Fréttablaðið - 29.02.2012, Page 6

Fréttablaðið - 29.02.2012, Page 6
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR6 Icepharm a KEMUR HEILSUNNI Í LAG ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA / FÆST Í APÓTEKUM UM LAND ALLT LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA SJÁ NÁNAR Á VITAMIN.IS EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR FRAKKLAND, AP Stjórnlagadóm- stóll Frakklands kvað í gær upp þann úrskurð að lög, sem franska þingið setti í desember, stangist á við frönsku stjórnar skrána. Lögin banna fólki að neita því að fjölda- morð Tyrkja á Armenum fyrir nærri öld hafi verið þjóðar- morð. Tyrkir brugð- ust ókvæða við lagasetningunni. Þeir viðurkenna að fjöldamorð hafi átt sér stað en neita því að um skipulegt þjóðar- morð hafi verið að ræða. Niðurstaðan er áfall fyrir Nic- olas Sarkozy Frakklandsforseta, sem studdi lögin eindregið. - gb LÖGREGLUMÁL Lögreglan rannsakar nú tilraun til íkveikju í Hafnarfirði á mánudag þar sem eldsprengju var kastað á íbúðarhús tveggja meðlima vélhjólagengisins Outlaws. Vitni sá tvo menn forða sér af vettvangi í kjölfar atviksins. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lög- reglunnar, segir enga hafa verið yfirheyrða eða handtekna vegna málsins. „Þetta er litið alvarlegum augum og hefði getað skapað almanna- hættu ef kviknað hefði í,“ segir hann. „Öllum möguleikum er haldið opnum, allt verður kannað og allt rannsakað sem hægt er að rann- saka.“ Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir rannsóknina byggjast að vissu leyti á því að íbúar hússins séu með- limir í vélhjólagengi. „Við erum að reyna að átta okkur á því hvers vegna þessi atburðarás átti sér stað,“ segir hann. „Eðli- lega lítum við til þeirra manna sem þarna búa og þeirra sem standa að baki.“ Þessi tegund sprengju er oft köll- uð Molotov-kokteill – glerflaska er fyllt með eldfimum vökva og henni lokað með klúti vættum í vökvan- um. Húsið skemmdist ekki mikið í brunanum, en lögreglumaður á frívakt átti leið hjá stuttu eftir að kviknaði í og náði að slökkva eldinn. Enginn var í húsinu þegar sprengj- unni var kastað, en lögreglan er búin að taka skýrslu af íbúunum. - sv Lögreglan segir íkveikju í Hafnarfirði rannsakaða með hliðsjón af því að íbúar hússins eru tengdir Outlaws: Tveir menn sáust forða sér frá húsinu ELDSPRENGJU KASTAÐ Í HÚSIÐ Íbúar hússins við Hverfisgötu í Hafnarfirði eru meðlimir í vélhjólagenginu Outlaws og rannsakar lögreglan nú málið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN NICOLAS SARKOZY Tyrkir fagna úrskurði: Frönsku lögin stjórnlagabrot Telur þú raunhæft að afnema verðtryggingu án annarra kerfisbreytinga á hagkerfinu? Já 64,1% Nei 35,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Líst þér vel á hugmyndir fyrirtæk- isins Triumvirate Environmental um að flytja sorp frá Bandaríkj- unum til eyðingar á Íslandi? Segðu þína skoðun á visir.is FRAKKLAND, AP Francois Hollande, frambjóðandi Sósíalistaflokksins í forsetakosningunum í næsta mán- uði, vill leggja 75 prósenta skatt á þá sem hafa árstekjur yfir einni milljón evra, en sú upphæð sam- svarar þessa stundina nærri 168 milljónum króna. Til rökstuðnings máli sínu segir hann: „Það er ekki hægt að vera með svona háar tekjur.“ Hollande etur kappi við Nicolas Sarkozy forseta í kosningum 22. apríl. Seinni umferð verður svo haldin 6. maí milli þeirra tveggja frambjóðenda sem flest atkvæði fá, fari svo að enginn hljóti meira en helming atkvæða. - gb Forsetaefni sósíalista: Vill ofurskatt á hæstu tekjur LÖGREGLUMÁL Lögregla fór í gær yfir upptökur eftirlitsmyndavéla í miðbæ Reykjavíkur vegna rann- sóknar á árás á 16 ára stúlku um síðustu helgi. Stúlkan lagði fram formlega kæru vegna nauðgunar á hendur nokkrum mönnum í gær. „Fyrir liggur að þátttakendur í þessu eru fleiri en einn, en hvort þeir séu allir gerendur er óljóst,“ sagði Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Áður hefur komið fram að stúlkan kvaðst hafa verið að skemmta sér með vinkonum sínum þegar að henni hafi veist hópur manna. Einn nauðgaði henni svo í húsasundi meðan hinir stóðu hjá. - óká Hópnauðgun í