það hefur verið vinsælast í matnum; vinnuhóp-
ar og ferðamenn. Við viljum halda því áfram, gera
það enn betur og svara eftirspurninni, sem er til
staðar, um að fá staðinn undir hópa. En við hættum
að vera með à la carte-matseðil alla daga vikunn-
ar,“ segir Ásgeir.
Austur byrjaði sem skemmtistaður og það má því
segja að staðurinn sé að fara aftur til upprunans.
Ásgeir segir rekstur steikhússins og skemmtistað-
arins ekki hafa farið vel saman. „Helsta ástæðan er
sú að það er erfitt að reka svona stóran og vinsælan
skemmtistað á meðan það er alltaf verið að biðja
um að fá hann leigðan undir skemmtanir, afmæli
eða veislur,“ segir hann. „Við þurftum að hafna
slíku vegna þess að veitingastaðurinn var opinn.
Það passar ekki alveg að vera með veislu í gangi
á meðan fólk situr og er að borða.“
Þurftirðu að segja mörgum upp?
„Nokkrum, ekki mörgum. Flestum var
hægt að koma fyrir á öðrum veitingastöðum í
bænum.“
Ásgeir segir að eftir sem áður verði Austur
opið á daginn, með kaffi og kökur á boðstól-
um, auk þess sem ýmislegt annað er á döf-
inni, að sögn Ásgeirs.
atlifannar@frettabladid.is
Austur hættir að vera steikhús AFTUR TIL UPPRUNANS Austur byrjaði sem skemmti-
staður, þangað til Ásgeir
Kolbeinsson breytti
staðnum í steikhús. Í dag
er Austur aðallega
skemmti-
staður.
Eskimo-umboðsskrifstofan leit-
ar nú að stúlkum til að taka þátt
í nýrri fyrirsætukeppni er nefn-
ist Eskimo-stúlkan 2012. Keppnin
verður með öðru sniði en áður því
sigurvegarinn fer ekki út í áfram-
haldandi keppni heldur kemst
á samning hjá hinni virtu Next
umboðsskrifstofu.
Andrea Brabin, eigandi Eskimo,
segir keppnina vera stökkpall
fyrir stúlkur sem vilja reyna fyrir
sér í fyrirsætustarfinu. „Verðlaun-
in eru með öðru sniði en gengur
og gerist, stúlkan fer ekki út í aðra
keppni heldur fær samning beint
héðan við Next. Sú sem sigrar
fær flug til New York í boði Next
Models, gistingu í einni af módel-
íbúðum stofunnar og minnst þrjár
tökur með reyndum ljósmyndur-
um. Þarna gefst þeim því tækifæri
til að kynnast þessum heimi, öðl-
ast reynslu og byggja upp möppu.“
Þá hlýtur sigurvegarinn hundrað
þúsund króna peningaverðlaun
ásamt forsíðumyndatöku fyrir vef-
ritið Nude Magazine.
Fyrirsæturnar Anja Rubik og
Abbey Lee eru á meðal þeirra
heimsþekktu fyrirsæta sem eru
á skrá hjá Next auk Brynju Jón-
bjarnardóttur, Kolfinnu Krist-
ófersdóttur og Elmars Johnson.
„Við höfum lengi verið í samstarfi
við Next og því þótti okkur eðlilegt
skref að vinna með þeim að keppn-
inni. Aðaldómari kvöldsins verður
svo Jason Valenta, helsti útsendari
Next Models World Wide.“
Leitað er að stúlkum frá fjór-
tán ára aldri og þurfa þær að vera
minnst 170 sentimetrar að hæð.
Nánari upplýsingar er hægt að
fá í gegnum vefpóstinn eskimo@
eskimo.is. - sm
Samningur í verðlaun
NÝ KEPPNI Eskimo-stúlkan er ný fyrir-
sætukeppni á vegum Eskimo umboðs-
skrifstofunnar.
Opið laugard. kl. 10-14
www.bbkeflavik.com
Bed And Breakfast (Gistihús Keflavíkur) · Keflavíkurflugvelli
Valhallarbraut 761 · 235 Reykjanesbæ · Sími 426 5000
FRÍTT- við geymum bílinn þinn.
FRÍTT- ferðir til og frá flugvellinum.
FRÍTT- uppfærsla í DeLuxe herbergi í febrúar-apríl.
Frábært verð!
2 fyrir 1
af lambasamlokum
í febrúar.
Nýbýlavegi 32 www.supersub.is
„Við höfum útbúið tvær tegundir
af límmiðum fyrir þá sem þess
óska,“ segir Guðrún María Guð-
mundsdóttir, ritstjóri og sviðs-
stjóri hjá Já.
Já hefur látið hanna límmiða
til að líma yfir forsíðu símaskrár
síðasta árs en á henni er mynd af
Agli Einarssyni og fimleikastúlk-
um úr Gerplu. Tvær gerðir af lím-
miðum eru í boði fyrir þá sem vilja
fjarlægja Egil af forsíðunni. Ann-
ars vegar er límmiði með mynd
af stúlkunum úr Gerplu og hins
vegar er límmiði sem lítur út eins
og búið sé að rífa Egil af forsíð-
unni.
Aðspurð segist Guðrún María
ekki vilja tjá sig nánar um ákvörð-
unina um límmiðana. „Þeir eru
hins vegar til og í boði fyrir alla
þá sem vilja,“ segir hún. Hún vill
ekki tjá sig um hversu margir hafa
sett sig í samband við fyrirtækið
og óskað eftir lausnum á borð við
límmiðana.
Egill hefur verið kærður í tví-
gang fyrir kynferðisbrot á síð-
ustu mánuðum en niðurstaða í
málunum liggur ekki fyrir. Önnur
kæran, sem er á hendur honum
og kærustu hans, var á dögunum
send frá Ríkissaksóknara til frek-
ari rannsóknar hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu en hin kæran
er ennþá til rannsóknar.
Ákvörðun Já að láta Egil um rit-
stjórn símaskrárinnar árið 2011
var umdeild á sínum tíma. Ný
símaskrá kemur út í maí og að
þessu sinni er það Borgarleikhúsið
sem sér um að myndskreyta hana.
Hægt er að nálgast límmiðana í
höfuðstöðvum Já í Álfheimum.
alfrun@frettabladid.is
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR: LÍMMIÐAR Í BOÐI FYRIR ALLA SEM VILJA
Útgefandi símaskrárinnar
býður fólki að líma yfir Egil
LÍMMIÐAR Í BOÐI Fyrirtækið Já hefur útbúið tvær
tegundir af límmiðum til að fela forsíðufyrirsætuna
Egil „Gillzenegger“ af forsíðunni og eru þeir í boði fyrir
þá sem þess óska.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Önnur þáttaröðin af Game of Thrones verður
frumsýnd í Bandaríkjunum 1. apríl næstkomandi.
Eins og margir Íslendingar vita fór hluti af tök-
unum fram hér á landi seint á síðasta ári og í nýju
kynningarmyndbandi fyrir sjónvarpsþættina kemur
snævi þakin íslensk náttúran nokkrum sinnum við
sögu. Yfir þrjár milljónir manna hafa séð mynd-
bandið á síðunni YouTube og því ljóst að eftir-
væntingin eftir Game of Thrones 2 er mikil.
- fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!