Fréttablaðið - 29.02.2012, Síða 8
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR
Heimsferðir
Duration 5 March to March 29
Course in English
for Icelandic Commercial driving licence (C and CE)
Hours: Monday, Tuesday, Wednesday,
Friday, 17:30 – 21:50
Registration@ : rektorinn@gmail.com
Please send your full name, ID-no and
mobile number
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
frá kr. 69.900
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 13. mars í 7 eða 15 nætur á frábæru
tilboði á Tisalaya Park, sem eru góð smáhýsi á Maspalomas svæðinu og hinu vinsæla Beverly
Park. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað á ótrúlegum kjörum.
Verð kr. 69.900
flugsæti 13. mars og til baka 28. mars
Tisalaya Park – Frá kr. 99.600 í 15 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í smáhýsi með einu
svefnherbergi. Netverð m.v. 2 fullorðna í smáhýsi kr. 119.800 á mann.
Beverly Park – Frá kr.107.400 – allt innifalið í 7 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 124.700 á mann.
Aukagjald fyrir allt innifalið kr. 10.300 á mann m.v. 2 fullorðna og eitt barn.
Aukagjald fyrir allt innifalið kr. 15.200 m.v. 2 fullorðna.
Síðustu sætin í vetur
13. marsKanarí í 7 eða 15 nætur
SVEITARSTJÓRNIR Atvinnulausir
munu ekki fá frítt í sund á kostnað
Rangárþings ytra eins og Vinnu-
málastofnun á Suðurlandi óskar
eftir við sveitarfélög á svæðinu.
„Þar sem lægstu laun í samfé-
laginu eru svipuð og atvinnuleysis-
bætur sér hreppsráð ekki fært að
veita gjaldfrjálsan aðgang að sund-
laugum fyrir einn hóp umfram
annan,“ segir sveitarstjórnin sem
kveður hins vegar nauðsynlegt að
hjálpa atvinnulausu fólki að leita
sér að vinnu. „Hreyfing er öllum
holl, sama hvort það á við um fólk
í föstu starfi eða atvinnulausa og
bendir hreppsráð Vinnumálastofn-
un á að snúa sér til velferðarráðu-
neytisins með erindið.“ - gar
Synja ósk Vinnumálastofnunar vegna atvinnulausra:
Fá ekki frítt í sund
HELLA Atvinnulausir ekki teknir fram yfir
þá sem lægstu launin hafa.
VIÐSKIPTI Bandaríska sorpeyðingar-
fyrirtækið Triumvirate setur fram
ýmis skilyrði sem þarf að uppfylla
til að kauptilboð þess í sorpeyðing-
arstöðina Kölku í Helguvík gangi
eftir.
Á meðal þess sem Triumvirate
fer fram á er að öll leyfi til að
halda úti þeim rekstri sem fyrir-
tækið ætlar sér séu til staðar og
að fyrir liggi vilji Reykjanesbæj-
ar sem lóðareiganda til að heimila
stækkun á verksmiðjunni. Þetta
kemur fram í viljayfirlýsingu um
kaup Triumvirate á Sorpeyðing-
arstöð Suðurnesja (SS), sem á og
rekur Kölku. Fréttablaðið, sem
greindi frá áformum fyrirtækis-
ins í gær, hefur viljayfirlýsinguna
undir höndum.
Tilboð Triumvirate er upp á tíu
milljónir dala, eða um 1,25 millj-
arða króna. Upphaflega gilti til-
boðið til 29. febrúar, dagsins í dag,
en það var framlengt um nokkra
daga svo að eigendur Kölku gætu
tekið afstöðu til málsins. Stöðin er í
eigu Reykjanesbæjar, Grindavíkur,
Sandgerðis, Garðs og Voga.
Í samantekt úr viljayfirlýsing-
unni, sem KPMG vann, kemur
fram að við frágang kaupsamn-
ings muni Triumvirate taka yfir
allar viðskiptaskuldir, áfallnar
skuldir og skuldbindingar sorp-
eyðingarstöðvarinnar. Fyrirtækið
mun einnig taka yfir, kjósi það svo,
langtímaskuldir stöðvarinnar.
Triumvirate getur valið hvort
fyrir tækið greiðir fyrir kaupin
með peningum eða með yfirtöku á
langtímaskuldum, en SS skuldaði
tæplega 1,3 milljarða króna í lok
árs 2010 samkvæmt síðasta birta
ársreikningi félagsins. Skuldir
félagsins voru lækkaðar um 163
milljónir í fyrra. Því er ljóst að
núverandi eigendur SS, sveitar-
félögin á Suðurnesjum, munu fá
lítið eða ekkert á milli í viðskipt-
unum. Þeim býðst þó að halda eftir
eignarhlut að lágmarki 10% en að
hámarki 33% ef vilji er fyrir því,
en kaupverðið myndi lækka í takt
við þann eignarhlut. Í yfirlýsing-
unni er skýrt tekið fram að kaup-
andinn muni „ekki taka yfir aðrar
þær skuldbindingar sem á rekstr-
inum geta hvílt, s.s. skattskuld-
bindingar, umhverfisskuldbind-
ingar og ábyrgðarskuldbindingar“.
Á meðal þeirra skilyrða sem
Triumvirate setur fyrir kaup-
unum er að fyrir þurfi að liggja
allar upplýsingar „um leyfilegt
umfang rekstursins og möguleika
til stækkunar, séu þeir fyrir hendi“
auk þess sem fyrir þarf að liggja
„vilji Reykjanesbæjar til að heim-
ila stækkun á verksmiðjunni, þ.m.t.
stækkun leigulóða ef þörf er á“.
Endanlegt kaupverð og greiðslu-
máti er háð niðurstöðu áreiðan-
leikakönnunnar á fjárhagslegum,
rekstrarlegum og lagalegum þátt-
um SS, úttekt á framleiðslustöðinni
sjálfri, að fyrir liggi öll leyfi til að
Trium virate geti haldið úti þeirri
starfsemi sem það ætlar sér, að
fyrir liggi upplýsingar um förgun
ösku og að ásættanlegir samningar
séu til staðar við sveitarfélög um
áframhaldandi vinnslu á sorpi frá
þeim. thordur@frettabladid.is
Setja skilyrði
fyrir kaupum
Í viljayfirlýsingu milli Triumvirate og eigenda sorp-
eyðingarstöðvar í Helguvík eru lögð fram fjölmörg
skilyrði, meðal annars um mögulega stækkun.
Fyrirtækið tekur ekki yfir umhverfisskuldbindingar.
KALKA Stöðin var opnuð árið 2004 en rekstur hennar hefur ekki gengið sem skyldi.
Mikill fjármagnskostnaður vegna byggingar hennar hefur leitt til þess að eigið fé
eigendafélagsins var neikvætt um 555 milljónir króna í lok árs 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gangi kaupin eftir ætlar Triumvirate, sem er með starfsemi í Bandaríkjunum
og Kanada, að flytja úrgang frá Norður-Ameríku til Íslands og brenna í
sorpeyðingarstöðinni Kölku, sem er staðsett í Helguvík. Í viljayfirlýsingunni
er ekki tiltekið hvers konar úrgang fyrirtækið áætlar að flytja til Íslands en
það sérhæfir sig meðal annars í förgun á allskyns iðnaðar-, heilbrigðisþjón-
ustu- og líftækniúrgangi. Þar segir einungis að um viðbótarútgang
(e. additional waste materials) verði að ræða.
Ætla að flytja inn úrgang