Reykjavík: Lagði form lega fram nauðgun- arkæru í gær VIÐSKIPTI Kæra á til áfrýjunar- nefndar fjarskipta- og póstmála heimild Íslandspósts til að loka afgreiðslustöð fyrirtækisins í Mjódd. Að sögn Kjartans Magn- ússonar borgarfulltrúa standa að kærunni sjálfstæðisfélögin í Breiðholti og íbúasamtökin Betra Breiðholt. Ingimundur Sigurpálsson, for- stjóri Íslandspósts, fundaði með Kjartani, formanni Betra Breið- holts og formönnum sjálfstæðis- félaganna vegna málsins í gær og var upplýstur um andstöðu við fyrirætlan fyrirtækisins. - óká Íbúar í Breiðholti mótmæla: Ætla að kæra lokun útibúsins LOKUN MÓTMÆLT Forstjóri Íslandspósts fundaði með fulltrúum íbúasamtaka í Breiðholti í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ALÞINGI Þingmenn stjórnarflokk- anna og Hreyfingarinnar í stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd leggja til að tillögu Bjarna Benediktsson- ar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, verði vísað frá. Valgerður H. Bjarnadóttir, for- maður nefndarinnar, segir að þrátt fyrir að hægt sé að færa rök fyrir því að Alþingi megi taka til- löguna á dagskrá, þýði það alls ekki að Alþingi eigi að gera það. „Við teljum að þingið eigi ekki að fara inn í málið. Þá væri það að skipta sér af sakamáli og málið yrði í eðli sínu pólitískt. Þess vegna viljum við að því verði vísað frá.“ Varatillaga meirihlutans er að tillaga Bjarna verði felld. Birgir Ármannsson segir að þau Ólöf Nordal, fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í nefndinni, muni standa saman að nefndaráliti. Hann segir út af fyrir sig ánægjuefni að meirihlutinn skuli hafa tekið málið úr nefndinni, um tíma hafi ekki verið útlit fyrir það. Það sé fagnaðarefni að málið komi aftur á dagskrá þingsins. Sjálfstæðis- menn séu hins vegar ósammála efnislegri afstöðu meirihlutans. „Við teljum í fyrsta lagi að þingið hafi heimild til að aftur- kalla ákæruna og auk þess teljum við rök fyrir því að það sé gert, eins og upphaflega tillagan um afturköllun byggir á. Við vísum til þess að ákæruvaldið er í hönd- um þingsins og þingmenn þurfi þannig, hver fyrir sig, að taka afstöðu til þessa máls á málefna- legum forsendum.“ Birgir segir sjálfstæðismenn einfaldlega vilja láta reyna á hvort sú staða sé uppi að meirihluti þingsins sé annar nú en þegar ákæran var samþykkt í septem- ber 2010. Valgerður segir efnisatriði varðandi það hvort eigi að fella ákæruna niður felast í lögum um meðferð sakamála. „Þar eru skil- yrði þess að vísa máli frá tíunduð. Ekkert af þeim á við í þessu máli.“ Hún segir að ef slík efnisatriði væru fyrir hendi væri það sak- sóknara að beina því til Alþingis að taka málið upp. Það hafi hann ekki gert, þvert á móti hafi hann sagt að engar forsendur séu fyrir slíku. kolbeinn@frettabladid.is Segir málið pólitískt og að vísa eigi því frá Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill vísa frá tillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Ella eigi að fella málið. Minnihluti nefndarinnar vill láta reyna á hvort nýr meirihluti sé nú á þingi fyrir að afturkalla ákæru. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008, sem Valgerður vitnar í, má fella niður málsókn þegar svo stendur á sem hér segir: a. ef brot er smávægilegt eða fyrirsjáanlegt er að umfang málsins verði í verulegu ósamræmi við þá refsingu sem vænta má, b. ef sakborningur og brotaþoli hafa komist að samkomulagi og sakborn- ingur hefur efnt það fyrir sitt leyti, c. ef sakborningur virðist vera ósakhæfur og ekki er nauðsynlegt að gera kröfu um að hann verði beittur öryggisráðstöfunum, d. ef brot hefur valdið sakborningi sjálfum óvenjulega miklum þjáningum eða aðrar sérstakar ástæður mæla með því að fallið sé frá saksókn, enda verði að telja að almannahagsmunir krefjist ekki málshöfðunar. Ákvæði um niðurfellingu SAKSÓKNARI Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, sagði á fundi stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar Alþingis í janúar að ekkert hefði komið efnislega fram sem réttlætti afturköllun ákæru. Alþingi hefiði þó skýran rétt til þess. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.