Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 18
18 29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR Það er mögnuð reynsla að heim-sækja Náttúruminjasafnið í Kalkútta, stofnað 1814 telst það eitt elsta sinnar tegundar í heim- inum. Á Viktoríutímanum (1878) flutti svo safnið í núverandi byggingu, risastóra hvítkalkaða nýlenduherrabyggingu. Bygg- ingin, sem ekki aðeins gaf „nátt- úrunni“ veglegan sess í miðborg Kalkútta, miðlaði drottnun manns- ins yfir náttúrunni og breska heimsveldisins yfir Indlandi. Að ganga úr einum risasal í annan, með alla veggi þakta sýn- ingarskápum, þar sem hvert upp- stoppaða dýrið bítur í skottið á næsta er stórmerkileg reynsla. Má með sanni segja að maður geti mikið lært af slíkri heimsókn. En ekki um náttúruna. Í því sem lítur út fyrir að vera lítið breytt útstilling frá því að safnið flutti, standa tígris- dýr, hlébarðar og skógarbirnir í árásarstellingu sem fulltrúar hinnar myrku náttúru sem mað- urinn hefur sigrast á og beislað. Rétt eins og nýlendu- herrarnir höfðu þving- að Indverja til að þjóna sínum markmiðum. Yfir öllu liggur tveggja senti- metra ryklag, loppan af tígrisdýrinu, skottið af hlébarðanum og gler- auga bjarnarins liggja brotin á gólfinu sem segir okkur svo aðra sögu. Af heimsókn í náttúruminjasafnið í Kalkútta lærir maður ekki um náttúruna, heldur um menningu og sögu: Um vestræna menningu iðnvæðingar og nýlenduútþenslu og hvernig hún skilgreindi náttúruna sem mannin- um gefin til drottnunar. Náttúran og fræðslan um hana Á 19. öld, þegar skipsfarmarnir af furðudýrum fóru að streyma frá nýlendunum til stórborga hins vestræna heims, hófst gull- öld náttúruminjasafnanna. Síðan þá hafa hugmyndir vestrænna manna breyst mikið. Menn gera sér í auknum mæli grein fyrir takmörkunum drottnunarafstöðu mannsins, að beislun náttúrunn- ar er í besta falli tvíeggjað sverð sem snúist gæti gegn mannin- um og að upphafning mannsins á sjálfum sér sem skynsemisveru gagnvart andstæðu sinni, nátt- úrunni, var og er tálsýn. Í sam- ræmi við þessa þróun hefur vægi náttúruminjasafna (og dýragarða) minnkað á kostnað annarra leiða í fræðslu um náttúruna. Miðað við þarfir vestrænna borgarsam- félaga og stöðu náttúruvísinda, stendur ein leið upp úr: fræðsla úti í náttúrunni sjálfri. Allar aðrar fræðsluleiðir; bækur, bæklingar, söfn, margmiðlun, kvikmyndir, vefsíður, o.s.frv. eru hjálpartæki við þá óhjákvæmilegu leið til að kynnast náttúrunni: Að dvelja í henni. Náttúruminjasafn Íslands Samkvæmt lögum hefur Nátt- úrminjasafn Íslands miðlægt fræðsluhlutverk, því ber að safna saman og miðla þekkingu á nátt- úrunni til almennings og vera öðrum menntastofnunum til ráðgjafar í málefnum náttúru- fræðslu. Með réttu ætti samhæf- ing allrar náttúrufræðslu landsins að fara í gegnum Náttúruminja- safn Íslands. Stofnunin hefur fyrst og fremst menntunar- og fræðslu- hlutverk. Rannsóknarhlutverk þess er afar loðið enda Náttúru- fræðistofnun Íslands sem annast náttúrufarsrannsóknir. Hlutverk og markmið Náttúruminjasafns Íslands eru að öðru leyti sett skýrt fram í lögunum sem um það gilda og skilgreina ágætlega hvar þarf að taka á náttúrufræðslu á Íslandi. Skynsamlegt ferli í uppbygg- ingu Náttúruminjasafns Íslands væri því að skilgreina leiðir sem endurspegla hlutverk þess og markmið. Þá myndi skipta miklu máli að forgangsraða leiðun- um eftir áhrifamætti og gæðum þeirra en einnig eftir kostnaði þar sem seint mun fást ómælt fjár- magn úr ríkiskassanum. Af umfjöllun Fréttablaðsins um málefni Náttúru- minjasafnsins á síðustu