Fréttablaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 06.03.2012, Blaðsíða 28
6. mars 2012 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Svavar Hávarðsson ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. kveina, 6. kusk, 8. mælieining, 9. gerast, 11. tveir eins, 12. sjúga, 14. sáldur, 16. berist til, 17. uppistaða, 18. drulla, 20. sjó, 21. malargryfja. LÓÐRÉTT 1. fyrst fædd, 3. tveir eins, 4. planta, 5. mjög, 7. galli, 10. skammstöfun, 13. skrá, 15. hvæs, 16. hryggur, 19. óreiða. LAUSN LÁRÉTT: 2. emja, 6. ló, 8. mól, 9. ske, 11. ll, 12. totta, 14. svarf, 16. bt, 17. lón, 18. aur, 20. sæ, 21. krús. LÓÐRÉTT: 1. elst, 3. mm, 4. jólarós, 5. all, 7. ókostur, 10. etv, 13. tal, 15. fnæs, 16. bak, 19. rú. Þvílíkt sigurmark, Maggi! Sending aftur fyrir, beint í framtennurnar, slána og að lokum í hnakkann og inn! Klassískt! Já, við höfum verið að æfa síðustu daga! Hmm … hvar hef ég séð svona markvörslu áður? Ég held að þetta sé hérna rétt hjá. Já! þarna! Þarna er bústað- urinn! Hvar? Ég sé bara þennan sæta garð- skála. Pant fá rúmið. Hann er reyndar stærri að innan en utan. Ég ætla að vera fiðluleikari þegar ég verð stór! Það er frábært, Solla! Þá eru fram undan þrotlausar æfingar í mörg, mörg ár og gríðarlega mikil og erfið vinna. Þú getur það! Ég skipti um skoðun. Ég ætla að gera það sem þú gerir. Hvað sem það er. LAMAÐUR AF ÁST Á LINDU ÁSTIR LAMADÝRA Þegar ég flosnaði upp úr námi á sínum tíma hafði ég ekki klárað helming- inn af þeim einingum sem mér bar að skila til stúdentsprófs á félagsfræði- braut Menntaskólans á Egilsstöðum. Hafði ég þó „stundað námið“ í fjögur ár í það heila. Eftir nokkur ár á togara sett- ist ég svo aftur veturlangt á skólabekk á Selfossi og kláraði það sem ég átti eftir, enda hafði ég þá nýlega fengið þá flugu í höfuðið að Háskóli Íslands væri eitthvað fyrir mig. Ég hafði því skýrt markmið og ég lagði mig fram. Þann vetur komst ég að því að það kemur sér vel í prófum að mæta í tíma og frum- lesa ekki námsefnið nóttina áður. Þýska er gott dæmi, í þessu samhengi. Stærðfræði er annað. ÞEGAR í háskólann var komið tóku sig upp gaml- ir siðir. Það skal bara viðurkennt að brenni- vín og kvennafar höfðu meira aðdráttarafl heldur en Aðferðir I. Öldurhús- in höfðu þennan fyrsta vetur vinninginn yfir skólastofunni og eftir- tekjan í samræmi við það. Þegar frá leið endurtók sagan sig hins vegar og árang- urinn batnaði í samræmi við ástundun. NÚ BERAST fréttir af því að nýnemar við Háskóla Íslands taki nám sitt ekki alvarlega. Af þessu hafa kennarar háskól- ans áhyggjur og spyrja sig hvað veldur. Menn vísa til þess að áhugi nýnema hafi sjaldan eða aldrei verið eins lítill og nú, og reyndar má skilja það af tali háskóla- manna að ný samskiptatækni leiki stórt hlutverk í því að afvegaleiða ungt fólk. ÉG HELD ekki. Ég held reyndar að ekk- ert hafi breyst. Á öllum tímum er það ein- faldlega þannig að ungt fólk hefur meiri áhuga á rassinum á samnemendum sínum en því sem er verið að reyna að miðla í skólastofu. Og að skemmta sér í hópi jafn- aldra sinna. Það var þannig þegar kenn- arar háskólans hófu nám, það var þannig þegar ég hóf nám og það verður þannig næsta haust, og svo öll árin eftir það. ÞAÐ sem háskólamenn eiga að einbeita sér að er ekki áhugi eða áhugaleysi ungu kynslóðarinnar. Hún sér um sig sjálf. Hins vegar á það að vera verkefni háskóla- manna að bjóða unga fólkinu fjölbreytta og góða kosti til náms. Góðan háskóla sem stenst alþjóðlegan samanburð. Unga fólkið sem mun nýta þau tækifæri á hverjum tíma mun sanna sig. Sannið bara til. Ekkert hefur breyst

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.