Fréttablaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 22
6. MARS 2012 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● íslandsmót iðn- og verkgreina 2012 Á Íslandsmóti Verkiðnar er keppt í fjölmörgum iðngreinum þar á meðal tveimur rafiðngreinum. Undanfarin ár hefur verið keppt í rafvirkjun og hefur Félag íslenskra rafvirkja stutt dyggilega við keppnina en einnig hefur félagið sent keppendur út á heimskeppnina, WorldSkills. Í ár verður einnig keppt í rafeinda- virkjun. Það er virkilega áhugavert að fylgjast með öllum keppnis- greinunum og í raun alveg magnað að sjá mikla færni og þekkingu ungs fólks sem er að feta sín fyrstu skref í framhalds- skólum og á vinnumarkaði. Nýsköpun og hátækniiðnaður þrífst ekki í landi þar sem skortur er á tæknimenntuðu fólki. Rafiðngreinar spila stórt hlutverk í þróun nýs tæknibúnaðar hvort sem unnið er að betri nýtingu hráefnis eða framleiðslu á nýjum búnaði. En af hverju að velja iðnnám? Þeir einstaklingar sem ljúka sveins- prófi í rafiðngreinum eru mjög eftir- sóttir úti á vinnumarkaðnum jafnt hér heima á Íslandi sem erlendis, þeir sem ætla sér í frekara háskólanám eins og tæknifræði eða verkfræði ættu að kynna sér iðngreinar fyrst því það hefur sýnt sig að þeir sem hafa farið verknámsleið upp í Háskóla verða oft á tíðum bestu sérfræðingarnir. Í dag er einnig boðið upp á möguleikann á að ljúka stúdentsprófi samhliða verknámi. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum að rafiðngreinar höfða jafnt til karla og kvenna. Konum fjölgar jafnt og þétt í rafiðnaði og á undanförnum misserum hafa þær konur sem lokið hafa sveinsprófi sýnt það og sannað að þær eiga fullt erindi í rafiðngreinar enda hafa þær lokið sveinsprófum með góðum árangri og hafa á undan- förnum árum verið á mjög góðum launum. Rafiðngreinar hafa í gegnum tíðina verið taldar með arðbærari störfum sem mögulegt er að mennta sig í. Það þýðir að sá kostnaður sem nemendur þurfa að leggja út til þess að afla sér menntunar, á móti þeim tekjum sem vænta má að námi loknu, er hlutfalls- lega mjög lítill. Ég hvet þá sem eru að velta fyrir sér að bæta við menntun sína, hvort sem þeir eru að koma úr grunnskóla eða komnir á vinnumarkað, að kíkja við í Háskólanum í Reykjavík dagana 9. og 10. mars næstkomandi og kynna sér þær fjölmörgu iðngreinar sem keppt er í. Þetta er einnig kjörið tækifæri fyrir foreldra barna á grunnskólaaldri að kynna sér iðngreinar. Kristján Þórður Snæbjarnarson Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands Spennandi valkostur Dagskrá föstudaginn 9. mars Kl. 09:30 Keppni hefst Kl. 10:00-14:00 Grunnskólanemendur í heimsókn Kl. 10:00-12:30 Atriði á sviði Kl. 13:00 Setningarathöfn keppninnar og Menntadags iðnaðarins Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Kl. 16:30 Keppni frestað til morguns Dagskrá laugardaginn 10. mars Kl. 09:30 Keppni heldur áfram Kl. 12:30-14:30 Atriði á sviði Kl. 16:00 Keppni lýkur í öllum greinum Kl. 16:30 Skemmtidagskrá á sviði Kl. 17:15 Lokaathöfn og verðlaunaafhending Simon Bartley forseti World Skills Stærsta iðn- og verkgreinakeppni sem haldin hefur verið á Íslandi - allir velkomnir!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.