misserum má draga þá ályktun að forstöðumað- ur safnsins og fleiri ein- blíni á veglegt hús mið- svæðis í Reykjavík sem forsendu þess að stofn- unin geti rekið hlut- verk sitt. Að veglegt hús fullt af söfnuðum náttúruminjum (vænt- anlega með skottunum enn hangandi á) ásamt margmiðlunar-gimmiki og einhverju fleiru sé það sem geri stofnun- inni kleift að ná mark- miðum sínum. Þetta er rangt. Ekkert bendir til þess að hefðbundið Náttúruminjasafn sem kosta myndi fleiri milljarða króna myndi standast samanburð við aðrar leiðir til að ná sömu mark- miðum, hvorki hvað varðar gæði né kostnað. Þvert á móti bendir flest til þess að flestar aðrar leiðir væru hagkvæmari og áhrifameiri en stórhýsi í miðbænum miðað við stöðu mála í náttúrufræðslu í dag. Framtíðin Flestir eru sammála um að Nátt- úruminjasafn Íslands ræki ekki lögboðið hlutverk sitt. Sumir virð- ast þó álíta að það stafi af skorti á steinsteypu, málmi og gleri í miðbæ Reykjavíkur. Ekkert í lög- unum um Náttúrminjasafn Íslands kveður á um það að hlutverk þess sé að reisa stórkarlalegar bygg- ingar. Er það til of mikils mælst að athyglinni sé beint að raun- verulegum og mikilvægum mark- miðum Náttúrminjasafns Íslands, fræðslu til almennings um náttúru okkar og umhverfi? Náttúrufræðsla sem væri sam- tíma okkar samboðin færi ekki fram í rammgerðri viktorískri höll heldur úti í náttúrunni sjálfri. Náttúruminjasafn Íslands – Tíma- skekkja? Í umhverfisráðuneyti er unnið að sameiningu stofnana sem sinna umsýslu friðlanda, þjóð- garða og hugsanlega þjóðskóga. Það er mikilvægur áfangi að því að samræma vörslu lands í þjóðar eigu. En ekki má láta þar við sitja. Þjóðlendurnar á miðhálendi Íslands þurfa líka skjól í öflugri stofnun með sýn sem byggir á verndun og sjálf- bærri nýtingu. Miðja landsins er eldbrunnin háslétta þakin hraunbreiðum, vikrum og eyðisöndum. Upp úr henni rísa bláhvítar jökulbreið- ur, snævi þakin eldfjöll, græn- ir móbergshryggir, formfagrar dyngjur og stapar. Inn á milli eru gróðurvinjar og litskrúðug háhitasvæði og til jaðranna sam- felldar grónar heiðar og friðsæl fiskivötn þar sem himbrimi og hávella syngja tregablandna fagnaðarsöngva til lífsins. „Nótt- laus voraldarveröld þar sem víðsýnið skín“ kvað Stephan G. Stephansson og fangaði í einni setningu galdur hálendisins og íslenska sumarsins. Þeir sem upplifa þennan gald- ur verða betri menn því þeir hafa skynjað alheimsandann, feg- urðina og eilífðina. Það eru ekki margir staðir eftir á jörðinni sem hafa þennan sama kraft til að umbreyta fólki og óvíða kom- ast Vesturlandabúar í sambæri- lega snertingu við uppruna sinn. Hálendi Íslands er einstök ger- semi, langstærsta óbyggða víð- erni Evrópu sunnan heimskauts- baugs. Það er ein allra stærsta auðlind landsins til langs tíma litið og er þó af mörgu að taka. Meginhluti miðhálendisins hefur verið úrskurðaður þjóð- lendur, ævarandi eign þjóðar- innar (sjá: www.obyggd.stjr.is), aðrir hlutar þess eru friðlýstir í umsjá Vatnajökulsþjóðgarðs og Umhverfisstofnunar. En hvernig er umsjón og landnýtingu háttað á þjóðlendunum? Forsætisráðu- neytið fer með umsjá þeirra og hefur einn starfsmann til að sinna málefnum sem tengjast þeim. Einnig er starfandi samstarfs- nefnd um málefni þjóðlendna þar sem fulltrúar nokkurra ráðu- neyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga eiga sæti. Hlutverk nefndarinnar er að vera forsætis- ráðherra til aðstoðar við stjórn og ráðstöfun réttinda (skáletrun SB) innan þjóðlendna, eins og segir á heimasíðu forsætisráðuneytisins. Umsjón ríkisins með