Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 10
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR10 UTANRÍKISMÁL Kostnaður við gjald- eyrisforða Seðlabanka Íslands nam í fyrra 33 milljörðum króna. Þetta kemur fram í skriflegu svari Öss- urar Skarphéðinssonar utanríkis- ráðherra á Alþingi við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, þing- manns Framsóknarflokks, um kostnað við Evrópusambandsaðild. Gangi spár Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins um efnahagsframvindu hér á landi eftir, fer vaxtakostnaður Seðlabankans vegna gjaldeyrisforð- ans minnkandi næstu ár og ætti, samkvæmt svari utanríkisráð- herra, að enda í um 8 milljörð- um króna á ári fyrir árið 2016. Reynslan sýni hins vegar að ríki sem taka upp evruna hafi getað minnk- að gjaldeyris- forða sinn verulega og látið nægja að halda úti eigin gjaldeyrisforða sem nemur milli fjórum og fimm prósentum af landsframleiðslu. „Gjaldeyrisforði Íslands sem næmi um 4 til 5 prósentum af landsfram- leiðslu ársins 2010 væri því um 61 til 77 milljarðar króna. Áætlaður vaxtakostnaður af gjaldeyrisforða af þessari stærð næmi um 1,8 til 2,3 milljörðum króna á ári, miðað við 3 prósenta vexti,“ segir í svarinu. Árlegur sparnaður í vaxtakostnaði gæti því numið nálægt sex milljörð- um króna á ári þegar fram í sækir. Við upptöku evru þarf hins vegar að leggja fram stofnfé í Seðlabanka Evrópu. Kæmi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu, kemur fram í svarinu við fyrirspurn Sigurðar Inga, að einskiptisframlag Íslands til Seðlabanka Evrópu í formi stofn- fjár og gjaldeyrisforða yrði 64,5 milljónir evra, eða sem nemur 10,3 milljörðum króna. Sé tekinn inn í myndina vaxtakostnaður við gjald- eyrisforða á fyrsta ári evruupp- töku yrði upphæðin því nálægt 12,5 milljörðum króna, eða 20 milljörð- um lægri en nemur vaxtakostnaði Seðlabankans við gjaldeyrisforða landsins í fyrra. Eins kemur fram í svarinu að með evruaðild fengi Seðlabankinn hlut- deild í myntsláttuhagnaði Seðla- banka Evrópu. „Miðað við tölur áranna 2003 til 2011 hefði hlut- deild Seðlabankans í þeim hagnaði orðið að meðaltali um 6,5 milljarð- ar króna á ári,“ segir í svarinu og bent á að myntsláttuhagnaður Seðla- bankans myndi því aukast um 2,8 milljarða króna á ári. Í ítarlegu svari utanríkisráðherra við fyrirspurninni er farið yfir margvíslegan kostnað og efnahags- legan ávinning af mögulegri inn- göngu Íslands í Evrópusamband- ið og við upptöku evru. Um leið er bent á að með aðild falli niður marg- víslegur kostnaður vegna aðildar Íslands að EFTA og reksturs EES- samningsins. olikr@frettabladid.is BRETLAND, AP Uppljóstrunarsíð- an Wikileaks hefur birt skjöl frá bandaríska greiningarfyrirtækinu Stratfor, sem safnar saman upplýs- ingum um alþjóðamál og selur við- skiptavinum sínum samantektir. Alls eru það meira en fimm milljónir tölvupósta, sem Wiki- leaks hefur nú hafið birtingu á. Við fyrstu skoðun á skjölunum koma reyndar einkum í ljós ýmis ummæli sem varla geta talist mikið meira en vandræðaleg. Julian Assange, stofnandi Wiki- leaks, sakar Stratfor hins vegar um harla alvarleg brot, svo sem að stunda njósnir um starfsemi aðgerðarsinna fyrir hönd stórfyr- irtækja. Vísbending um slíkt er spurning frá einum framkvæmda- stjóra gosdrykkjaframleiðandans Coca Cola: „Í hve miklum mæli munu stuðningsmenn PETA í Bandaríkjunum ferðast til Kanada til stuðnings aðgerðarsinnum?“ Assange segir skjölin einnig sýna að fyrirtækið hafi sent heim- ildarmönnum sínum fé í gegnum aflands-skattaskjól og jafnvel notað upplýsingar, sem aflað hefur verið í trúnaði, til eigin fjárfest- inga. „Við höfum fundið fyrirtæki sem er Enron einkaleyniþjónustu- geirans,“ segir Assange, og vísar þar til orkufyrirtækisins Enron sem féll með látum árið 2001 þegar bókhaldsbrellurnar dugðu ekki lengur til. Stratfor hafnar öllum slíkum ásökunum. Í yfirlýsingu segir að fyrirtækið gæti þess að fara að ströngustu kröfum fagsins. - gb Wikileaks birtir milljónir tölvupósta bandaríska greiningarfyrirtækisins Stratfor: Njósnastarf einkafyrirtækis opinberað JULIAN ASSANGE Kynnti nýjustu upp- ljóstranir Wikileaks á blaðamannafundi í London á mánudag. NORDICPHOTOS/AFP ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Á FUNDI Í HÖFUÐSTÖÐVUM ESB Í skriflegu svari utanríkis- ráðherra við fyrirspurn á Alþingi kemur fram að myntsláttuhagnaður Seðlabankans gæti aukist um 2,8 milljarða á ári með evruaðild landsins. NORDICPHOTOS/AFP SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON Kostnaðurinn miklu minni með evrunni Árlegur vaxtakostnaður Seðlabankans af gjaldeyris- varaforða nemur nú 33 milljörðum króna. Kostn- aður við evruforða yrði 1,8 til 2,2 milljarðar króna. Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR vegna kjörs sjö sæta í stjórn VR, skv. 20. gr. laga félagsins, hefst kl. 09:00 þann 1. mars 2012 og lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 9. mars 2012. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.vr.is eða með því að hringja á skrifstofu félagsins í síma 510 1700. Kjörstjórn VR Allsherjar- atkvæðagreiðsla Mikið mál? Prófaðu SagaPro www.sagamedica.is Ef tíð þvaglát eru mikið mál fyrir þig ættir þú að nota tækifærið og ná í ókeypis sýnishorn af SagaPro. Klipptu út auglýsinguna, komdu með hana í Lyfjaver 1.-4. mars og þú færð 20 daga sýnishorn af SagaPro. ÓKEYPIS SÝNISHOR N GRJÓTKASTI SVARAÐ Palestínufáninn blaktir í tré fyrir ofan ísraelska hermenn í átökum við palestínska grjótkastara á Vesturbakkanum. NORDCIPHOTOS/AFP milljarðar íslenskra króna er kostnaður Seðlabanka Íslands vegna gjaldeyrisforðans. 33

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.