þjóð- lendunum og þar með drjúg- um hluta miðhálendisins er því afar takmörkuð. Hún snýr ekki að verndun, endurheimt gróður- lenda, uppbyggingu til að taka við ferðamönnum eða annarri sjálf- bærri nýtingu, að því er virðist, heldur fyrst og fremst að því að ráðstafa réttindum til þeirra aðila sem eiga, eða telja sig eiga, ítök vegna ýmiss konar hlunninda og atvinnureksturs, beitar, veiða, vatnsréttinda, virkjana, útivistar og ferðamennsku. Hagsmunirnir eru miklir og vaxandi og margir sjá tækifæri. Þjóðin á landið en margir vilja ráðskast með það, stofnanir, sveitarstjórnir, hags- munasamtök og einstaklingar. Þjóðlendurnar á hálendinu eru í raun án hirðis og fyrir vikið ríkir þar víða stjórnleysi. Vega- og slóðakerfið er óburðugt, merk- ingar ýmist vantar eða eru ósam- stæðar, verndaraðgerðir eru litlar sem engar, mannvirki rísa á ólíklegustu stöðum, fræðsla, land- varsla og löggæsla er í mýflugu- mynd og ferðamenn vita oft ekki sitt rjúkandi ráð. Það er löngu orðið tímabært að hugsa þessi mál upp á nýtt og fara að sinna hálendinu af þeim metnaði og virðingu sem því ber. Hálendið er eitt af gulleggjum þjóðarinnar. Það þarf að skoða og meta sem eina heild, vernda sem heild, skipuleggja sem heild og því þarf að sinna sem heild í einni öflugri stofnun. Lítum til annarra þjóða, svo sem Norð- manna, Nýsjálendinga og Banda- ríkjamanna, hvernig þær sinna sínum þjóðlöndum. Lærum af þeim og látum heildarhagsmuni Íslendinga ráða för. Hálendi án hirðis Náttúruvernd Snorri Baldursson líffræðingur og áhugamaður um náttúruvernd Náttúruminjasafn Hjörleifur Finnsson heimspekingur og þjóðgarðsvörður Flestir eru sammála um að Nátt- úruminjasafn Íslands ræki ekki lögboðið hlutverk sitt. Afreksstyrkir Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Samfélagssjóður Landsbankans veitir þrjár milljónir króna í afreksstyrki. Markmiðið með veitingu styrkjanna er að styðja við bakið á afreksfólki sem iðkar einstaklingsíþróttir. Einnig verða veittir styrkir til ungs íþróttafólks sem á framtíðina fyrir sér. Eirfarandi styrkir verða veittir:  Afreksstyrkir: Allt að 500.000 kr.  Afreksfólk framtíðarinnar: Allt að 200.000 kr. Umsóknarfrestur Umsóknarfrestur vegna afreksstyrkja rennur út föstudaginn 2. mars 2012 (póststimpill gildir). Fylla þarf út sérstakt umsóknareyðublað á vef Landsbankans og senda til: Afreksstyrkir, Landsbankinn, Austurstræti 11, 155 Reykjavík. Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra verkefna. Árlega eru fimm tegundir styrkja veittar; afreks- styrkir, námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir, samfélagsstyrkir og um- hverfisstyrkir. Dómnefndir eru skipaðar fagfólki á hverju sviði. Nánari upplýsingar á landsbankinn.is. AF NETINU Fyrrum hrokagikkurinn Stefán Jón! Það var dálítill hroki í Stefáni Jóni Hafstein hér í eina tíð. Allavega var hann dálítið góður með sig. Hafði reyndar að sumu leyti efni á því. Vel gefinn, myndarlegur maður sem auðvelt á með að tjá sig við hvern sem er. Ljóst að það rúllar enginn yfir Stefán Jón. En Stefán Jón hefur breyst. Hann dró sig út úr íslenskri pólitík og fór að starfa að þróunarsamvinnu í Afr- íku. Ég hef fylgst með honum þar. Séð hann vinna gott starf. Og séð „dálítinn hroka“ hægt en örugglega þróast yfir í hæfilega auðmýkt. Þrátt fyrir hæfilega auðmýktina rúllar eng- inn yfir Stefán Jón. Það segir honum enginn fyrir verkum. En hann hefur lært að þjóna. Þannig þarf forseti Íslands að vera. http://blog.eyjan.is/hallurm Hallur Magnússon

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.